Fréttir - Eyjafréttir - 28.10.1999, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 28. október 1999
Fréttir
19
Handbolti
Tap á heimavelli
Á föstudagskvöld var leikur ÍBV
og KA hér í Vestmannaeyjum.
Leikurinn var nánast allur lélegur,
fyrir utan 8 mínútna kafla í upphafi
seinni hálfleiks þegar strákai'nir
virtust ætla að spila handbolta. En
Adam var ekki lengi í Paradís og
norðanmenn juku aftur við forskotið
og unnu með 11 marka mun, 21-32.
Leikurinn byrjaði af krafti og
virtist allt stefna í sannkallaðan
baráttuleik. Reyndar var barningur,
en baráttan var lítil og menn virtust
fyrst og fremst vera að hugsa um
andstæðinginn frekar en að spila sinn
leik. Jafnt og þétt juku Akureyringar
forskotið og niðurstaðan 8 marka
forskot gestanna í hálfleik, nokkuð
sem á ekki að þekkjast.
Leikmenn ÍBV tóku sig á í upphafi
seinni hálfleiks og börðust eins og
ljón. En þá komu nokkrir vafasamir
dómar hjá einu lélegasta dóinarapari
landsins, og leikurinn fór í sama
farveg þar sem KA jók muninn jafnt
og þétt. Lokatölur urðu 21-32 og
hefur ÍBV ekki tapað leik með jafn
miklum mun í áraraðir, hvað þá á
heimavelli.
Nú þegar tæplega fjórðungur er
búinn af Islandsmótinu ættu liðin að
vera búin að slípa helstu vankanta af
leik sínum og niðurröðun liða ætti að
vera farin að skýrast. Staðreyndimar
tala sínu máli, ÍBV er í 10 sæti með 3
stig og markatöluna 108-132 sem
gera að meðaltali 21,6 mark skorað,
en 26,4 mörk fengin á sig. Þess má
geta að liðið hefur spilað gegn
nýliðum deildarinnar og fall-
kandídötum Víkingi og Fylki á
heimavelli; og þar fengust stigin þijú.
Mörk IBV: Miro 7/3, Guffi 4.
Erlingur4, Helgi 2, Hannes 2, Bjartur
1, Malli 1.
Varin skot: Soltan 2. Gísli 10.
Háspenna
geSn FH
Síðasta miðvikudagskvöld áttust
við í handknattleik kvenna, IBV og
FH. Stelpumar vom búnar að spila
ÆFINGATAFLA YNGRI FLOKKAIBVI
KNATTSPYRNU 25. OKT ‘99 til 25. JAN. 2000
MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN
Tími Frá TII Hvar Hvað Tími Fró Til Hvar Hvað Tími Frá Tll Hvar Hvað Tíml Fró Til Hvar Hvað Tími Fró Til Hvar Hvaö Tími Fró Til Hvar Hvað Tími Fró Til Hvar Hvað Flokkur Tíml Fró Tll Hvar Hvað Tími Frá Til Hvar Hvað Tíml Fró Til Hvar Hvað Tími Fró Til Hvar Hvað Tími Fró Til Hvar Hvað Tími Frá Til Hvar Hvað Tími Fró Til Hvar Hvað
19.00 20.00 Þórsh. Tækni 18.30 19.30 Týsh. L. 22.00 23.00 íþr.hús T/T/F 12.30 13.30 Týsh T/T/F 13.30 14.30 Týsh T/T/F 3 20.30 21.30 Týsh. T/T/F 18.00 19.00 Þórsh. Tækni 17.50 18.40 Týsh. T/T/F Ero- bik eftirjól 16.30 17.30 Týsh. T/T/F
15.20 16.05 Týsh. T/T/F 17.30 18.30 Týsh. L. 20.00 20.40 Týsh. T/T/F 17- 18 YNGRI 18- 19 ELDRI Þórsh. Tækni 10.30- 11.30 YNGRI 13.30- 14.40 ELDRI Týsh. T/T/F 09.00 11.30 F/fim ÍÞr.sal 4 19.40 20.30 Týsh. T/T/F 15.00 16.00 Þórsh. Tækni Ero- bik eftirjól 16.30 17.30 Týsh. T/T/F 16.30 17.30 Týsh. T/T/F
14.35 15.20 Týsh. T/T/F 16.30 17.30 Týsh. L. 12.55 13.40 Týsh. T/T/F 15- 16 YNGRI 16- 17 ELDRI Þórsh. Tækni 14.30- 15.30 YNGRI 15.30- 16.30 ELDRI Týsh. F/F/T 09.00 11.30 ,F/fim ÍÞr.sal 5 oc CL Ero- bik eftirjól 18.00 19.00 Þórsh. Tækni 14.30 15.30 Týsh. T/T/F 17.30 18.30 Týsh. T/T/F 10.30 11.30 Týsh. T/T/F
15.00 16.00 Týsh. T/T/F 15- 16 YNGRI 16- 17 ELDRI Þórsh. Tækni 11.30 12.30 Týsh. T/T/F. 11.30 12.30 Týsh. T/T/F 6 l LU 1— cn 17.00 17.50 Týsh. T/T/F 17.00 18.00 Þórsh. Tækni 17.30 18.20 Týsh. T/T/F 17.30 18.30 Týsh. T/T/F
cc < '< 17.00 18.00 Þórsh. Tækni 17.00 17.50 Týsh. T/T/F 17.50 18.40 Týsh. T/T/F 15.30 16.30 Týsh. T/T/F 7 MAR 14-15 Þórsh. 6-7-8 flokkur KMAh 14-15 Þórsh. 6-7-8 flokkur INSÆ 19.00 19.45 Þórsh. 3-4-5 FING 19.00 19.45 Þórsh. 3-4-5 AR: Markmanns æfingar eru fyrir stráka og stelpur
cc K 16.00 17.00 Þórsh. 17.00 17.50 Týsh. 17.50 18.40 Týsh. 15.30 16.30 Týs. 8
O)
• Breytingar hafa verið gerðar á æfingatíma 4. flokks
drengja og stúlkna og 3. flokks stúlkna (sjá gráu fletina).
• Æfingar sem eru skráðar í Þórsheimili byrja eftir Kna.tspymudeiid
áramót. • Markmannsæfingar í Þórsheimili byrja strax.
tvo leiki og vom ósigraðar þegar að
leiknum var komið.
Utlitið var ekki gott, FH komst
strax yfir og munurinn jókst er á fyrri
hálfleikinn leið. Og ekki bætti úr
skák að Lúsí meiddist á 11. mínútu.
Staðan í hálfleik var 12-16.
Sigbjöm Óskarsson, þjálfari
stelpnanna, hitti naglann greinilega á
höfuðið í hálfleiksræðu sinni því að
IBV skoraði 9 mörk gegn aðeins 2
mörkum gestanna á um 10 mínútna
kafla í upphafi seinni hálfleiks.
Munaði þama mest um að vömin
small saman og Vigdís varði hvert
skotið á fætur öðm. Þegar um 3
mínútur vom eftir af leiknum var IBV
tveimur mörkum yfir 24-22 og í sókn,
en ekki tókst að auka muninn og
gestimir bmnuðu í sókn og minnkuðu
muninn í eitt mark þegar aðeins um
ein mínúta var eftir. IBV gat spilað
leikinn út, en fékk dæmt á sig skref og
FH jafnaði leikinn þegar aðeins um
15 sekúndur voru eftir. Nú héldu
hinir Qölmörgu áhorfendur að
leikurinn væri búinn, en Amela var á
öðm máli, tók nokkur skref yfir
miðjulínuna, þmrnaði boltanum í
netið og tryggði ÍBV sigurinn sæta,
25-24.
Bestar í liði IBV vom þær
Ingibjörg og Vigdís, sem varði 9 skot
í seinni hálfleik einum. Einnig áttu
þær Anita og Amela góða spretti.
Mörk ÍBV:
Amela 6/2, Ingibjörg 5/1, Anita 5,
Guðbjörg 3, Hind 3, Eyrún 2, Anna
Rós 1.
Varin skot:
Lúsí 2, Vigdís 10.
Körfubolti
Erfið fa?öing
hjálV
Það var ansi erfiður leikur sem
strákamir í körfunni spiluðu gegn
Selfossi á laugardag. ÍV er með mun
breiðari hóp, en ljóst er að menn eiga
eftir að ná saman og komast á skrið.
Sigur vannst 70-66, en það var ekki
fyrr en á síðustu sekúndunum sem
sigrinum var landað.
I fyrri hálfleik byrjuðu Eyjamenn
betur, en fljótlega fór að síga á
ógæfuhliðina og gestimir sigldu fram
úr. Þegar munurinn var orðinn 10
stig kom hin eina sanna Eyjabarátta
þeim yfir 34-33 í hálfleik.
ÍV kom mun ákveðnara til seinni
hálfleiks og komst yfir, án þess þó að
ná afgerandi forystu. Selfyssingar
neituðu að gefast upp og komu sér
aftur inn í leikinn, en Eyjapeyjar
tryggðu sér sigurinn á síðustu sek-
úndum leiksins, annað skiptið í
tveimur leikjum.
Amsteinn Ingi sagði eftir leikinn að
það hefði verið óþarfi að hleypa
Selfyssingum aftur inn í leikinn.
„Við spiluðum einfaldlega mjög illa í
leiknum bæði í sókn og vörn. Þetta
lagaðist aðeins í byrjun seinni
hálfleiks, en svo fór allt í sama farveg
og því fór sem fór. Við eigum leik
gegn ÍR í bikamum næsta laugardag
og þar getum við ekki leyft okkur
þann munað að spila illa því þeir hafa
verið á mikilli siglingu að
undanfömu. En ég get lofað mikilli
baráttu og góðum leik,“ sagði
Amsteinn að lokum.
Enn styrkist
hópurmn
Handknattleiksdeild kvenna hefur
á undanfömum mánuðum verið að
styrkja leikmannahóp sinn og sl.
mánudag var undirritaður
samningur við tvítugan norskan
leikmann, Metle Einarsen að nafni.
Mette er frá Lai-vik handbalklubb
og lék þar aðallega stöðu
leikstjórnanda. Mette er sterkur og
fjölhæfur leikmaður sem kemur til
með að nýtast liðinu vel. Alls em
því þrír norskir leikmenn gengnir
til liðs við ÍBV fyrir þetta tímabil
en ásamt Mette eru það Anita
Andreassen, homamaður og Ingrid
Engesæter-Rpen, línumaður.
Öflugt ÍBV lið með blöndu af
sterkum og efnilegum Eyjastelpum
og fimm erlendum leikmönnum
setur stelpurnar vafalaust á stall
með sterkari liðum deildarinnar.
Áfram golf
Þó svo að hinni eiginlegu
golfvertíð sé lokið, er þó enn leikið
golf í Vestmannaeyjum.
Vetrarkeppnin er hafin og hefur
verið spilað tvo laugardaga.
Þátttaka er góð í keppninni. Spilað
verður21 luugardag í vetur, ef
veður leyfir og erul verðlaun veitt,
bæði fyrir bestu mætingu, svo og
fyrir besta heildarskor með forgjöf
og án. Leiknar em níu holur og
geta keppendur ráðið rástíma
sínurn, frákl. 11 til 13. Aðleik
loknum er svo kaffi og meðlæti í
boði.
Spennandi leikir
framundan
Á föstudagskvöld taka leikmenn
IBV á móti hinu unga og
bráðefnilega liði ÍR. Leikmenn
hal'a legið undir feldi í vikunni og
má búast við þeim baráttuglöðum
til leiks. Á laugardag em svo tveir
hörkuleikir. Stelpurnar taka á móti
hinu geysisterka liði Stjörnunnar,
en í körfuknattleik er bikarslagur
IV og IR en ÍR hefur verið spáð
úrvalsdeildarsæti að ári. Á
miðvikudag verður svo stórleikur í
Höllinni þegar b-lið ÍBV tekur á
móti 1. deildarliði Hauka.
Leikmenn liðsins hafa undirbúið
sig af kappi fyrir leikinn, sumir
meðal annars mætt á æfingu og
má því búast við erfiðum leik
gestanna.
Framundan
Föstudagur 29. okt.
Kl. 20.00 ÍBV-ÍR karlar
Laugardagur 30. okt.
Kl. 12.00 ÍBV-HKb. 4 fl.karla
Kl. 13.30 ÍBV-Stjaman konur
Kl. 15.30 ÍV-ÍR karfan
Þriðjudagur 2. nóv.
Kl. 20.00 Fjölnir-ÍBV bikar karla
Miðvikudagur 3. nóv.
Kl. 20.00 ÍBVb-Haukar bikar karla
snúninga
HÚS
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA