Fréttir - Eyjafréttir - 28.10.1999, Page 1
26. árgangur • Vestmannaeyjum 28. október 1999 • 43. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími:481 3310 • Fax:481 1293
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Mál Bergs-Hugins
dómtekið á fimmtudag
Fimmtudaginn 4. nóvember nk.
verður dómtekið í Héraðsdómi
Reykjavíkur mál sem Bergur
Huginn ehf. hefur höfðað gegn
íslenska ríkinu.
Forráðamenn Bergs Hugins ákváðu
að höfða málið vegna þess óréttlætis
sem þeir segja kvótaálag á útflutning
ferskfisks vera. 20% álag er á þorsk,
15% á ufsa, ýsu, karfa og grálúðu og
10% álag á aðrar tegundir. Urslit
þessa máls varða útgerð í Vestmanna-
eyjum miklu þar sem héðan er mikill
útflutningur á ferskum fiski.
Magnús Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Bergs Hugins, segir að í sjálfu
sér sé ekki óeðlilegt að álag sé á
þennan útflutning. Viðurkennt sé að
þessum flutningum fylgi ákveðin
rýmun. „En sú rýmun nær alls ekki
þessum prósentutölum, nær ekki
tveggja stafa tölu og á þessu órétti
viljum við fá leiðréttingu," segir
Magnús. Málið verður dómtekið í
Héraðsdómi í næstu viku og dóm
verður að kveða upp innan þriggja
vikna frá þeim tíma.
Nú í vikunni hafa verið opnir dagar í Barnaskóla Vestmannaeyja og því vel við hæfi að
birta mynd af þessum listfengu krökkum sem Guðmundur Sigfússon hitti á förnum
vegi og festi á filmu í góða veðrinu á dögunum.
Bókabúðin hefur starfsemi undir nafni Pennanns:
Aukin Þjónusta oo bætt
markaðsstaða
-segja fulltrúar fyrirtækjanna
Nú um mánaðamótin tekur gildi
samstarfssamningur Bókabúðar-
innar og Pennans, sem víkur að
lagerhaldi og bættri þjónustu.
Eignaraðild mun þó verða hin sama
og áður og vildi Páll Guðmundsson,
eigandi Bókabúðarinnar, að það
væri ljóst að einungis væri um
samstarf að ræða. Kjartan
Kjartansson, forstöðumaður heiid-
sölusviðs Pennans, tók í sama
streng og segir hér verið að færa
ritfangaverslunina út á land og
jafnframt að styrkja fyrirtækið
markaðslega.
Páll segir samstarfið milli Bóka-
búðarinnar og Pennans ekki vera
einstakt í sinni röð. „Það eru fjórar
búðir úti á landsbyggðinni, í Keflavík,
á Akranesi, ísafirði og í Vestmanna-
eyjum, sem eru að taka upp nánara
samband við Pennann. Þær taka allar
upp Penna-nafnið í mismunandi
mynd, eftir því hvemig þær tengja
nafnið við fyrra nafn.“ Þegar Páll er
inntur eftir því hort hér sé um
yfirtökutilburði að ræða neitar hann
því að svo sé. Kjartan tekur í sama
streng og þvertekur fyrir að slík
keðjumyndun sé í burðarliðnum.
„Upphaflega kemur þetta frá þessum
verslunum," segir hann. „Það er
náttúrulega verið að mynda þá keðju,
að þama er verið að bjóða sam-
bærilegt vöruúrval í öllum þessum
verslunum,“ segir hann jafnframt en
vill leggja áherslu á, líkt og Páll, að
þetta samstarf sé byggt upp á
sjálfstæðum einingum og að þetta sé
samstarf um viðskiptin og bóka-
búðimar fái leyfi til að nota nafn
Pennans.
Kjartan segir verslanimar á lands-
byggðinni sjá sér ákveðinn ávinning
með að einfalda sitt lagerhald í
samstarfi við heildsölu Pennans. „Það
þýðir að viðskiptavinir út um landið
njóta sama vöruúrvals og er í
Reykjavík, á sama verði.“
„Maður reynir alltaf að bæta sig í
þjónustunni," segir Páll og bætir við
að sameiginlega markaðsstarfið skipti
miklu í því tilliti, hægt sé að bjóða
betri tilboð til viðskiptavina. „Þegar
upp er staðið höfum við þessar litlu
verslanir úti á landi, miklu meiri
aðgang að allri þekkingu í sambandi
við framsetningar í verslunum og allt
það nýjasta sem er að gerast en við
verslum náttúmlega meira hjá
Pennanum í staðinn,“ segir hann.
Þegar Kjartan er inntur eftir því
hvaða ávinning Penninn sjái í slíku
samstarfi segir hann ýmsa kosti við
það. „Við emm að færa okkar vöm
nær viðskiptavinum úti á landi,“ segir
hann. „Við störfum með traustum
verslunum á hverjum stað sem hafa
samið við heildverslun okkar um að
vera með okkar vömr. Þetta verður
sterkara markaðslega séð.“ Hann segir
alla aðila koma vel út úr slíku
samstarfi því „þegar við [Penninn]
auglýsum vöm þá fæst hún í
Pennanum um allt land, á sama verði
eða svipuðu, það er verið að auka
hagkvæmnina fyrir landsbyggðina."
Hann bætir við að varan verði til á
staðnum og er það samræmt þjón-
ustuhliðinni og því er hægt að veita
bæði vöm og þjónustu á staðnum.
Hann segir þetta einnig þýða sterkari
ímynd fyrir Pennann í heild.
Páll svarar með semingi spumingunni
um hvort bág staða hafi verið ástæða
samstarfsins. „Allir, held ég, sem em í
þessum bransa hafa verið að berjast
eftir að bókasalan breyttist fyrir
mörgum ámm,“ segir hann. Hins
vegar segir hann ritfangaverslun hafi
frekar haldið sínu. Hann greinir frá því
að það sé erfitt að reka litla verslun úti
á landi í bókaflóðinu, slík verslun sé
eins og „einn lítill karl sem enginn
nennir að hlusta á.“
Ársreikningar Vinnslustöðvar lagðir fram:
Tap upp ð
850
milljóuir
Hefur ekki áhrif
á stöðu starfsfólks
Tap Vinnslustöðvarinnar nam á
síðasta rekstrarári 850 milljón-
um króna. Þar af er tap á
reglulegri starfsemi 610 milljón-
ir. Tapið, frá milliuppgjöri í
febrúarlok, nemur 250 milljón-
um þar af eru 137 milljónir af
rekstri.
Þessar tölur vom birtar
opinberlega í gær og ollu tals-
verðum óróa á hlutabréfa-
markaðinum enda um háar tölur að
ræða. Sigurgeir Brynjar Kristgeirs-
son, framkvæmdastjóri Vinnslu-
stöðvarinnar, var spurður hvort
þetta væri í samræmi við það sem
stjómendur fyrirtækisins hefðu
reiknað með.
„Sjálf rekstramiðurstaðan er í
samræmi við það sem búist var við.
En óreglulegu liðirnir koma lakar
út, t.d. Hafnarmjöl í Þorlákshöfn og
Gulldrangur í Færeyjum.“
Hefur þessi niðurstaða einhver
áhrif í sameiningarmálum Vinnslu-
stöðvarinnar við önnur fyrirtæki:
„A þessari stundu get ég ekki
gefið mér það. Ég reikna ekki með
að þetta hafi afgerandi áhrif á þau
mál.
Sigurgeir Brynjar segir að þessi
afkoma hafi engin áhrif á starfs-
mannahald fyrirtækisins. „Þau mál
vorum við búnir að afgreiða og það
verður óbreytt þrátt fyrir þessa
niðurstöðu og starfsfólk okkar þarf
ekki að hafa áhyggjur af sinni
atvinnu," sagði Sigurgeir Brynjar.
„Ég hef í rauninni ekki mikið um
þetta að segja,“ sagði Sigurður
Einarsson, forstjóri Isfélagsins.
„Menn gerðu ráð fyrir taprekstri
eins og kemur í ljós. Við verðum
bara að vona að þetta verði betra í
framtíðinni.
Ég á ekki von á að þetta breyti
miklu í sameiningarmálum fyrir-
tækjanna. En þetta sýnir að við
eigum erfiða baráttu fyrir höndum,“
sagði Sigurður Einarsson.