Fréttir - Eyjafréttir - 30.11.2000, Blaðsíða 22
22
Fréttir
Fimmtudagur 30. nóvember 2000
Landa-
KIRKJA
- hjartanlega velkomin!
Fimmtudagur 30. nóvember:
Kl. 10.00 Foreldramorgunn,
heimavinnandi foreldrar hvattir til
samfélagseflingar.
Kl. 14.30 Helgistund á Heil-
brigðisstofnun, dagstofu 3. hæð,
heimsóknargestir velkomnir.
Kl. 17.30 TTT. Tíu til tólf ára starf
á fullu.
Föstudagur 1. desember:
Kl. 15.00 Æfmg, Litlir lærisveinar.
Kl. 20.00 Litlir lærisveinar syngja á
Hraunbúðum.
Laugardagur 2. desember:
Kl. 14.00 Útfararguðsþjónusta
Gunnars Agústs Helgasonar.
Sunnudagur 3. desember:
Fyrsti sunnudagur í nýju kirkjuári.
Kl. 11.00 Sunnudagaskóli. Fiðlu-
sveit barna og unglinga úr Mos-
fellsbæ leikur í stundinni.
Kl. 14.00 Messa með altarisgöngu.
Við l'ögnum nýju kirkjuári í
messunni. Að henni lokinni verður
árlegt aðventukaffi Kven-félagsins
og jólabasar í Safnað- arheimilinu.
Kl. 20.30 Æskulýðsfundur í
kirkjunni með Óla Jóa og félögum.
Mánudagur 4. desember:
Böm af leikskólunum sjá leikritið
„Ósýnilegi vinurinn" í kirkjunni.
Kl. 17.00 Æskulýðsstarf fatlaðra í
Safnaðarheimilinu.
Þriðjudagur 5. desember:
Kl. 16.30 Kirkjuprakkarar. Áfram
heldur gamanið með Hrefnu og
unglingununr.
Miðvikudagur 6. desember:
Kl. 12.00 Kyrrðar- og bænastund.
Hægt er að koma bænaefnum til
prestanna.
Kl. 14.40 Fermingarfræðsla.
Kl. 17.20 Fermingarfræðsla.
Kl. 20.00 Opið hús fyrir unglinga í
KFUM&K húsinu.
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Fimmtudagurinn
Kl. 20.30 Biblíulestur
Laugardagur
Kl. 20.30 Bænasamkoma
Sunnudagur
Kl. 15.00 Vakningarsamkoma-
Þriðjudagur
Kl. 17.30 Krakkakirkjan
Verið hjartanlega velkomin að
leita Drottins meðan hann er að
finna!
Hvítasunnukirkjan
Allir hjartanlega velkomnir
Aðventkirkjan
Fimmtudagur 30. nóvember:
Kl. 20.00 Samvera og bænastund.
Laugardagur 2. desember:
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Allir hjartanlega velkomnir.
Biblían
talar
sími
481-1585
Knattspyrna: Páll Guðmundsson fram á ritvöllinn með Fjör í Eyjum______________
Sumar persónurnar koma
kunnuslesa fyrir sjónir
PÁLL fór í grunnskólana í síðustu viku og las upp úr bókinni. Hérna hafa krakkarnir í einuni 6.
bekknum í Barnaskólanum stillt sér upp með honum og Hlyn fyrirliða.
Skáldskapur er ekki það fyrsta sem
manni dettur í hug þegar fótbolti er
annars vegar og enn síður finnst
manni líklegt að knattspyrnumaður
nýti tómstundir sínar til að skrifa
barnabækur. En það er einmitt það
sem Páll Guðmundsson, leikmaður
ÍBV undanfarin ár, hefur verið að
gera. Liggja ekki eftir hann færri en
þrjár barnabækur og gerist sú
þriðja, Fjör í Eyjum, í Vest-
mannaeyjum eins og nafnið bendir
til.
Söguhetjurnar eru Jonni, Birkir og
Steini sem eiga sér fyrirmyndir í
knattspymu dagsins í dag og má þar
nefna Steingrím og Hlyn í ÍBV og
Þormóð í KR. Sagt er frá ýmsum
ævintýrum sem strákarnir lenda í og
að sjálfsögðu kemur Keikó við sögu.
Páll var staddur hér í síðustu viku
að kynna bók sína og fór hann í
grunnskólana með Hlyn Stefánsson
fyrirliða ÍBV upp á arminn og las upp
úr bókinni fýrir nemendur sem létu sér
vel líka. „Þetta er þriðja Fjör-bókin
mín,“ sagði Páll í samtali við Fréttir.
Þriðja Fjör-bókin
„Fyrsta bókin mín hét Fjör á Ólafsfirði
og í ár koma út Fjör á Selfossi og Fjör
í Eyjum,“ bætir Páll við en hann er frá
Selfossi, býr á Ólafsfirði og spilar
fótbolta með ÍBV. „í Eyjabókinni
koma við sögu menn eins og Hlynur
og Birkir hjá ÍBV og eins held ég að
hægt sé að þekkja Edda Garðars í
Sindra vallarstjóra. Bókin er gefin út í
samvinnu við IBV og allur ágóði af
sölunni rennur til félagsins. Með þessu
vonast ég til að bókin seljist vel í Vest-
mannaeyjum og eins ætla ég að fá
ÁTVR, félag Vestmannaeyinga í
Reykjavík, í lið með mér. Mér finnst
líka gaman að vera í samstarfi við ÍBV
því hjá félaginu er unnið mikið og gott
starí' fyrir böm og unglinga. Bókin er
ætluð krökkum á aldrinum 8 til 12 ára,
allir sem hafa séð hana hjá mér eru
rnjög jákvæðir og ég held að krakkar
allt frá 4 ára upp í 15 ára geti skemmt
sér við lestur hennar. Eðlilega tengist
sagan ÍBV og fótboltanum en það er
komið inn á aðrar iþróttir. Það er líka
reynt að höfða til atriða sem skipta
máli hjá ungu fólki.“
Alltaf haft gaman að skrifa
Þegar Páll er spurður um kveikjuna að
skrifum sínum segist hann alltaf hafa
haft gaman að skrifa. „Ég er íþrótta-
kennari og hef unnið rnikið við
þjálfum. Sjálfur spila ég fótbolta
þannig að það er ekki óeðlilegt að
hann komið við sögu í bókum mínum.
Ég hef líka fundið þörf hjá mér til að
skrifa og ekki síst fyrir böm. Þessi
saga er mjög létt og ég legg áherslu á
að Fjör-bækurnar séu skemmtilegar
og léttar aflestrar."
Eins og fram kemur hér að framan
eru Fjör-bækumar orðnar þrjár en Páll
ætlar ekki að láta þar staðar numið.
„Ég lít á þessi skrif mín sem kynningu
og tilraun áður en ég fer að koma mér
á framfæri á almennum markaði og þá
með þyngri verk.“
Stefnir þú á að gefa út skáldsögur
fyrir fullorðna? „Nei, ekki skáldsögur
en ég ætla að koma bamabókum mín-
um inn á alntennan markað. Svo væri
gaman að skrifa bækur fyrir fullorðna
og taka t.d. fyrir feril hjá
íþróttamönnum."
Óvíst með framhaldið hiá
ÍBV
Hvað með sjálfan þig, eigum við von
á að sjá þig með ÍBV næsta sumar?
„Þetta er búin að vera nokkuð flókin
staða hjá mér undanfarið. Síðustu tvö
ár hef ég spilað með ÍBV en með
vinnu á Ólafsfirði sem ég yrði að segja
upp ef ég ætla að spila með ÍBV næsta
sumar. Ég er æskulýðs- og tómstunda-
fulltrúi og núna hefur bæst við starf
ferðamálafulltrúa. Ég kann vel við
mig í þessu starfi en nú er komið að
því að ég þarf að velja og hafna og
ætli ég að spila með IBV næsta sumar
verð ég að segja upp á Ólafsfirði. Mér
líst ekki illa á að flytja til Eyja og það
er verið að skoða möguleika á að ég
fái hér vinnu. Það hefur verið biðstaða
í mínum málum í allt haust og það
væri best fyrir alla að það skýrðist sem
fýrst,“ sagði Páll að lokum.
Fjör í Eyjum verður til sölu í búðum
í Eyjum og sjálfur stefnir Páll á að
koma og árita bókina á jólamarkaði
sem verður haldinn hér í desember.
Handbolti: Yngri flokkarnir íý M Knattspyrna: Dregið í Símadeildinni
Tap Hja strakum
03 stelpum
Annar flokkur karla lék gegn FH á
sunnudaginn og fór leikurinn fram
hér í Eyjum.
Liðið hefur ekki riðið feitum hesti
frá viðureignum sínum til þessa í
vetur, hafa aðeins fengið tvö stig fyrir
að sigra Aftureldingu sem ekki mætti
til leiks. Strákamir eru hins vegar að
taka miklum framförum og stóðu vel í
gestunum framan af leiknum.
ÍBV gaf hins vegar eftir í lokin og
gestirnir sigruðu í leiknum, 26-23.
Markahæstir hjá ÍBV voru þeir Sig-
urður Ari með 6 mörk en Sigþór og
Davíð skomðu fjögur hvor.
Unglingaflokkur ÍBV, sem er nýr
flokkur í kvennaboltanum þar sem
annar og þriðji flokkur hafa verið
sameinaðir í einn flokk, spilaði tvo
leiki hér í Eyjum uin helgina.
Leikimir voru báðir gegn liði Fylkis
númer eitt en leikið var á laugardag og
sunnudag. Fyrri leikurinn tapaðist
með sjö mörkum, 13-20 en stelpumar
sýndu góðan karakter í seinni leiknum
og unnu Fylkisstúlkur 17-12, en
gestunum hefur verið spáð góðu gengi
í vetur
eyjafrettir.is
dagblað á Netinu
Karlarnir byrja
í Kópavosi
Nýverið var dregið í hvaða röð
liðin mætast í efstu deildum
knattspyrnunnar en efstu deild-
irnar tvær skipta urn nafn og heita
núna Símadeildin.
Það er ekki hægt að segja annað
en karlaliðið eigi fýrir höndum erfið-
an útileik í fyrstu umferð þegar liðið
mætir Breiðabliki í Kópavogi.
Kvennaliðið fær Skagastúlkur í
heimsókn og að öllu eðlilegu ætti
ÍBV að eiga auðveldan leik fyrir
höndum. Drátturinn lítur annars
svona út:
Símadeild karla
1. urnferð Breiðablik - ÍBV
2. umferð ÍBV - FH
3. umferð Fram - ÍBV
4. umferð ÍBV - KR
5. umferð Grindavík - ÍBV
6. umferð ÍBV - Keflavík,
7. umferð Fylkir - ÍBV
8. urnferð ÍBV - Valur
9. umferð ÍA - ÍBV
10. umferð
11. umferð
12. umferð
13. umferð
14. umferð
15. umferð
16. umferð
17. umferð
18. umferð
IBV - Breiðablik
FH-ÍBV
ÍBV - Fram
KR - ÍBV
ÍBV - Grindavík
Keflavík - ÍBV
ÍBV - Fylkir
Valur-ÍBV
ÍBV - ÍA
Símadeild kvenna
1. umferð ÍB V - ÍA
2. umferð Valur - ÍBV
3. umferð ÍBV - Breiðablik
4. umferð ÍBV - Grindavík
5. umferð Stjaman - ÍBV
6. umferð ÍBV - KR
7. umferð Þór/KA - ÍBV
8. umferð ÍA - ÍBV
9. umferð ÍBV - Valur
10. umferð Breiðablik - ÍBV
11. umferð Grindavík - ÍBV
12. umferð ÍBV - Stjaman
13. umferð KR - ÍBV
14. umferð ÍBV - Þór/KA