Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 28.10.1999, Page 8

Fréttir - Eyjafréttir - 28.10.1999, Page 8
8 Frhttir Fimmtudagurinn 28. október 1998 Þeir stærstu á landsvísu: fslelfur ehf. greiðir þriðju hæstu meðallaun á landinu Fjögur l'yrirtæki í Vestmanna- eyjum komast á lista yfir 230 stærstu fyrirtæki landsins árið 1998, samkvæmt lista í ritinu „100 stærstu“ sem Frjáis verslun gefur út. Þessi fyrirtæki eru Vinnslustöðin í 50. sæti, með 3.47 milljarða kr. veltu en var í 32. sæti árið 1997. ísfélag Vestmannaeyja er í 63. sæti með 2.63 milljarða veltu en var 1997 í 51. sæti. Sæhamar er í 199. sæti með 618 milljón kr. veltu en var 1997 í 189. sæti. Bergur Huginn er í 201. sæti með 600 milljón kr. veltu og hækkar úr sæti nr. 205 árið áður. Önnur fyrirtæki frá Vestmanna- eyjum komast ekki inn á lista yfir 230 stærstu fyrirtækin. I sama riti er skrá yfir þau 200 fyrirtæki sem greiða hæstu árslaun á Islandi og þar vænkar hagur Vest- mannaeyinga verulega. Þar er í 3. sæti yfir landið Isleifur ehf. með 6,43 milljónir, í 6. sæti Huginn hf. með 5,565 milljónir, í 7. sæti Bergur Huginn ehf. með 5,44 milljónir og í 17. sæti Sæhamar með 4,33 milljónir. Stðan eiga Vestmanna- eyjar ekki fulltrúa fyrr en í 91. sæti, þar er Vinnslustöðin með 3,1 milljón, Fiskmarkaður Vestmanna- eyja í 118. sæti með 2,9 milljónir og Gleraugnaþjónusta Linsunnar verður í Miðbæ, á morgun föstudag og Mikið úrval af nýjum gleraugu unsan Góð gleraugu - Gott verð Heilbrigðisstofnunin í Vestmanna- eyjum í 122. sæti með 2,8 milljónir. I 155. sæti er svo Herjólfur með 2,7 milljónir og fleiri komast ekki á blað frá Vestmannaeyjum. Af bæjarfélögum er Vestmanna- eyjabær í 12. sæti með 755 milljóna króna veltu á árinu 1998, rétt á eftir Seltjamamesi. Menn hafa nokkuð velt fyrir sér stærðarhlutföllunum í fyrirtækjunum fjómm, sem em nú að sameinast, Vinnslustöðinni, Isfélagi Vest- mannaeyja, Krossanesi og Óslandi. í ritinu „100 stærstu“ má sjá hver velta fyrirtækjanna hefur verið á árinu 1998. Vinnslustöðin 3.473 millj. ísfélag Vestm. 2.632 millj. Krossanes 746 millj. Ósland 297 millj. Rétt er að athuga að á þessu ári kunna tölumar eitthvað að hafa breyst en engu að síður ætti þetta að gefa nokkra hugmynd um stærð hvers um sig. Séu þessar tölur umreiknaðar í prósenlur lítur dæmið þannig út: Vinnslustöðin 48,6% ísfélag Vestm. 36,8% Krossanes 10,4% Ósland 4,2% Elías Friðriksson datt í lukkupottinn: Vann ferð til Parísar á landsleik s Frakka og Islendinga Okkar maður, Hermann Hreiðarsson, tók létt dansspor fyrir íslensku áhorfendurna. Elías J. Friðriksson, sjúkraþjálfari, datt heldur betur í lukkupottinn í haust. Hann ákvað að kaupa sér prentara við tölvuna sína, fór í Tölvun og festi kaup á einum af Canon-gerð. Þar með fór nafnið hans í pott sem tvö nöfn voru dregin úr nokkrum dögum síðar. Ung stúlka í Reykjavík var annar vinningshafinn en Elías hinn. Og verðlaunin voru ferð til Parísar á landsleik Frakka og Islendinga þann 10. október. „Auðvitað kom ekki annað til greina en að fara. Eg var í haust oft búinn að hugsa um hvað það væri nú gaman að fara á þennan leik. Svo bara kom þetta beint upp í hendumar á manni. Við Kolla ákváðum að fara bæði og keyptum farseðil fyrir hana. Við flugum til Pansar föstudaginn 8. október, beint flug, sérferð á leikinn, 150 manns og mikil stemmning í vélinni. Leikurinn var svo daginn eftir og áhorfendur um 80 þúsund. Það fór nú ekki mikið fyrir okkur Islend- ingunum þarna, ætli við höfum ekki verið um 400 því talsvert kom af íslendingum sem búa víðs vegar í Evrópu. En þarna vom líka 50 stuðningsmenn Brentford sem komu gagngert til að styðja sinn mann, Hermann Hreiðarsson, og þeir vom alveg meiriháttar. Ég held að menn hafi verið frekar raunsæir fyrir leikinn, það væri heldur stór biti að ætla sér að vinna sjálfa heimsmeistarana á heimavelli en menn gerðu sér vonir um góð úrslit. En staðan var ekki beint gæfuleg í hálfleik, tveimur mörkum undir og fátt sem benti til þess að úr myndi rætast, Frakkamir höfðu verið mun sterkari í fyrri hálfleiknum og maður var satt að segja ekkert of bjartsýnn þegar blásið var til seinni hálfleiks. Svo þegar 11 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik var staðan allt í einu orðin jöfn, 2-2. Það hafði verið feiknaleg stemmning hjá frönskum áhorfendum í fyrri hálfleik en svo þegar jöfnunarmarkið kom þá sló þögn á mannskapinn, ég segi ekki að það hefði mátt heyra saumnál detta en það lá við. Þetta var eins og vatnsgusa framan í þá, því að Frakkar urðu að vinna leikinn til að vera öruggir áfram. Og það er varla hægt að lýsa stemmn- ingunni hjá íslensku áhorfendunum þegar jöfnunarmarkið kom, það varð hreinlega allt vitlaust. En svo tókst þeim að skora sigurmarkið og maður fann hvað þeim létti þegar flautað var til leiksloka, ekki síst þar sem úrslit urðu þeim hagstæð í leik Rússa og Ukraínu- manna. En það er ekki oft sem allir áhorfendur ganga af leikvelli með bros á vör eins og þarna var. Frakk- amir anægðir með að komast áfram og Islendingamir ánægðir með einhverja bestu frammistöðu sem íslenskt landslið hefur náð, naumt tap fyrir sjálfum heimsmeistumnum á heimavelli þeirra. Fulltrúar okkar Vestmannaeyinga í landsliðinu stóðu sig með prýði, Birkir var góður í markinu eins og alltaf og eftir rólegan fyrri hálfleik hjá Hermanni átti hann frábæran seinni hálfleik. Hennann, Eyjólfur og Rúnar vom bestir íslendinganna í þessum leik. Ég held að þetta sé einhver eftir- minnilegasti knattspymuleikur sem ég hef séð, það var alveg frábært að vera þama og maður fór bæði glaður og ánægður heim.“ Sigurg. Franskt kynningarkvöld -kossheldir varalitir og eðalvín Snyrtistofan Farðinn stendur fyrir frönsku kvöldi í Akógeshúsinu laugardagskvöldið 30. október þar sem kynntar verða Guerlain snyrtivörur, eðalvín, bflar og aðrar franskar vörur. AUir eru velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir, að sögn Ragnheiðar Borgþórsdóttur, húð- og förðunarfræðings og eiganda Farðans, og verða allir leystir út með gjöfum frá Farðanum og Guerlain. Ragnheiður er nýbyrjuð að vera með Guerlain vörur og er uppákoman í Akóges haldin til að kynna vömmar. „Guerlain vömr komu fyrst á markaðinn fyrir síðustu aldamót. Fyrirtækið er með mjög breiða línu sem hentar bæði fyrir ungar konur og eldri. Gott er að vinna með vörumar og er úrvalið mjög fjölbreytt en Guerlain hefur kremlínu, förðunarlínu og ilmlínu og innan hennar er baðlína. Vömmar em mjög drjúgar,“ segir Ragnheiður, „og em varalitimir t.d. mjög kossheldir og haldast á allan daginn." Kynningin hefst klukkan 21.00 og verður gestum boðið upp á Coriolan og Samsara ilm við innganginn. Þá fá gestimir Pinot noir rauðvín, Pinot blanco hvítvín og Perrier ölkelduvatn. Einnig verða á boðstólnum léttar veitingar í boði Farðans, veitingahússins Fjömnnar og Magnúsar- bakaris. Fimm módel á öllum aldri sýna förðun og að því loknu verður tískusýning þar sem föt ungs fatahönnuðar, Selmu Ragnarsdóttur sem er frá Eyjum, verða kynnt. Síðan verður gestum boðið upp á kaffi, desertvínið Pinetau des charentes, Uni Cognac og Valrona súkkulaði. Kynning verður á Issima kremlínunni og Blue Voyage frá Guerlain. Tvö módel sýna nýja gull- og silfurlínu sem er jólalfnan í förðun frá Guerlain. Að lokum fá allir gestir gjafir frá Farðanum og Guerlain. „Þetta er einstakt tækifæri því þetta kvöld verður ekki endurtekið," segir Ragnheiður. Hún hefur áður staðið fyrir kynningarkvöldum af svipuðu tagi og kallað konukvöld og hafa konurnar þá þurft að borga aðgangseyri. Að þessu Ragnheiður í Farðanum, tilbúin í allt franskt. sinni er kvöldið ætlað báðum kynjum og aðgangur ókeypis. Fulltrúi Guerlain á Norðurlöndunum var mjög hrifinn af hugmynd Ragnheiðar að halda kynningu á frönskum vömm í Vestmannaeyjum og gaf Guerlain Farðanum því 350 gjafir sem koma beint frá París. Frönsk stemmning mun ríkja í Akógeshúsinu á laugardagskvöld því frönsk tónlist verður leikin, sýnd verða brot úr frönskum bíómyndum, Gilbert Krebs verslunar- fulltrúi franska sendiráðsins verður á staðnum og fyrir framan húsið verða Renault bflar til sýnis.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.