Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 28.10.1999, Page 4

Fréttir - Eyjafréttir - 28.10.1999, Page 4
4 Fréttir Fimmtudagur 28. október 1999 Bókvitiðr askana Búandhokur og afturhald Ég vil að sjálfsögðu byrja á því að þakka Páli fyrir áskomnina. Eins og nærri má geta hafa bankabækurnar mína athygli nær óskipta en ekki er það nú samt þannig að ég sitji og lesi þær í stómm stíl. Þegar talað er um góðar bók- menntir leiði ég fyrst hugann að nóbelskáldinu okkar. Ég er svona þokkalega lesinn í Éaxness og mínar uppáhaldsbækur em Sjálfstætt fólk og Gerpla. Sjálfstætt fólk er bæði merki- leg fyrir það að með henni vildi Laxness deila á búandhokur og aftur- hald og beitir til þess meinhæðnum og fyndnum stíl. Þannig kemst lesandinn smám saman að því að sérvitringurinn Guðbjartur Jónsson sem allt sitt líf streitist við að vera sjálfstæður maður, verður fyrir þær sakir ósjálfstæðastur allra manna. í Gerplu dregur Laxness upp kostulega mynd af hetjum norrænna fomsagna þar sem hann endurskrifar Fóstbræðrasögu með sínu lagi og dregur svo sundur og saman í háði að vegna þess að menn em að springa af mæði. Útgáfa þessarar bókar vakti hörð viðbrögð á sínum tíma enda þótti skáldið seilast býsna langt. Einar Kárason og Djöflaeyjubækur hans em einnig í nokkru uppáhaldi hjá mér, þær em skrifaðar í mein- fyndnum ýkjustíl og em lýsingar oft all skrautlegar svo menn finna næstum lykt upp úr textanum. Mikill styrkur við bækur Einars er líka sú staðreynd að hann vinnur mikla rannsóknarvinnu fyrir verk sínar og eru því Djöflaeyjubækumar ágætis sagnfræðirit um eftirstríðsárin í Reykjavík. A náttborðinu hjá mér núna er síðan Vopin kvödd (A farewell to arms) eftir Hemingway sem er nokkuð mögnuð bók um ástir og örlög í fyrri heimstyijöldinni. Mig langar síðan að biðja Eyvind engu lagi er líkt. Fomköppum er lýst Steinarsson, tónlistarmann með meim sem nautheimskum, vopn þeirra að vera bókaunnanda næstu viku. bitlaus og aðeins nothæf sem barefli, og hlé verður að gera á orustum ©ráfspor Nýjustu fréttir af vitamálum í Eyjum eru nú þær helstar að Vita- og hafnarmálaliðið, sem hefur prýtt þjóðhátíðarsvæðið með þar til gerðu mannvirki, hefur nú boðið hafnarstjóra Vestmannaeyja vitann til afnota þá 363 daga sem mannvirki þeirra setur ekki svip sinn á Þjóðhátíð. Þótti þeim tilvalið að bjóða hafnarstjóra mannvirkið til þess að setja á syðri hafnargarðinn. Mun hafnarstjóri Vestmannaeyja lítt hafa verið /* hrifinn af þessu tilboði. Telja frómir menn í Eyjum að hafnarstjóri hljóti því að tilheyra Myllugenginu sem einnig hefur prýtt Þjóðhátíð með einu myllumannvirki og spurning hvort unnið sé að því á bak við tjöldin að koma myllunni þeirra fyrir á syðri garðinum. Á kubbabíl uppi í hillu / síðasta blaði Frétta var grein um líf og starf Þorsteins Þ. Víglundssonar en 100 ár voru liðin frá fæðingu hans í síðustu viku. Höfundur greinarinnar er Jóna Björg Guðmundsdóttir, skjaiavörður og hún er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni. Fullt nafn? Jóna Björg Guðmundsdóttir. Fæðingardagur og ár? 26. október 1965. Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar. Fjölskylduhagir? Laus og liðug. Menntun og starf? Bókasafnsfræðingur frá Háskóla íslands. Starfa sem upplýs- ingabókavörður í 50% starfi við Bókasafn Vestmannaeyja og héraðsskjalavörður í Vestmannaeyjum í 50% starfi. Laun? Gæti þegið meira. Bifreið? Eg á enn lítinn kubbabíl uppi íhilluheima. Helsti galli? Er haidin of mikilli fullkomnunaráráttu. Helsti kostur? Spyrjið aðra að því. Uppáhaldsmatur? Lambalæri að hætti mömmu. Versti matur? Skata. Uppáhaldsdrykkur? Koníak og svo auðvitað okkargóða vatn. Uppáhaldstónlist? Tónlistin hans Bubba Morthens. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að ferðast til útlanda. Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að gera ekki neitt. Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti? Gætuð þið ekki hækkað þetta upp ísvona fimm milljónir? Uppáhaldsstjórnmálamaður? Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri, auðvitað. Uppáhaldsíþróttamaður? Alveg hlutlaus. Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Já, Sögufélagi Vestmannaeyja. Uppáhaldssjónvarpsefni? Breskir sakamála- myndaflokkar. Uppáhaldsbók? Alla bækur um sögu Vestmanna- eyja eru í uppáhaldi hjá mér. Hvað metur þú mest í fari annarra ? Heiðarleika. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Ytni. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Lake Tahoe, á fylkismörkum Kalifornfu og Nevada í Bandaríkjunum. Hvaða eiginleikum þarf skjalavörður að vera búinn? Heyrðu mig, átti þetta ekki að vera stutt spjall? Er auðvelt mál eða flókið fyrir almenning að nýta sér gögn í skjalasafninu? Mjög auðvelt ef farið er eftirsettum reglum. Hverjar eru, að þínu mati, áhugaverðustu heimildirnar í Skjalasafni Vestmannaeyja? Mér finnst einkaskjölin áhuga- verðust, þ.e.a.s. skjöl sem koma til safnsins frá einstaklingum úti í bæ því að persónusagan er skemmtilegasti hluti sögunnar. Eitthvað að lokum? Góða helgi. Nýfædí% estmannaeyingar ?cf Þann 8. ágúst eignuðust Ása Ingibergsdóttir og Sigmundur R. Rafnsson dóttur. Hún vó 16 merkur og var 51 sm að lengd. Hún fæddist á fæðingardeild Landsspítalans í Reykjavík. Ljósmóðir var Björg Pálsdóttir. Drencfurj n % ;• 'Áp'- Þann 13. september eignuðust Dís Sigurgeirsdóttir og Jónas Jóhannsson son. Hann vó 16 merkur og var 54 sm að lengd. Með honum á myndinni em stóru systur hans Elín Anna og og Gabríela. Fjölskyldan býr í Hafnarfirði. Á dofinni t 30 og 31. oldóber Eimskip með listina til Eyja: Sýning Róðhildar Ingadóttur og Oskar Vihjólmsdótfur í gamla óhaldahúsinu. Síðasta sýningarhelgi, opið 14.00 til 18.00 28.29. og 30. okt. Heimsins minnsta bjórhótíð ó Mónabar. 30. oldóber Franskt glæsikvöld í Akóges 6. nóvember Villibróðarkvöld ó Fjörunni 13. nóvember Tónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja 25. nóvember Fyridestur í Rannsóknasetri Vestmannaeyja

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.