Fréttir - Eyjafréttir - 16.03.2000, Síða 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 16. mars 2000
Eigum erindi á stærri markað
-segiMljlafur Elísson sparisjóðsstjóri um útrás Sparisjóðsins upp á fastalandið
Útrás Sparisjóðs Vestmannaeyja
upp á fastalandið hefur vakið at-
hygli því þarna er brotið blað í sögu
Sparisjóðsins sem fram til þessa
hefur takmarkað starfsemina við
sína heimabyggð. Nýleg lagabreyt-
ing gerir Sparisjóði Vestmanna-
eyja þetta mögulegt en það vekur
lfka athygli að með opnun Spari-
sjóðs á Selfossi er verið að fara inn á
nýjar brautir með samvinnu við
Kaupþing hf. og SP-fjármögnun hf.
Olafur Elísson, sparisjóðsstjóri,
segir að Sparisjóður Vestmannaeyja
hafi staðið frammi fyrir því að þurfa
að leita sér að stærra starfsumhverfi.
„Stjórn Sparisjóðsins taldi þetta nauð-
synlegt. Þrátt fyrir að sparisjóðirnir
hafi Sparisjóðabankann sem sterkan
bakhjarl ef um stærri viðskipti er að
ræða krefst aukin samkeppni á þessu
sviði þess að við reynum að ná til sem
flestra viðskiptavina á sem fjölbreytt-
ustu sviði,“ sagði Ólafur í samtali við
Fréttir.
„Önnur helsta ástæðan er að engan
sparisjóð er að finna frá Hornafirði til
Reykjavíkur nema í Vestmannaeyjum.
Síðast en ekki síst þá teljum við okkur
eiga erindi inn á þennan rnarkað,"
bætti Ólafur við.
Þrátt fyrir að engan Sparisjóð sé að
finna á Selfossi er þar öflug banka-
sterfsemi. Eru allir höfuðbankamir
með útibú á Selfossi og Landsbankinn
er með þau tvö. Ólafur sagðist ekki
óttast svo mjög samkeppnina. „Við
förum inn á markaðinn með tveimur
mjög öllugum fyrirtækjum, sem em
SP-Qármögnun sem er fjármögnunar-
leigufyrirtæki og Kaupþingi sem er
alþjóðlegt fjáramálafyrirtæki. Við
erum líka að bjóða upp á sérhæfða
bankaþjónustu sem byggir á því að
gera hlutina með öðrum hætti en þeir
sem fyrir eru. Starfsemin takmarkast
ekki við inn- og útlán heldur ætlum
við að bjóða mun fjölþættari þjónustu.
Má í því sambandi nefna fjármögn-
unarleigu, kaupleigu og rekstrarleigu
auk hefðbundinna útlána. Þá verður
boðið upp á sterkari þjónustu í
fjárvörslu og ráðgjöf þannig að sam-
eining þjónustu þessara þriggja aðila í
einni fjármálastofnun nýtist viðskipta-
vinunum til fulls. Markaðshlutdeild
Sparisjóðanna á landinu öllu er um
25% og teljum við að með hægðinni
getum við náð eðlilegri hlutdeild á
nýju starfssvæði."
Ólafur bendir líka á að sérstaða
sparisjóðanna komi berlega í ljós nú
þegar rætt er um sameiningu bank-
anna í stærri einingar. „Okkar styrkur
er „heimastjórn" á hverjum stað sem
er nær viðskiptavininum og getur
komið sér vel og mörgum finnst
þægilegt. Auðvitað getur nálægðin
gert mönnum erfitt fyrir en ég held að
kostimir séu fleiri og þá ætlum við að
nýta okkur.“
Sparisjóðurinn á Selfossi kemur til
með að starfa í allt öðru umhverfi en
Sparisjóður Vestmannaeyja hefur gert.
I Vestmannaeyjum byggist allt á því
hvemig fiskast en á Selfossi er jrað
þjónusta, mikið við landbúnað og
ferðamenn, sem er undirstaða at-
vinnuh'fsins. „Við teljum þetta mikinn
kost því þarna erum við að dreifa
áhættunni. Fyrirtækjaflóran er allt
önnur á Árborgarsvæðinu en í
Vestmannaeyjum. Þá má geta þess að
fjölgun íbúa í Árborg hefur verið
hlutfallslega meiri en á höfuð-
borgarsvæðinu sem styrkir okkur í
þeirri trú að við séum að gera rétt,“
sagði Ólafur að lokum.
Sparisjóðurinn á Selfossi verður í
um 150 fm húsnæði að Austurvegi 6.
Starfsmenn verða allt að fjórir og er
áætlað að opna á vordögum.
EINAR og Hafsteinn leiða Rauðu vonina.
Nemendafélag Framhaldsskólans:
Rauða vonin sigurvegari
I síðustu viku voru kosningar í
Nemendafélagi Framhaldsskólans
um það hverjir skyldu skipa stjórn
félagsins á næsta skólaári.
Þrír listar voru í kjöri og urðu úrslit
þau að listi, sem nefndist Rauða
vonin, sigraði með nokkrum mun.
Alls greiddu 100 nemendur atkvæði
af um 150 sem atkvæðisrétt höfðu og
þykir það ágæt kjörsókn. Rauða
vonin hlaut um 50% atkvæða, hin 50
prósentin skiptust nokkuð jafnt á hin
tvö framboðin og var því sigurinn
ótvíræður.
Stjóm Nemendafélagsins næsta vetur
skipa þvfþessi:
Hafsteinn D. Þorsteinsson, formaður
Hrafnhildur Bjömsdóttir, gjaldkeri
Einar H. Sigurðsson, meðstj.
Thelma Tómasdóttir, meðstj.
Sindri F. Ragnarsson, meðstj.
Tveir fulltrúar nýju stjórnarinnar,
þeir Hafsteinn og Einar, sögðu í
viðtali við Fréttir að nafnið Rauða
vonin hefði ekkert með pólitískan
litarhátt að gera enda væri þetta ekki
pólitískt framboð. Þeir þökkuðu
þennan góða árangur því að
stefnuskrá þeirra hefði verið öllum
ljós. Þau hygðust halda áfram því
ágæta félagslífi sem verið hefði í vetur
ásamt því að brydda upp á nýmælum
á næsta skólaári.
Meðal þess sem ný stjóm hyggst
beita sér fyrir er skólaferðalag eða öllu
heldur menningarferð á næsta hausti.
Þá vilja þau efla hlut menningar og
lista í skólanum, endurvekja ræðu-
keppni Morfi's, halda svokölluð
þemaböll og stuðla að fleiri heim-
sóknum framhaldsskólanema ofan af
landi svo eitthvað sé nefnt.
ARNAR Sigurmundsson
stjórnarformaður Sparisjóðs
Vestmannaeyja, Hafliði
Kristjánsson Kaupþingi, Hjalti
Kristjánsson SP-fjármögnun,
Ólafur sparisjóðsstjóri, Pétur
Hjaltason framkvæmdastjóri
og eigendur hússins þeir Steinar
Arnason og Guðmundur
Sigurðsson. Myndin var tekin
þegar Sparisjóðnum var
afhentur sinn hluti í húsinu og
um leið var kynnt að Pétur
Hjaltason yrði forstöðumaður
Sparisjóðsins.
HÚSIÐ að Austurvegi 6.
Pöbbinn í bænum
Fimmtudagur
Diskótek DJ-lce heldur uppi fjörínu til kl. 01:00
Föstudagur og laugardagur
Víkingasveitin
frábæra með Hermanni inga og
Smára heidur uppi „hrilijant" stuði
Höfðinn
Árshátíð Hressó
á Höfðanum laugardaginn 18. mars
Forsala aðgöngumiða á Lundanum á kvöldin
Húsið opnað fyrir matargesti kl. 19.00.
Almennur dansleikur á eftir frá kl. 24.00