Fréttir - Eyjafréttir - 30.11.2000, Síða 10
10
Fréttir
Fimmtudagur 30. nóvember 2000
Eyjablikk í nýtt og stærra húsnæði:
Næg verkefni
framundan
-segir Stefán framkvæmdastjóri
Eyjablikk hd'ur flutt starfsemi sína
í nýtt og stærra húsnæði að Flötum
27, og uni leið var bætt við
tækjakostinn og tekin inn öllug
hcygjupressa cnda lúll sísæða til því
næg verkefni eru framundan og
þarf að fjölga starfsmönnum.
Eyjablikk var stofnað í apríl 1997
og voru eigendur þess Stefán Lúð-
víksson, Andrea Atladóttir og Isloft í
Reykjavík, sem átti meirihluta. Eins
og nafnið gefur til kynna er blikksmíði
og smíði úr öðrum þunnmálmum
uppistaðan í rekstri Eyjablikks. Fyrst
var fyrirtækið í 100 fm húsnæði við
Strandveginn en nýja húsnæðið er 200
fm að gólffleti á tveimur hæðum og er
lager á efri hæðinni.
„Um leið og við keyptum húsnæðið
var ákveðið að auka hlutaféð og varð
niðurstaðan sú að foreldrar okkar
Andreu komu inn í þetta með okkur,
þannig að nú erum við konrin með
góðan meirihluta, en Isloft vildi vera
með okkur áfram enda var það mjög
gott upp á framtíðina því ef við
hefðum ekki nóg að gera hér er gott að
hafa svona fyrirtæki með sér sem
getur skaffað okkur verkefni," sagði
Stefán í viðtali við Fréttir í tilefni
tímamótanna.
„Þegar við stofnuðum Eyjablikk
árið 1997 varégeini starfsmaðurinn,
og vissi svo sem ekki við hverju ég
átti að búast og var ætlunin að fá
verkefni frá ísloftí ef þyrfti en til þess
hefur ekki komið enn. Síðan hefur
þetta vaftð upp á sig og voru móttök-
urnar miklu betri en ég þorði að vona.
I dag er mjög mikið að gera og stór
verkefni framundan þannig að það
þýtti ekkert annað en að stökkva á
þetta húsnæði þegar það gafst.
Við erum með þrjá starfsmenn í
dag auk þess sem Andrea er á skrif-
stofunni og við emm að leita okkur að
einum manni til viðbótar.“
Meðal verkefna á næsta ári er
íþróttamiðstöðin en verið er að byggja
tvöfaldan íþróttasal við hana með
tilheyrandi aðstöðu. „Þetta er gnðalegt
verkefni og svo er ýmislegt sem verið
er að vinna í, eins og það að búið er að
bjóða okkur að taka þátt t verkefni í
nýju Kringlunni í Smáralind, en ég
veit nú ekki hvort við höfum tíma í
það. Einnig er mikið um það að fólk
komi inn af götunni með alls konar
verkefni sem gaman er að fást við. Ég
hélt að það yrði lítið að gera núna í
haust en það er bara allt vitlaust að
gera, þannig að við erum ægilega
glöð.“
Meðal verkefna í blikksmíði eru
loftræstikerfi, handrið, flasningar á
þök, vatnsbretti í glugga, tengingar við
kamínur, einangrun og klæðningar,
þakrennur og niðurföll. „Þetta er
svona það helsta, annars smíðum við
allt sem fólki dettur í hug úr járni,
stáli, áli, messing og kopar.
Stærstu verkefnin okkar til þessa em
loðnubræðslan hjá Isfélaginu þar sem
við vomm með loftræstingu og ein-
angrun og klæðningar, einnig vorum
við í Safnahúsinu, Flugstöðinni,
Iþróttamiðstöðinni og stafkirkjunni
þar sem við vorum með ioftræst-
inguna og smíðuðum einnig rennur og
niðurföll úr kopar.“
MARGIR litu við í Eyjablikki á fostudaginn þegar nýja húsnæðið var formlega tekið í notkun. Þar á
meðal voru foreldrar Stefáns og Andreu sem eru nýir hluthafar í fyrirtækinu. F.v. Atli Aðalsteinsson,
Lilja Hanna Baldursdóttir, Lúðvík Andreasson, Guðný Hinriksdóttir, Andrea og Stefán.
B '\ •'T • ifk 1
8H 11
■Æmú . i.; ■
/T 'JA mm \ j ' r
wt H
v-?"- ' 'WjéX v R\y/ V AádBSA ''J' \
Geymið hjólin í skammdeginu
Guðrún kosin í miðstjórn ASÍ
Á þingi ASÍ, sem lauk fyrir
skömmu, bar það til tíðinda að
Vestmannaeyingur var kosinn í
miðstjórn sambandsins en það
hefur ekki áður gerst eftir því sem
fróðir menn segja.
Guðrún Erlingsdóttir, fulltrúi
Verslunarmannafélags
Vestmannaeyja og formaður þess
félags, var kjörin í miðstjórnina.
Guðrún segist ekki vita hverju
hún eigi þann liciður að þakka,
kannski hafl það verið vegna þess
að hún var kona af lands-
byggðinni sem var treyst fyrir
þessari ábyrgð. Guðrún sat í
kjörnefnd þingsins, raunar eina
konan í þeirri nefnd. Hún segir
að Landssamband verslunar-
manna hafi stungið upp á hennar
nafni í miðstjórnina og hún hafi
fengið stuðning í því kjöri. Þetta
er þeim mun athyglisverðara fyrir
þá sök að nú var fækkað í
miðstjórn úr 21 fulltrúa í 15 en
Guðrún er ein þriggja kvenna
sem á sæti í miðstjórninni.
„Þetta þýðir talsvert meiri vinnu
og ferðir til Reykjavíkur en mér
Vestmanna-
eyingar eiga
nú málsvara
í miðstjórn
ASI, okkar
rödd heyrist
þar og ég
vona að hún
verði ekki
mjög
hjáróma
innan um
Reykjavíkur-
liðið.
finnst það óneitanlega heiður fyrir
félag úti á landi, með innan við
200 félaga, að forsvarsmaður þess
skuli fá sæti í miðstjórn ASÍ,“
segir Guðrún. Fundir eru baldnir
hálfsmánaðarlega í miðstjórninni
og var fyrsti fundurinn í gær. „Ég
vona að þetta gefi möguleika til að
hafa áhrif til góðs. Vestmanna-
eyingar eiga nú málsvara í
miðstjórn ASÍ, okkar rödd heyrist
þar og ég vona að hún verði ekki
mjög hjáróma innan um Reykja-
víkurliðið,“ sagði Guðrún.
Lögreglumenn hafa orðið varir við að undanlörnu að
töluvert er um að börn og ungmcnni séu á reiðhjólum
án þess að vera með tilskilinn öryggisbúnað.
Það skal ítrekað að allir sem eru yngri en 15 ára eiga að
vera með öryggishjálm þegar hjólað er. Þá er og skylt að
vera með Ijósabúnað á hjóli, þ.e. Ijós og glitaugu. Á þetta
sérstaklega við núna í skammdeginu. Hins vegar vill
lögregla benda á að foreldrar ættu að setja hjólin í geymslu
yfir vetrarmánuðina þar sem hættulegt getur verið að hjóla
í myrkri. Þá skal á það bent að bam yngra en sjö ára má
ekki hjóla á akbraut nema undir eftirlití þess sem orðinn er
15 ára. Lögreglan mun hafa eftirlit með því að þessum
reglum sé fylgt og eiga þeir sem bijóta þær á hættu að
hjólin verði tekin af þeim og þau sett í geymslu á
lögreglustöðinni.
Engir skjálftar
-segir Ármann Höskuldsson
Á þriðjudag mældist jarðskjálfti úti
af Reykjanesi, um 4 á Richter-
kvarða. Jarðfræðingar segja ekki
ástæðu til að hafa áhyggjur af þeim
skjálfta, hér hafi líklega verið um
svonefndan flekamótaskjálfta að
ræða og þurfi hann ekki að boða
nein frekari tíðindi.
Armann Höskuldsson, hjá Náttúru-
stofu Suðurlands, segir að þessi
skjálfti hafi ekki fundist í Eyjum og
ekki komið fram á mælitækjum hér.
„Bæði er fjarlægðin of mikil og eins
var þetta ekki öflugur skjálfti, kannski
hefði eitthvað mælst hefði hann náð
styrkleikanum 5. Það er miklu meiri
titringur sem stafar frá gröfum og
vörubílum en frá svona skjálfta í
þessari fjarlægð," segir Ármann.
I Vestmannaeyjum er jarðskjálfta-
mælir inni við Skiphella og auk þess
er hér til staðar GPS-tæki sem einnig
mælir stærri hreyfingar. Þau tæki eru
ný af nálinni og í góðu lagi að sögn
Ármanns. „Það mældust smáskjálítar
við Surtsey í sumar en síðan hefur
ekkert kontið fram á tækjunum," segir
Armann.
Vaxandi eftir-
spurn eftir síld
-Egyptar vilja kaupa 1700 tonn af frystri síld
Rólegt hefur verið yfir loðnuveið-
ununi síðustu daga eftir ágæta
skorpu í síðustu viku. Bræla hefur
verið á miðunum og lítil veiði.
Antares var á þriðjudag einskipa á
sfldarmiðum, aðrir höfðu leitað lands
vegna veðurs. Hann var væntanlegur
til Eyja í gærkvöldi með 350 tonn. Að
sögn Harðar Oskarssonar, hjá Isfé-
laginu, hefur verið að birta til á
mörkuðum fyrir sfld að undanfömu
og víða eftirspum eftir sfld, t.d. í
Rússlandi, Þýskalandi og svo á nokk-
uð framandi slóðum, eða Egyptalandi.
Jón Óiafur Svansson, framleiðslustjóri
hjá Isfélaginu, segir að í gegnum
fyrirtækið Fiskmiðlun Norðurlands
hafi borist beiðni um að heilfrysta
1700 tonn af smásfld. Bæði
Vinnslustöðin og Isfélagið séu að
vinna upp í þann samning núna.
Egyptar em 70 milljónir, Jón Olafur
segir þá miklar fiskætur og aðallega
leggja þeir sér uppsjávarfisk til
munns. Sfldin sem þeir vilja er 125 til
170 grömm eða smærri en sú sem er
flökuð og fryst á aðra markaði og
hentar því vel með annarri vinnslu.