Fréttir - Eyjafréttir - 28.10.1999, Side 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 28. október 1999
Jens er ekkí þess vírði
aðeltastvið
sesir Þorsteinn Gunnarson hjá ÍBV um nýráðinn þjálfara
Landakirkja
- lifandi samfélag!
Fimmtudagur 28. október:
Kl. 14.30. Helgistund á
Heilbrigðisstofnuninni,
setustolunni 2. hæð. Allir
heimsóknargestir velkomnir.
Kl. 17.30. TTT- starfið.
Mætum vel og tökum rneð
okkur vini.
Kl. 18.05. Kyrrðar- og
bænarstund. Taize-söngur,
kristin íhugun og fyrirbæn í
20 mín.
Föstudagur 29. október:
Kl. 10.00. Foreldramorgunn
fyrir mæður og feður með
ungum bömum sínum.
Laugardagur 30. október:
Kl. 14.00.
Útfararguðsþjónusta Ingólfs
Matthíassonar.
Sunnudagur 31. október:
Kl. 11.00. Bamaguðsþjónusta
fyrir háa sem lága. Foreldrar
hvattir til þátttöku eins og
verið hefur.
Kl. 14.00. Messa, með skím
og altarisgöngu, á
siðbótardaginn. Sýnum
yfirbót og gemm söfnuðinn
vel sýnilegan með góðri
kirkjusókn. Kaffisopi og
spjall eftirmessu.
Kl. 20.30. Æskulýðsfundur í
Safnaðarheimilinu.
Mánudagur 1. nóvember:
Kl. 20.00. Vinnufundur
Kvenfélags Landakirkju.
Þriðjudagur 2. nóvember:
Kl. 16.30. Kirkjuprakkarar.
Vonandi verður ekki sama
slagveðrið og síðast.
Miðvikud. 3. nóvember:
Kl. 14.40- 17.30.
Fermingarfræðslan. Hver
hópur mætir á sínum tíma.
Kynning a fermingannótinu.
Kl. 17.30. Æfing hjá Litlum
lærisveinum.
Kl. 20.00. Opið hús í
KFUM&K húsinu við
Vestmannabraut.
Fimmtud. 4. nóvember:
Kl. 11.00. Helgistund í
Hraunbúðum. Allir
velkomnir.
Kl. 17.30. TTT- starfið á
hæsta gír.
KI. 18.05. Kyn-ðar-og
bænarstund. Taize-söngur,
kristin íhugun og fyrirbæn í
20 mín.
Hvítasunnu
KIRKJAN
Fimmtudagur kl 20.30
Biblíulestur: Söfnuður
Guðs- Guðni Hjálmarsson
laugardagur kl 20.30
Bænasamkoma - Hjálmar
Guðnason
Sunnudagurinn kl 15.00
Vakningarsamkoma með
fjölbreyttri þátttöku unga
fólksins. ræðumaður Guðni
Hjálmarsson
Þriðjudagur kl 17.30
Krakkakirkjan fyrir öll böm á
öllum aldri undir stjóm Sól-
rúnar Bergþórsdóttur
Allir hjartanlega velkomnir
Aðventkirkjan
Föstudagur 29. október
Kl. 20. Myndasýning - Net 98
Efni: Dæmir guð okkur?
Laugardagur 30. október
Kl. 11.00 Biblíurannsókn.
Kl. 12.00 Guðsþjónusta
Gestur helgarinnar. Eric
Guðmundsson.
Allir velkomnir.
Knattspymudeild ÍBV sendi frá sér
á sunnudag fréttatilkynningu þess
efnis að Jens Martin Knudsen, fær-
eyski landsliðsmarkörðurinn í knatt-
spymu, hefði gengið til liðs við
félagið. Þessi frétt var hins vegar
dregin til baka í harðorðri greinargerð
á mánudag þar sem skýrt er frá því að
markvörðurinn hafí gefið IBV afsvar
að kvöldi sama dags. Knattspyrnulið
ÍBV er því nánast markmannslaust um
þessar mundir þar sem Birkir
Kristinsson landsliðsmarkvörður hefur
ekki gefið ákveðið svar um það hvort
hann ætli sér að spila áfram með
liðinu. Önnur leikmannamál liðsins
eru eitthvað að skýrast þó enn sé
ákveðin óvissa _ í málum Kristins
Hafliðasonar og Ivars Ingimarssonar.
í greinargerðinni frá knattspymu-
deildinni kemur fram að samningur,
undirritaður af fulltrúum þeirra, hafi
verið sendur til Færeyja þar sem Jens
Martin hafi tekið við honum og lýst
yfir ánægju sinni með hann og ekki
hafi komið neinar mótbámr frá honum
þegar talað var um að senda út
áðumefnda fréttatilkynningu. Þegar
til kastanna kom hafi Jens Martin
hinsvegar tilkynnt að honum hafí
borist betra tilboð og hann væri því
ekki á leið til Eyja. I greinargerðinni er
jafnframt vitnað í DV mánudaginn 25.
október þar sem fram kemur að hann
hafi verið ráðinn þjálfari Leifturs.
Þorsteinn Þorvaldsson, formaður
knattspymudeildar Leifturs, segir DV
fara með rangt mál þegar þeir greini
frá ráðningu Jens Martins sem þjálfara
„ Það var allt munnlegt sem var okkar
á milli,“ segir Þorsteinn Þorvaldsson,
„það var ekki búið að skrifa undir
neitt.“ Hann bætir jafnframt við að
Leiftursmenn hafi vitað af áhuga
annars íslensks liðs á markmanninum
en ekki vitað hvaða lið það var. Hann
lýsir því jafnframt yfir að enginn kali
sé á milli liðanna og vonar að svo
verði ekki því alltaf hafi verið gott
samstarf milli félaganna tveggja.
Knattspymudeild ÍBV er harðorð í
garð markvarðarins í greinargerð sinni
og segja framkomu hans óheiðarlega.
í greinargerðinni segir orðrétt: „Fyrir
utan það að ganga á bak orða sinna
um að samningurinn við ÍBV væri
klár og hann hefði undirritað eintak í
höndunum frá ÍBV, varð hann uppvís
af því í tvígang að segja bæði
varaformanni IBV og framkvæmda-
stjóra ósatt.“
Aðspurður, hvort IBV hygði á
einhverjar frekari aðgerðir í sambandi
við mál Jens Martins, hafði Þorsteinn
Gunnarsson, framkvæmdastjóri IBV,
aðeins eitt um það að segja: „Hann er
ekki þess virði að eltast við eftir þessa
framkomu.“
„Við höfum verið í sambandi við
Birki [Kristinsson],“segir Þorsteinn ,
„og höldum í þá von að hann komi
þrátt fyrir allt. Ef svo fer að það bregst
þá verðum við að meta stöðuna upp á
nýtt. Við höfum gefið [honum] frest
með að svara okkur endanlega og
málið skýrist um miðjan næsta
mánuð." Aðspurður, hvort Gunnar
Sigurðsson, fyrrverandi leikmaður
liðsins, sem leikur nú hjá IK Brage í
Svíþjóð, væri líklegur kandídat í stöðu
markvarðar liðsins, sagðist Þorsteinn
ekki geta svarað því.
Þegar spurt er um frekari leik-
mannamál liðsins segir Þorsteinn að
fyrirliðinn Hlynur Stefánsson hafi
ekki tilkynnt formlega að hann verði
áfram hjá liðinu en ýmislegt bendi til
þess að svo verði. Hann segir
jafnframt að Ivar Ingimarsson sé
eftirsóttur og þá aðallega af liðum
Leifturs
erlendis, þó engin formleg tilboð hafi
borist. „Hann [Ivar] er búinn að vera í
láni á Torquay og þeir hafa sýnt áhuga
á því að gera tilboð í hann.
Síðan er það Brentford, liðið sem
Hermann [Hreiðarsson] var hjá, þeir
eru mjög áhugasamir og við eigum
von á tilboði frá þeim.“
Einnig getur Þorsteinn þess að
ýmsar hugmyndir hafi verið á reiki í
fjölmiðlum um hugsanlegt tilboð
enska knattspymuliðsins Stoke, í ljósi
þess að íslenskir fjárfestar hafa keypt
hlut í liðinu, en hann segir að ekkert
hafi borist ÍBV úr þeirri áttinni. Mál
Kristins Hafliðasonar er heldur ekki
komið á hreint, samkvæmt Þorsteini.
„Hann fékk boð um að koma út til
Raufoss í Noregi og Hácken í Svíþjóð
og kom nú nú fyrir helgi og er nú að
skoða sín mál. Ef hann fer ekki út þá
verður hann að öllum líkindum hjá
okkur.“
Þorsteinn segir að ungu leik-
mennimir fái meiri möguleika á næsta
tímabili. Nýráðinn þjálfari, Kristinn R.
Jónsson, hafi þjálfað yngri mennina í
2. flokki og þekki því þá vel.
Handknattleikur
5. flokkur kvenna
yfirspiluðu andstæóinga sína
Urn síðustu helgi léku stúlkurnar í
5. flokki ÍBV í sínu fyrsta fjöl-
liðamóti vetrarins og fór keppnin
fram í íþróttahúsinu á Seltjamanesi.
ÍBV sendi tvö lið til keppni, ÍBV1 og
ÍBV 2 sem samanstanda af 20
sprækum stúlkum. Bæði lið sýndu
góð tilþrif á mótinu og þá sér í lagi
stúlkurnar í ÍBV1 sein gerðu sér lítið
fyrir og unnu mótið örugglega. Það
var ekki fyrr en í úrslitaleiknum að
stúlkurnar fengu einhverja mót-
spymu. Lið ÍBVl lék í riðli með
Fylki, KA og Aftureldingu frá
Mosfellsbæ. Eyjastúlkur mættu liði
Fylkis í l'yrsta leik og sigruðu 26-0,
annar leikurinn var gegn liði
Aftureldingar sem vannst ömgglega
34-1 og svo vom stúlkurnar úr KA
lagðarað velli 12-7. í undanúrslitum
mættu Eyjastúlkur liði FH sem var
talið með eitt af sterkustu liðum
mótsins, en ÍBV stúlkur mættu
tvíefldar til leiks og lögðu FH
stúlkur að velli 10-5. I úrslitaleik var
komið að liði Stjörnunnar að reyna
að stöðva sigurgöngu ÍBV en þeim
varð ekki að ósk sinni og Eyjastúlkur
sigmðu 7-6 eftir nokkuð spennandi
lokamínutur og þar með varð sigur í
fyrsta fjölliðamóti vetrtnins að veru-
leika.
2. flokkur karla:
Eiga eftir aó stilla sína strengi
í síðustu viku léku strákamir í 2.
llokki karla tvo leiki. Fyrri leikinn
léku þeir gegn FH hér heima sl.
laugardag en seinni leikinn léku þeir
gegn Gróttu/KR á Seltjturianesi sl.
mánudag. í báðum þessum leikjtim
þurftu strákarnir að sætta sig við tap,
20-25 fyrir FH og 27-24 gegn
Gróttu/KR. Strákamir eiga nokkuð
eftir að bæta leik sinn og stilla sarnan
strengina svo náist gott lið. í Eyja-
liðinu eru efnilegir leikmenn sem
eiga eftir að láta að sér kveða í vetur
ef þeir halda áfram að æfa og leggja
sig alla fram. Hópurinn í heild sinni
er sterkur og með Óskar Freyr og
Boris Bjama sem þjálfara liðsins þá
þurfa þessir stráktu- ekki að kvíða
fyrir vetrinum og framtíðinni.
Næst á dagskrá hjá
handknattleiksdeild karla
Fimmtudaginn 28. okt. Bingó hjá
unglingaráði IBV í Þórsheimilinu
Laugardag og sunnudag fyrsta
fjölliðamót 6. flokks karla og
kvenna. StrákamirleikaíVíkinnien
stúlkumar í Smáranum í Kópavogi.
\\7~y • 1f?r» io9
5. flokkur kvenna - ÍBV 2
y@iwV
Ná árangri síðar í vetur
IBV2 lék með Framl, HK og
Stjömunni 1 í riðli. Þessi riðill var
mjög sterkur og má geta þess að
Fram og Stjaman spiluðu til úrslita í
mótinu og hölnuðu því í tveimur
efstu sætunum. Eyjastúlkur komust
liins vegar ekki áfram úr riðlinum í
úrslitakeppnina þar sem þær töpuðu
fyrir Fram og Stjörnunni en sigruðu
lið HK sannfærandi. Eyjastúlkumar
í ÍBV2 eru flestar enn þá í 6. flokki
og vom því að keppa gegn eldri
stúlkum, en ef þær halda áfram á
sömu braut eiga þær eftir að ná mun
lengra síðar í vetur. Þjál farar ÍBV
stúlknanna í 5. flokki eru Stefanía
Guðjónsdóttir og Mikhail Akbashev
og er ljóst að saman em þau að gera
virkilega góða hluti með stúlkurnar
og vonandi heldur liðið áfram á sömu
braut.
5. flokkur karla
Hörmung í Mosfellsbæ
Strákarnir léku sitt fýrsta fjölliðamót
vetrarins í Mosfellsbæ og léku þeir í
riðli með KA, Fram og IR. Það er
skemmst frá því að segja að öll
utngjörð mótsins var hrein hörmung.
Strákamir fóru með seinni ferð
Herjólfs á föstudegi og byrjuðu að
keppa klukkan 20.00 og léku sinn
þriðja og síðasta leik í mótinu
kl.23.00 sama kvöld og þar með var
þátttöku þeirra lokið þar sem þeir
töpuðu tveimur leikjum og unnu einn
leik. Það er vonandi að svona
vinnubrögð verði ekki endurtekin og
það er slæmt að þurfa alltaf að senda
yngstu krakkana okkar upp á land til
að taka þátt í þessum móturn. En eins
og staðan er í dag getur ÍBV ekki
haldið svona mót þar sem við
Vestmannaeyingar getum ekki boðið
upp á nógu marga velli eins og til
þarf, því Iþróttahús Vestmannaeyja
er of lítið til þess og samkvæmt því
skipulagi sem liggur nú fyrir er ljóst
að framhald verði á því næstu
áratugina.