Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Síða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Síða 10
10 Fréttir Fimmtudagur 21. janúar 1999 Eyj amenn eru s -en þetta er traust og gott fólk, allt hresst og skemmtilegt en samt er talað dálítið mikið um náun síns Sighvats Bjamasonar, námsárum í Danmörku, dvöl í Frakklandi og kynnum sínum a Hún var einstæð tveggja bama móðir og hann átján ára handboltakappi þegar þau kynntust á fþróttaleik í Reykjavík. Ástin blómstraði og örlögin leiddu þau á flakk til Evrópu. Þau dvöldust í þrjú ár í Danmörku og síðan í þrjú ár í Frakklandi áður en leiðin lá til / bemskuslóða hans í Vestmannaeyjum. A ferðum sínum hefur hún meðal annars aðstoðað nunnur við bamakennslu og gert tilraunir með gómsæta kart- öflurétti þegar þröngt var í búi á námsárunum. Þegar Ragnhildur Gottskálksdóttir flutti til Vestmannaeyja með eiginmanni sínum og börnum fyrir sex árum síðan var heimshomaflakki fjölskyldunnar lokið. Hún segir aðlögun sína að samfélaginu í Vestmannaeyjum hafa verið auðvelda enda séu Vestmannaeyingar með hjartað á réttum stað. Þrír nemar í hagnýtri fjölmiðlun sóttu Ragnhildi heim og ræddu við hana um ferðalögin, fjölskylduna og líf hennar í Vestmannaeyjum. Þegar við berjum dyra hjá Ragnhildi á Brekkugötu taka þrír forvitnir fjölskyldumeðlimir á móti okkur; synir hennar, Bjami og Eggerl Rafn, og heimilishundurinn Lady, sem hefur fylgt fjölskyldunni alla leiðina frá Frakklandi. Skömmu síðar birtist húsmóðirin sjálf og býður okkur velkomnar. Þessi grannvaxna, rauð- hærða kona vísar okkur til stofu, ber fram kaffi og virðist lítt uppnæm yfir svefngalsa yngsta sonar síns, sem færist allur í aukana við gestakomuna. Pelinn hans Gottskálks var upphafíð Ragnhildur er fædd í Reykjavík en ólst upp að mestu leyti á Seltjarnar- nesi. Faðir hennar, Gottskálk Eggerts- son á Harðviðarval í Reykjavík og hún segist því hafa alist upp í fyrir- tækjarekstri frá fyrstu tíð. Móðir hennar er Guðrún Einarsdóttir Sjálf vann hún hins vegar sem snyrti- fræðingur eflir nám í snyrtifræðum. Ragnhildur giftist ung og átti sitt fyrstabarn I9áragömul. Sambandið entist ekki og hún stóð uppi einstæð með tvö börn, rúmlega tvítug að aldri. Tilviljun réði fyrstu fundum hennar og Sighvats Bjarnasonar sem síðar átti eftir að verða eiginmaður hennar. Aðspurð um þeirra fyrstu kynni brosir Ragnhildur og segist hafa verið að horfa á handboltaleik. „Sighvatur var að spila og yngri strákurinn minn, Gottskálk, missti pelann sinn inn á völlinn. Sighvatur rétti mér hann upp á áhorfendapallinn og seinna hittumst við í Hollywood sem þá var aðal- staðurinn.“ Ragnhildur var 24 ára en Sighvatur aðeins 18 þegar ástir tókust með þeim. Hún segir þó aldursmun þeirra hjóna aldrei hafa valdið neinunt erfiðleikum. „Þetta var vissulega svolítið öðruvísi fyrir 18 árum. Eg hefði alveg skilið það ef móður hans hefði verið brugðið við þessar fréttir. Ég fann hins vegar aldrei fyrir neinu og í fyrsta skiptið sem við heimsóttum foreldra hans tók faðir Sighvats hann á beinið og sagði honum að úr því að hann væri kominn með konu með tvö börn væri eins gott fyrir hann að standa sig. Og það hefur hann alltaf gert. En það var sjálfsagt eitthvað talað um þetta á sínum tíma,“ segir Ragnhildur og hlær. Yndislegur tími en lítil auraráð Þórður, elsti sonur Ragnhildar, var sex ára gamall þegar Sighvatur kom til sögunnar. Hann er nú í námi í viðskiptafræði í Suður Karólínu í Bandaríkjunum. Þar dvelur hann með fjölskyldu sinni, Raghildi Eddu sem er augasteinn ömmu sinnar og sambýlis- konu sinni sem heitir Guðrún Gísladóttir. Þórður er eini fjölskyldu- meðlimurinn sem ekki hefur búið í Vestmannaeyjum. Gottskálk var að- eins ársgamall þegar hann leiddi móður sína og Sighvat saman á hand- boltaleiknum. Ragnhildur segir hann líta algerlega á Sighvat sem föður sinn og að mörgum þyki sterkur svipur með þeim feðgum. Sighvatur var hálfnaður með nám í viðskiptafræði við Háskóla Islands þegar fjölskyldan flutti búferlum til Arósa í Danmörku. Þar lauk hann viðskiptafræðináminu og bætti við sig hagfræði. Ragnhildur minnist dvalar- innar í Árósum með hlýju. „Við bjuggum á stúdentagarði í Árósum eins og margir aðrir íslenskir náms- menn og eignuðumst þar okkar bestu vini. Við áttum oft varla fyrir mat og seldunt flöskur í búðinni til að kaupa kartöflur. Þetta var samt yndislegur tími þrátt fyrir auraleysið. Við urðum til dæmis sérfræðingar í góðum kartöfluréttum fyrir vikið,“ segir hún og tekur Eggert í fang sér. „Það var kannski óðs manns æði að rjúka svona til útlanda með lítil böm en mér fannst þetta ekkert mál. Danmörk er bamvænt samfélag og þama var mikið af íslenskunt börnum og bamafólki." Ragnhildur og Sighvatur bjuggu í Árósum í þrjú ár og þar fæddust þeirn RAGNHILDUR GOTTSKÁLKSDÓTTIR byrjaði sinn búskap á Seltjarnarnesinu. Þaðan lá leiðin til Danmerkur, aftur á Seltjarnarnesið, þá tóku við þrjú ár í Frakklandi og loks flutti fjölskyldan til Vestmannaeyja þar sem hún hefur búið sl. sex ár. tvö börn, Dóra Dúna og Bjami, sem nú em 14 og II ára. „Við fómm út með tvö böm og komum heim með fjögur," segir Ragnhildur brosandi. „Það var alveg nóg að gera, svo ekki sé meira sagt.“ Eggert, yngsti sonur- inn, fæddist síðan í Vestmannaeyjum fyrir þremur ámm. Dagmamma í eitt ár Fjölskyldan var búsett á Seltjamamesi í þrjú ár eftir komuna frá Danmörku en Sighvatur vann þá eitt ár hjá Útflutningsráði áður en hann hóf störf hjá Sölusambandi íslenskra fiskfram- leiðenda. Ragnhildur sjálf vann hins vegar sem dagmóðir í eitt ár með dyggri aðstoð Sighvats. „Ég passaði tíu börn frá klukkan átta á morgnana til sex á kvöldin. Þetta var erfitt starf en líka mjög skemmtilegt,“ segir Ragnhildur. „Sighvatur hjálpaði mér mikið. Hann kom til dæmis heim úr vinnunni í hádeginu til að hjálpa mér að gefa liðinu að borða og það var oft mikill handagangur í öskjunni við að mata mannskapinn.“ Ragnhildur ber ekki á móti því að vera mikil bamakona. I dag er hún fimm barna móðir og amma og hefur auk dagmóðurstarfsins unnið sjálf- boðaliðavinnu í frönskum bamaskóla og í afleysingum á leikskóla í Vestmannaeyjum. Því kemur ekki á óvart að með henni hefur alltaf blundað löngun til að verða ljósmóðir. „Ég held að það hljóti að vera merkilegt starf,“ segir Ragnhildur dreymin á svip. „Bömin mín ganga auðvitað fyrir ... en það er aldrei að vita hvað maður gerir seinna meir.“ Til Frakklands Fyrir átta árum flutti fjölskyldan enn búferlum og nú til bæjarins Royan í Frakklandi sem er skammt frá borginni Bordeaux. „Sighvatur vann hjá SIF á þessum tíma,“ segir Ragn- hildur. „Hann var beðinn um að stjóma Nord Morue verksmiðju fé- lagsins í bænum Royan á suðvestur- strönd Frakklands og það var óneitanlega stór ákvörðun fyrir fjölskylduna að flytja út á nýjan leik. Royan er sumardvalarstaður þannig að vetri til er aðeins búið í þriðja hverju húsi. Sighvatur ferðaðist mikið vegna vinnunnar og var því lítið heima við,“ segir Ragnhildur og kveðst óneitan- lega hafa fundið fyrir töluverðri einangmn, einkum vegna tungumála- erfiðleika. „Ég talaði enga frönsku til að byrja með. Frakkamir em leiðin- legir að þessu leyti, þeir tala bara frönsku þótt þeir skilji ensku ágætlega. Svo er verið að segja að Islenuingar séu lokaðir og leiðinlegir!" Ragnhildi fannst erfitt að stofna til kynna við franska nágranna sína og segir þá mjög ólíka Dönum sem taki líftnu með miklu jafnaðargeði. Sjálfboðaliðsvinna hjá nunnunum Þrátt fyrir einangrunina kveðst hún ekki sjá eftir Érakklandsdvölinni. „Þetta var auðvitað mikil lífsreynsla en til þess var leikurinn gerður. Bömin vom fljótt farin að tala eins og innfæddir og Sighvatur náði einnig góðum tökum á málinu. Mig vantaði þó nokkuð upp á og fór því á frönsku- námskeið. Auk þess vann ég sjálf-

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.