Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 28.10.1999, Side 14

Fréttir - Eyjafréttir - 28.10.1999, Side 14
14 Fréttir Fimmtudagurinn 28. október 199 Það er lygilega mikið af einstæðu fólki á Islandi -segir Hulda, sem rekur kynningarþjónustu fyrir fólk Hulda: Til mín leitar fólk af báðum kynjum og öllum stéttum, verkamenn jafnt og háskólamenn. í áranna rás hafa ýmsar aðferðir verið við hafðar hjá þeim sem eru að leita sér að förunaut af hinu kyninu, bæði til frambúðar svo og til skemmri kynna. Hvaðelst mun sú aðferð forfeðra okkar sem rotuðu konur með kylfu og báru þær svo heim í helli sinn. Eftir því sem konum óx ásmegin kom í ljós að þessi aðferð gagnaðist illa og var ólíkleg til vinsælda. Raunar hefur á seinni árum komið fram aðferð ekki ósvipuð þessari og er einkum notuð af þeim aðilum af sterkara kyninu sem einhverra hluta vegna eiga í erfíðleikum með að ná sér í förunaut. Að vísu rota þeir ekki konur með kylfu heldur hella í glös þeirra ólyfjan, sem ber heitið Rohypnol og hefur svipaða verkun og kylfuhögg, þ.e. að konan man fátt sem gerist eftir það. Þessi aðferð er lítt þokkuð af konum, svipað og kylfumar í eina tíð. Eftir því sem tímar liðu tóku bæði menn og konur upp öllu geð- þekkara atferli við að finna sér förunaut og sú aðferð sem hvað þekktust hefur verið gegnum tíðina, a.m.k. hin seinni ár, er að reyna að hitta á slíkan á fjölförnum stöðum, einkanlega skemmtistöðum. Og þótt mörg hin ágætustu sambönd hafi sprottið af slíkum kynnum er því ekki að neita að margur hefur orðið á því leiður að sækja slíka staði enda því ekki að neita að slík sambönd geta reynst broguð, ekki síst ef göróttir drykkir hafa verið í spilinu sem oft fylgir áðurnefndum stöðum. Því hefur þeim fjölgað hin seinni ár sem leitað hafa annarra leiða til að finna sér förunaut og hafa reynt leiðir sem eru tæknilega fullkomnari. Á Intemetinu er unnt að komast í slík sambönd gengum aðila sem sérhæfa sig í að leiða saman fólk og í DV er á degi hverjum að finna álitlegt safn auglýsinga sem hníga að hinu sama, ýmist til skyndikynna eða til einhvers varanlegra. Mörg góð sambönd hafa myndast Á dögunum birtist ein slík auglýsing í Fréttum og hljóðaði á þessa leið: „Ertu einn/ein, viltu breyta því? Hvemig væri að athuga lýsingar- listann frá Trúnaði? Athugaðu málið. Sími 587 0206, netfang: vennus@simnet.is. Með auglýsingunni fylgdi svo- hljóðandi bréf til kynningar á Trúnaði: Eg heiti Hulda og er í Reykjavík með kynningarþjónustu íyrir fólk frá 18 ára aldri sem vill kynnast öðm fólki með vajanleg sambönd í huga. Eg hef verið með þessa þjónustu í nokkur ár og hefur hún gefið mjög góða reynslu. Þjónustan byggist á því að fólk skráir sig og ég læt lýsingar á viðkomandi í lista. Sé talað um konur, þá kemur fram lýsing á konunni og hennar áhuga- málum og óskum. Maðurinn sem fær listann með lýsingunni, skrifar kon- unni lítið kynningarbréf og sendir það til Trúnaðar sem síðan sendir bréfið til viðkomandi konu. Hún svarar þá væntanlega manninum og þá fyrst fær hann að vita hver hún er og þá ákveða þau hvort þau tala meira saman eða ekki. Maðurinn getur líka skráð sig og þá fer lýsing á honum í sams konar lista, sem konan getur fengið og þá getur hún skrifað honum lítið kynningarbréf eins og hann. En hún getur líka það sem maðurinn getur ekki, fengið nafnið hans og símanúmer og hringt beint til hans. Aftur á móti kemur aldrei fyrir að maðurinn fái upplýsingar um hver konan er í gegnum Trúnað. Hann verður að skrifa til hennar til að ná sambandi. Konan getur því verið alveg róleg og örugg með að nafn hennar er ekki gefið upp. í gegnum Trúnað hafa orðið mörg mjög góð sambönd og enn fleiri hafa fundið sinn lífsförunaut og gengið í hjónaband. (Því miður hef ég ekki tölu á öllum þeim börnum sem orðið hafa til fyrir minn tilverknað). Það er alltaf pláss fýrir fleiri konur og karla á listanum og því væri bara gaman að heyra frá þeim sem hafa orðið einir, einhverra hluta vegna og sjá til hvort ekki finnst góður samferðafélagi sem myndi lífga upp á tilveruna. Það gæti nú verið gaman íyrir konu, sem er ein, að eiga von á bréfi frá manni og eins fyrir hann að eiga von á símtali frá konu, svona allt í einu. Þetta bréf vakti nokkra forvitni okkar á Fréttum, enda þótt flestir sem þar starfa eigi hina ágætustu lífsförunauta þótti okkur rétt að kanna þessa þjónustu eilítið nánar. Mörg mistök í upphafi Hulda er miðaldra kona í Reykjavík sem hefur rekið þjónustuna Trúnað síðan 1992. Raunar er fyrirtækið eldra, var stofnað árið 1983 af tékkneskum manni sem bjó þá hér á landi. En þegar hagir fólks tóku að batna í Tékklandi, langaði hann til ættjarðarinnar og flutti búferlum. En hann gat ekki hugsað sér að þessi þjónusta legðist niður og þar sem hann var málkunnugur Huldu, varð það úr að hún tók við fyrirtækinu og sér um það enn í dag. Hulda vill ekki gefa upp fullt nafn, hún segist kynna sig sem Huldu, eftimafnið skipti ekki máli, enda sé hún aðeins tengiliður milli fólks. Persóna hennar sjálfrar skipti þar minnstu máli. „Eg gerði einhver ósköp af mistökum í upphafi. Sumt af því var bara heill brandari. Hver veit nema ég skrifi einhvem tíma bók um það allt saman. En svo komst þetta fljótlega í lag og ég hef afskaplega gaman af þessu,“ segir Hulda. Hvers konar fólk leitar eftir þessari þjónustu? „Ekki yngra en 18 ára. Mest er af fólki yfir þrítugt, allt upp í sjötíu ára. Margt af þessu fólki er búið að missa maka sinn og svo em aðrir sem em bara einmana. Það er lygilega mikið af einstæðu fólki á Islandi. Þegar ég tala um einstætt fólk, þá á ég ekki við að fólk sé án fjölskyldu eða vina. Fólk getur átt stóra fjölskyldu en samt verið einstætt, vantar náinn félaga til að deila með gleði og sorgum. Og til mín leitar fólk af báðum kynjum og öllum stéttum, verkamenn jafnt og háskólamenn. Háskóla- mennimir eiga það til að vera svolítið feimnir, finnst mér. Og svo em sumir hálfhræddir við að tala við mig, halda að þetta sé eitthvað í ætt við símanúmerin sem byrja á 905 og em auglýst í DV. En þessi þjónusta á ekkert skylt við það.“ Mín þjónusta er á öðru sviði En kemttr aldrei jyrir að fólk hefur samband við þig, fólk sem er að leita eftir slíkum skyndikynnum ? ,Jú, það er oft spurt um slfkt. En þeim get ég ekki hjálpað, mín þjónusta er á öðm sviði. Eins hefur verið vandamál með samkynhneigt fólk. Það hefur haft samband við mig en verið hrætt við að gefa upplýsingar, einhverra hluta vegna. En það þarf enginn að óttast það, nafnið á fyrirtækinu er Trúnaður og það lýsir kannski best því sem fram fer hér.“ Hvemig er dœmigerð lýsing, t.d. á konu sem vill ná sambandi við karlmann? „Hún gæti t.d. verið svona: 36 ára fráskilin verkakona, 170 cm á hæð, 70 kg á þyngd, dökkhærð og brúneyg, með tvö böm, átta og tíu ára, áhugamál fjallaferðir, reykir ekki. Býr á Suðurlandi.Vill kynnast traustum manni á svipuðum aldri. Konur leita að traustum mönnum Koma fram sérstakar óskir, t.d. um reglusemi, ákveðna líkamsbyggingu eða þess háttar? „Konur leita fyrst og fremst að traustum mönnum. Og það er áberandi að þeir mega ekki vera í mikilli drykkju eða eiga við áfengis- vandamál að stríða. Og í rauninni er svipað uppi á teningnum hjá körlunum, þeirra óskir em ekki svo frábrugðnar." Erumargir á lista hjá þér? „Eg er með lista yfir konur og á honum em um 350 lýsingar. Karla- listinn er ekki jafnstór, eitthvað um 80 lýsingar." Hvað kostar svo þessi þjónusta ? „Karlar borga 2000 krónur fyrir að komast á lista en konur borga ekkert. Ástæðan er sú að karlamir em yfirleitt betur stæðir fjárhagslega og eiga auðveldara með þetta. Og karlmaður, sem vill fá lista yfir konumar, greiðir 2800 krónur fyrir hann. Samsvarandi listi yfir karla, sem konur geta fengið sendan, kostar 500 krónur." Hefur þú þitt lifibrauð af þessari þjónustu? „Nei, það geri ég ekki. Eg dunda við fleira, t.d. tek ég að mér að strekkja dúka fyrir fólk og eins tek ég að mér að passa bamabömin. Eg næ svona nokkum veginn að borga reikningana með þessu.“ Karlamir voru stundum ágengir Nú geta konur hringt í karlmenn, sem þeim líst á en karlar ekki hringt í konur. Hvers vegna er kynjunum mis- munað? „Eg hef orðið ágæta reynslu af þessu og því miður gekk það bara ekki upp að gefa körlunum upp símanúmer. Það var prófað en gekk ekki. Einhverjir þeirra áttu það til að vera ágengir, svo að þessi háttur var tekinn upp." En hafa konur þá aldrei misnotað aðstöðu sína? „Sjálfsagt hefur það gerst. En það er í svo litlum mæli að ekki hefur verið til vandræða. Það hefur gengið mjög vel að hafa þennan hátt á. Ég er ekki að mismuna kynjunum með þessu, það er bara staðreynd að konumar em yfir heildina þroskaðri, ef hægt er að nota það orð yfir þetta.“ Fylgist þú með hvemig þetta hefur gengið hjáfólki sem náð hefur saman fyrir þitt tilstilli? „Ekki þannig að ég haldi uppi njósnum um fólk, það geri ég ekki. En ánægt fólk hefur haft samband við mig og ég veit að fjöldinn allur af konum og körlum hefur fundið sér lífsfömnaut með minni aðstoð og það er mér gleðiefni," segir Hulda að lokum. Sigurg.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.