Fréttir - Eyjafréttir - 12.10.2000, Side 13
Fimmtudagur 12. október 2000
Fréttir
13
Þórarinn Ingólfsson skrifar:
Sýnum strák-
unum okkar
virðingu
Ágætu Eyjamenn!
Ástæða þess að ég sest niður og skrifa
þetta bréf er úrslitaleikurinn í bikar-
keppni KSÍ og þátttaka stuðnings-
manna í honum.
Við Eyjamenn á fastalandinu erum
ánægðir með liðið okkar og þó svo að
ekki haft unnist titill í sumar voru
margar gleðistundir sem tengdust ÍB V
á einn eða annan hátt.
Sunnudaginn 24. september sl. var
síðan hápunktinum náð þegar ÍB V lék
úrslitaleikinn við ÍA sem því miður
tapaðist eins og allir muna. Strákamir
léku undir getu og hafa oft leikið betur
í sumar.
Hvað olli tapi ÍB V í þessum stærsta
leik íslenskrar knattspymu er ekki mitt
að dæma. Umgjörðin var öll hin besta
og Eyjamenn mættu í stómm hópum
til að styðja sína menn. Þó svo að
þessir þættir hafi verið góðir urðum
við að bíta í það súra epli að lúta í gras
fyrir Skagamönnum. Áð leik loknum
fengu strákamir okkar afhent silfur-
verðlaun fyrir árangurinn. Hvar vom
flestir stuðningsmenn liðsins þá?
Þeir vom á leið út af svæðinu og
gleymdu að fagna árangri strákanna.
Við viljum auðvitað alltaf vinna en
gleymum því ekki að strákamir vom
að leggja sig fram og því eigum við
stuðningsmennimir að sýna þeim þá
virðingu að þakka þeim fyrir þeirra
framlag. Án þeirra framlags gætum
við ekki skemmt okkur á leik eins og
þessum. Höfum þetta hugfast næst
þegar leikir sem þessi fara fram og
þökkum leikmönnum okkar fyrir
þeirra framlag þó svo að við séum
ekki alveg sátt við úrslitin.
Þórarínn lngólfsson.
ÞRAINN leiðir menn í allan sannleikann um kosti nýja súrefnisins sem er lyktarlaust.
Húsey, nýr umboðsaðili ísaga:
Lyktandi súrefni eykur
hagkvæmni og öryggi
ísaga og Húsey voru með kynningu
í síðustu viku þar sem kynnt var ný
gastegund og kynnt ýmis öryggis-
atriði er lúta að meðferð gass.
Kynningin fór fram í húsi Sveina-
félagsins og mættu hátt í 40 manns.
Þráinn Sigurðsson, sölustjóri málm-
iðnaðarsviðs hjá Isaga, sagði að
aðaltilgangurinn haft verið að kynna
nýjan umboðsaðila í Eyjum en Húsey
tók við umboðinu í sumar. „Þá vomm
við að kynna nýja gastegund,
ODOROX, sem er lyktandi súrefni
sem er tilkomið vegna kröfu mark-
aðarins," sagði Þráinn. „Súrefni er í
eðli sínu lyktarlaust en með lyktinni
eykst hagkvæmni og öryggi í notkun
þess. Sem dæmi má nefna að fari
súrefni úr 21% í 23% tvöfaldast
brennsluhraðinn. Fyrst og fremst er
þetta samt öryggisatriði því menn
finna lykt löngu áður en hætta skapast.
Þetta er ekki síst nauðsynlegt á
stöðum eins og Vestmannaeyjum þar
sem unnið er í lokuðum rýmum um
borð í bátum. Þar má lítið bera út af.
Það er því vel við hæfi að byrja
herferðina hér í Eyjum,“ sagði Þráinn.
Hann sagði að auk þess hefði verið
farið lauslega yftr öryggisbúnað.
„Þátttaka var góð og menn voru bæði
áhugasamir og jákvæðir. Ég fékk
margar góðar spurningar eftir
fyrirlesturinn og var ekki annað að sjá
en að menn væru ánægðir með
framtakið," sagði Þráinn að lokum.
ÞRÁINN: Það var ekki annað að sjá en að menn væru ánægðir með
framtakið.
Herjólfur hf.:
Tapar þremur málum í héraðsdómi
Nýlega var kveðinn upp í Hér-
aðsdómi Suðurlands dómur í
múlum sem þrjár þernur á Herjólfi
höfðuðu gegn Herjólfi hf. vegna
vangreiddra vinnulauna.
Öll málin voru höfðuð á sömu for-
sendum. Þemumar þrjár töldu að út-
gerðin hefði ekki greitt þeim tvöfaldan
kvöldmatartíma, sem þeim hefði
borið, á ámnum 1995 til 1997, í
sunnudagsferðum og aukaferðum.
Utgerðin greiddi yftrvinnukaup fyrir
þann tíma en tekist var á um hvort
henni hefði borið að greiða meira. í
samningum segir að viðkomandi skuli
hafa matartíma milli kl. 18 og 19 en
þemumar sögðust nær undantekn-
ingarlaust hafa unnið við þjónustustörf
á þeim tíma.
Dómamir féllu stefnendum, þem-
unum, í vil og í dómsorðum Hér-
aðsdóms Suðurlands segir að
Herjólfur hf. skuli greiða Guðmundu
Hjörleifsdóttur kr. 76.283 með dráttar-
vöxtum, Auði Bám Ólafsdóttur kr.
28.783 auk dráttarvaxta og Bjameyju
Valgeirsdóttur kr. 121.452 auk
dráttarvaxta. Dráttarvextimir, fjár-
hæðir þeirra og tímabil, em tíundaðir
sérstaklega í hverjum dómi enda
reiknaðir frá mislöngum tíma og á
misháar Ijárhæðir hvetju sinni.
Nokkra athygli vekur að máls-
kostnaður, sem Herjólfur hf. þarf að
greiða til stefnenda, vegna þessara
þriggja mála, nemur 540.000 lo'ónum
eða vemlega hærri upphæð en
launagreiðslumar til þemanna þriggja.
Þá má reikna með að Heijólfur hf. haft
einnig mátt greiða sínum lögmanni
eitthvað fyrir vikið og því vaknar sú
spuming hver haft mest hagnast á
þessum málarekstri. Alla vega er það
ekki Heijólfur hf.
NÚ þegar Herjólfur er á leið úr
höndum Eyjamanna stendur
stjórn hans í málaferlum við
áhöfnina.