Fréttir - Eyjafréttir - 16.03.2000, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 16. mars 2000
Fréttir
17
Agnes Ósk Þorsteinsdóttir meðal þátttakenda í Ungfrú ísland.is:
Claudia Schiffer krýnir sigurvegarann
Þann 25. mars næstkoniandi mun
fara fram fegurðarsamkeppnin
ungfrú Island.is í Perlunni, en það
er Linda Pétursdóttir fegurðar-
drotting heimsins „ever,“ sem
stendur fyrir keppninni. Ungfrú
Island.is keppnin táknar tímamót í
fegurðarsamkeppnum á íslandi.
Breytt viðhorf til fegurðar mun
móta keppnina. Stúlkurnar eru
ekki aðeins valdar eftir fegurð
heldur einnig eftir metnaði og
sjálfstæði.
Samfara keppninni mun fara fram
landssöfnun fyrir Ævintýraklúbbinn
sem starfrækir félagsstarf fyrir þroska-
hefta, einhverfa og tjölfatlaða. Starfið
er í formi hópa sem hittast einu sinni
til tvisvar í viku til að gera eitthvað
skemmtilegt. I félagsheimili klúbbsins
er látið reyna á sköpunargáfuna,
málað, skrifað og farið í leiki. Það sem
nú stendur starfinu fyrir þrifum er
plássleysi og því mun ágóði lands-
söfnunar, í samvinnu við Ungfrú
Island fegurðarsamkeppnina, renna til
húsakaupa og bættrar aðstöðu. Þeir
sem sækja Ævintýraklúbbinn koma
alls staðar af höfuðborgarsvæðinu og
eru frá sextán ára upp í áttrætt.
Klúbburinn stendur líka íyrir listahátíð
þroskaheftra og verður hún haldin í
annað sinn í mars árið 2000. Sú hátíð
er styrkt að hluta af Reykjavík Menn-
ingaborg og er unni í samvinnu við
menningarborgina. Sigurvegari
kvöldsins hlýtur mjög veglega vinn-
inga, háskólastyrkur að verðmæti
500.000 kr„ Ibook tölvu frá Aco,
hugbúnaðarnámskeið frá Land-
steinum, Bryan Tracy námskeið frá
Vegsauka, fataúttekt frá Gallerí
Sautján, gsm sími frá TAL og árskort
í líkamsrækt og dekurdagur frá
Baðhúsinu.
Eyjastúlkan Agnes Ósk Þorsteins-
dóttir mun taka þátt í keppninni, en
Agnes er á fyrsta ári í hárgreiðslunámi
í Iðnskólanum í Reykjavík. Agnes
Ósk er ekki alveg ókunnug þátttöku í
fegurðarsamkeppni, því hún v;u" kjörin
sumarstúlka Vestmannaeyja sem
haldin var á vegum Bylgjunnar, Eski-
momoels og Séð og Heyrt síðastliðið
sumar. Hún fór síðan í úrslita-
keppnina um sumarstúlkuna 1999 sem
haldin var á Akureyri. „Þó ég hafi
ekki unnið til verðlauna þar var mjög
gaman að taka þátt í þeirri keppni,“
sagði Agnes Ósk í spjalli við Fréttir.
Sextán stúlkur taka þátt í keppninni
um titilinn ungfrú Island.is og verður
henni sjónvarpað beint á Stöð 2.
Agnes Ósk sagði að haft hefði verið
samband við sig stuttu eftir jól og
spurt hvort hún vildi ekki taka þátt.
„Það var hringt í mig frá Eskimo-
models. Ég tók mér nú dálítinn
umhugsunartíma, því ég sá ekki alveg
hvemig ég ætti að koma þessu fyrir.
Það er mikið að gera í skólanum, en
svo ákvað ég að drífa mig því þetta er
skemmtilegt og góður mórall.“
Agnes Ósk segir að undirbúningur
fyrir keppnina sé nokkuð hefð-
bundinn, þó séu aðrar áherslur í
keppninni um ungfrú Island.is. „Þetta
er vistvæn keppni, þar sem miðað er
að því að hafa allt sem náttúrulegast
og svo mun súpermódelið Claudia
Schiffer koma til landsins og krýna
sigurvegarann," sagði Agnes Ösk.
AGNES Ósk er meðal 16 stúlkna sem taka þátt í Ungfrú ísland.is
Ungfrú Suðurland: Eyjastúlkur komust ekki áfram:
Skemmtileg og lærdómsrík reynsla
Aðalbjörg Jóhanna Þorláksdóttir var
ein þriggja Eyjastúlkna sem tók þátt í
fegurðarsamkeppninni um titilinn
ungfrú Suðurland, 4. mars síðast-
liðinn. Hún sagði að þó engin þeirra
hafi náð verðlaunasæti, þá hafi verið
meiriháttar gaman að taka þátt í
keppninni. „Þetta var nú aðallega til
gamans gert og spuming um að vera
maður sjálfur. Maður kynntist fullt af
fólki og var vel tekið. En þó gaman
hafi verið að taka þátt í keppninni og
undirbúningi hennar, þá var þetta erfitt
síðustu dagana. Það var dálítið stress
í byrjun en þegar ég var komin inn á
sviðið fór það alveg. Það komu um 30
manns frá Eyjum og studdu okkur
þvilíkt mikið og mikill styrkur að
þeim,“ sagði Aðalbjörg.
Sjöfn Ólafsdóttir sem einnig tók
þátt í keppninni um titilinn ungfrú
Suðurland sagði að stemmningin hefði
verið frábær og keppnin heppnast vel
í alla staði, auk þess sem við lærðum
mikið á þessu. „Ég var reyndar að
drepast úr stressi, en svo hvarf það, því
það var tekið svo vel á móti okkur.
Þvílíkur léttir sem fylgdi því. Svo má
ekki gleyma Vestmannaeyingunum
sem mættu á keppnina og studdu
okkur þvílíkt. Ég held að það hafi
heyrst meira í þeim, heldur en öllum
öðrum í salnum og það var meiri
háttar. Ég held að eftirminnilegast við
keppnina hafi verið þessi frábæri
stuðningur Eyjamanna á staðnum.“
Sjöfn sagði að allur undirbúningur
vegna keppninnar hafi gengið mjög
vel og verið aðstandendum til sóma.
„Þetta var allt mjög glæsilegt og mikið
í lagt. Ég er mjög ánægð með þær
stelpur sem unnu og í maí þegar
úrslitakeppnin fer fram ætlum við að
ÞÓREY og Sjöfn brostu sínu
fegursta eftir keppnina þó
enginn ynnist titillinn.
reyna að komast á keppnina og styðja
stelpumar. Það verður gaman að fá að
vera áhorfandi í aðalkeppninni."
Aðalbjörg og Sjöfn vildu koma á
framfæri þökkúm til þeirra sem studdu
þær til þátttöku í keppninni. En einnig
vildu þær þakka Éindu Hannesar í
Betri línum, Dagmar Skúladóttur, sem
var þeim innan handar í Eyjum,
Hressó og Herjólfi hf. „En að öllum
öðrum ólöstuðum var Dagmar alveg
frábær. Hún var einn allsheijarreddari
og eins og umboðsmaður fyrir okkur.
Frábær stelpa,“ sögðu Aðalheiður og
Sjöfn.
AÐALBJÖRG ásamt sveininum sem leiddi hana inn á sviðið.
Spurt er????
Hvor er betri,
Lúðvík eða
Össur?
Nú hefur Ossur Skarhéðinsson
opinberað framboð sitt til
formanns samfylkingarinnar og
Lúðvík Bergvinsson liugsar
málið, en framboðsfrestur
rennur út í kvöld. Hvort viltu
heldur Lúðvik Bergvinsson eða
Össur Skarphéðinsson sem
formann Samfylkingarinnar?
Kagnar Óskarsson:
Ég er nú ekki búinn
að hugsa þetta, en ef
Lúðvík býður sig
fram þá fer ég að
hugsa málið í alvöru.
Annars eru þeir báðir
góðir strákar, en
Lúðvík myndi ekki
veikja stöðu Vestmannaeyja. Við
skulum samt fyrst sjá hverjir verða
í framboði
Sólveig Adólfsdóttir:
Lúðvík. Mér finnst
það eigi að koma
j algerlega nýtt andlit í
framvarðasveitina.
V'1
H
' f/Á
4
Þorgerður Jóhannsdóttir:
Framboðsfrestur
rennur nú ekki út
fyrr en í kvöld svo
mér finnst ótímabært
að gefa út einhverja
yfirlýsingu. Það
liggur ekki enn fyrir
hvort Lúðvík býður
sig fram, eða tleiri. En óneitanelga
yrði skemmtilegt ef formaður Sam-
fylkingarinnar væri úr Vest-
mannaeyjum.
Ármann Höskuldsson:
Þú segir nokkuð.
Verð ég ekki að
segja Lúlla úr þvf
hann er Vestmanna-
eyjamaður. Annars
finnst mér Lúðvík
allt of ungur, en
myndi samt styðja
hann til dáða úr því hann er
Eyjamaður. Bonne rout, Lúðvík!
Páll Einarsson:
Mér Ifst betur á
Össur, þó að mér sé
illa við að segja það,
en Össur hefur meiri
útgeislun, svo ég
bregði fyrir mig
tískuorði. En það er
nú eins og það er að
halda með sínum heimamönnum.
Sigurður Einarsson forstjóri
Isfélags Vestmannaeyja:
Ég hef engaskoðun
á því. Ég er ekki í
Samfylkingunni og
er alveg sama
. — hverjir gegna þar
formannsembætti.
Ævar Þórisson:
Jahá. Sem fram-
kvæmdastjóri golf-
klúbbsins vil ég
frekar að Össur verði
formaður, því ef
Lúðvík verður for-
maður kemst liann
aldrei í golf hjá
okkur sökum anna. Ef Lúðvík
kemst ekki á golfmót, þá yrði það
skaði fyrir klúbbinn. Annars eru
þeir báðir mjög liæfir nienn til
formennsku.