Fréttir - Eyjafréttir - 30.11.2000, Page 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 30. nóvember 2000
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri skrifar um sölu bæjarins ó hlutabréfum í Herjólfi:
Hagstætt fyrir Vestmannaeyjar
Ríkissjóður hefði getað óskað eftir því að kaupa þessi
mannvirki samkvæmt hlutlausu mati. Það mat hefði
aldrei skilað bænum 55 milljónum fyrir 51,4 % hlut
alveg sama hvemig reiknað væri. Að vera að reyna að
gera slíka sölu tortryggilega segir meira um
bæjarfulltrúa Vestmannaeyjalistans en söluna sjálfa.
Á aukafundi í
bæjarstjóm
Vestmannaeyja
sl. fimmtudag lá
fyrir kaupsamn-
ingur ásamt
fylgiblöðum þar
sem Vest-
mannaeyjabær
seldi 51,4% hlut
í Herjólfi hf.
fyrir 55 millj-
ónir króna, en
upphaflegt hlutafé Vestmannaeyja-
bæjar var kr. 1.000.000, en var síðan
uppfært í kr. 10.000.000. Við-
lagasjóður greiddi stofnupphæðina á
sínum tíma sem framlag til sam-
göngumála. Auk þess fær Vest-
mannaeyjabær 51,4 % af peningalegri
stöðu Herjólfs hf. miðað við uppgjör
31. desember árið 2000.
Fyrir bæjarstjómarfundinn gerði ég
stjóm Herjólfs hf., ásamt fram-
kvæmdastjóra, grein fyrir stöðu
málsins. Hér ætla ég að gera grein
fyrir þessari sölu.
Sala landgöngumannvirkja
í tengslum við undirbúning útboðs
þjónustusamnings um rekstur m/s
Herjólfs samþykktu fulltrúar Herjólfs
hf. og Vegagerðarinnar að fá lög-
fræðiálit á eftirfarandi þáttum:
a: Er fyrirtækjum, sem ríkið er stór
eignaraðili að, heimilt með tilliti til
samkeppnisreglna, að bjóða í verk þar
sem verkkaupi er rikið?
b: Er hægt að skapa öllum bjóðendum
jafnan aðgöngurétt að mannvirkjum
sem einn hugsanlegra bjóðenda er
eigandi að?
Það var Baldur Guðlaugsson hrl.
sem skilaði ítarlegri níu síðna
greinargerð um málið og helstu
niðurstöður vom þessar:
a: Herjólfi hf. og Breiðaljarðarfeijunni
Baldri ehf. er, þrátt fyrir eignaraðild
ríkisins, heimilt að taka þátt í útboði
um þjónusutsamninga um ferjuleiðir.
b: Ef á reyndi má telja líklegt að
samkeppnisráð ákvæði á grundvelli
heimilda sinna samkvæmt 17. gr.
samkeppnislaga nr. 8/1993 að mæla
fyrir um að Herjólfur hf. skuli gegn
eðlilegu endurgjaldi veita nýjum
rekstraraðila á ferjuleiðinni Þorláks-
höfn-Vestmannaeyjar aðgang að far-
þegamannvirkjum félagsins í Vest-
mannaeyjum og Þorlákshöfn.
Því er ljóst að mannvirkin eru
eymamerkt þessari starfsemi í fram-
tíðinni. Valkosturinn var annaðhvort
að vera áfram eignaraðili að mann-
virkjunum, fá einhverjar leigutekjur
og greiða gjöld, eða hinn kosturinn að
selja hlutafélagið eða kaupa hlut
rikisins í Herjólfi hf.
Bærinn fær 55 milljónir að
minnsta kosti
Fulltrúar ríkisvaldsins óskuðu eftir
viðræðum vegna afnota af mann-
virkjum Herjólfs hf. Mér þótti ljóst í
upphafi að næði ég góðu tilboði í
hlutabréf bæjarins yrði það mestur
hagur fyrir bæinn. Að slíta félaginu
eða reka það áfram vom verri kostir
og hefðu ekki skilað bænum sem
eiganda sama ágóða.
Sameiginlegt fasteignamat mann-
virkja í Vestmannaeyjum og Þor-
lákshöfn er um 29 milljónir króna og
sameiginlegt brunabótamat er um 83
milljónir króna. 51,4% af fasteigna-
mati er um 15 milljónir og bruna-
bótamat um 43 milljónir króna. Bók-
fært verð fasteignanna pr. 31.12.199 er
kr. 49.8 milljónir sem er framreiknað
kostnaðarverð að frádregnum af-
skriftum og því ætti 51,4% hlutur
bæjarsjóðs að vera 25,6 milljónir
króna.
Vestmannaeyjabær fær greiddar kr.
55.000.000.- fyrir söluna og hafa
þegar verið greiddar 30 milljónir og
eftirstöðvamar 25 milljónir króna
verða greiddar þann 25. jan. nk. Auk
þess fær Vestmannaeyjabær kr. 51,4%
af peningalegri stöðu, miðað við
niðurstöðu ársins 2000. Ef um tap-
rekstur yrði að ræða hjá Herjófi hf. á
árinu 2000 fær Vestmannaeyjabær
samt sem áður greiddar kr.
55.000.000,-
Aðrir hluthafar fá sömu kjör
I fylgiskjali með samningnum segir að
Vegagerðin f.h. ríkissjóðs muni
bjóðast til að kaupa hluti annarra
hluthafa, sem samtals eiga um 2,3% í
félaginu, á sama gengi.
Bókun minnihlutans
Eins og fyrr fór Ragnar Oskarsson,
reyndasti minnihlutamaður á Islandi,
með ferðina. í bókun minnihlutans var
mótmælt hve hratt málið gengi fyrir
sig, sem er rétt, en við þurftum að
svara þessu tilboði daginn eftir og
þetta er ekki í fyrsta skipti sem
bæjarfulltrúar þurfa að taka ákvörðun
með stuttum fyrirvara. Eg bauð
minnihlutanum að fresta fundi þar til
snemma morguns daginn eftir en þau
sáu ekki ástæðu til þess að nýta sér
þann tíma. Einu bæjarfulltrúamir sem
höfðu séð samninginn fyrir fundinn
voru undirritaður og Þorgerður
Jóhannsdóttir, oddviti minnihlutans og
stjómarmaður í Heijólfi hf.
Bókun minnihlutans var kostuleg.
Þau töldu nauðsynlegt að fá skriflegt
álit frá hlutlausum aðila vegna málsins
og að því loknu yrði afstaða tekin.
Um það vil ég segja að þegar
skriflegt álit liggur fyrir er ljóst að það
er opinbert plagg, skv. upplýsinga-
lögum, sem allir geta notfært sér. Eg
er handviss um að ef málið hefði tafist
þá hefðu einhverjir aðilar úr embættis-
mannakerfinu náð að stoppa þessa
sölu og farið fram á mat eins og hinn
reyndi minnihlutamaður R.O. vildi.
Það hefði ömgglega lækkað hlut
bæjarins um tugi milljóna.
Pólitísk ábyrgð minnihlutans
Það er alveg ótrúlegt að fulltrúar
minnihlutans geta ekki einu sinni unnt
bæjarsjóði að hagnast og fá inn
peninga í rekstur, fjárfestingar eða
niðurgreiðslu lána. I þeirra mál-
flutningi er allt ómögulegt og reynt að
gera allt tortryggilegt og mála mynd af
Eyjunum sem svartasta. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem Islandsmeistari í
minnihlutasetu, Ragnar Oskarsson,
getur ekki tekið afstöðu. Oft hefur
þurft að fresta einföldustu málum í
bæjarráði þar sem hann treysti sér ekki
til að taka afstöðu. Hvort heldur mál
em góð eða slæm fyrir bæinn, einföld
eða flókin, virðist Ragnar Óskarsson
alltaf eiga jafn erfitt með að taka
afstöðu. Bæjarsjóður er sameiginlegt
fyrirtæki okkar allra og þessi reyndi
minnihlutamaður, eins og allir aðrir
bæjarfulltrúar, eiga að vinna sam-
viskusamlega með jákvæða hagsmuni
bæjarfélagsins að leiðarljósi.
Ef hann eða aðrir bæjarfulltrúar
treysta sér ekki til þess að taka
ákvarðanir fyrir bæjarsjóð, með hag
bæjarins að leiðarljósi, þá væri þeim
réttast að snúa sér að öðmm málum og
kalla inn varamann fyrir sig.
Breytt eignarhlutfall - ný
stjóm
Með sölu á hlutabréfum bæjarins á
ríkið á nú 97,7% hlut í Herjólfi hf. og
er eðlilegt að boðaður sé hluthafa-
fundur og kosin ný stjóm. í samn-
ingnum hefur Vestmannaeyjabær
tryggt sér tvo fulltrúa í stjóm Herjólfs
hf. í nýrri stjóm. Þá mun fram-
kvæmdastjóri Heijólfs hf. í samvinnu
við löggilta endurskoðendur ljúka
reikningsskilum fyrir árið 2000.
Hvað verður um Heijólf hf.?
Þegar verkefnum félagsins er lokið,
verður því formlega slitið og í
fylgiskjali með samningnum kemur
fram að Vestmannaeyjabær fær firma-
nafnið Herjólfur í sinn hlut. Á
bæjarráðsfundi sl. mánudag komu
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
með eftirfarandi tillögu:
I framhaldi af samningi við Ríkis-
valdið þar sem fyrir liggur að
Vestmannaeyjabær eignast nafnið
Herjólfur hf. árið 2001, samþykkir
bæjarráð, þegar framsal nafnsins
liggur fyrir, að Herjólfur hf. verði í
umsjá Þróunarfélags Vm. og gæti
hagsmuna Vestmannaeyjabæjar í
samgöngumálum og vinni markvisst
að því að kanna nýjungar sem upp
koma hverju sinni.
Bæjarráð samþykkir að fjárveiting til
Þ.V. verði aukin á næsta ári vegna
verkefnisins.
Lokaorð
Vestmannaeyjabær hefur ekki sett
peninga í Herjólf hf. og því er þessi
sala á mannvirkjunum mjög hagstæð
fyrir bæinn. Ríkissjóður hefði getað
óskað eftir því að kaupa þessi
mannvirki samkvæmt hlutlausu mati.
Það mat hefði aldrei skilað bænum 55
milljónum fyrir 51,4 % hlut, alveg
sama hvemig reiknað væri. Að vera
að reyna gera slíka sölu tortryggilega
segir meira um bæjarfulltrúa Vest-
mannaeyjalistans en söluna sjálfa.
Guðjón Hjörleifsson
bœjarstjóri
Bæjarráð:
r
Alagning næsta árs
-tekin fyrir á fundi bæjarstjórnar í dag
Á fundi bæjarráðs á mánudag var
lögð fram tillaga um álagningu
gjalda fyrir árið 2001. Helstu liðir
þeirra snerta álagningu útsvars,
fasteignagjalda, holræsagjalds og
sorpeyðingargjalda og eru þessir:
Útsvar fyrir árið 2001 verði 12,7%
með fyrirvara um lagasetningu í ffarn-
haldi af niðurstöðu tekjustofna-
nefndar.
Fasteignaskattur breytist á fast-
eignum, lóðum, lendum og hlunn-
indum sem nemur breytingu á fast-
eignamati þann 1. desember 2000.
Fasteignaskattur af húsnæði verði
hlutfall af endurstofnverði þess,
samkvæmt lögum um tekjustofna
sveitarfélaga nr. 4/1995, með síðari
breytingum.
Fasteignaskattur af íbúðum og
íbúðarhúsum, útihúsum og mann-
virkjum á bújörðum sem tengd eru
landbúnaði svo og sumarbústaðum
verði 0,4% en 1,35% af öllum öðrum
fasteignum.
Holræsagjald verði af fasteignamati
húsa samkvæmt reglugerð. Sama
skipting er á því og fasteignaskattinum
og greidd 0,2% fyrir fyrri skiptinguna
en 0,3% fyrir allar aðrar fasteignir.
Sorpeyðingargjald verður 5.500 á
hverja íbúð og sorphirðu- og sorp-
pokagjald 2.500 á íbúð.
Stjóm Bæjarveitna verður falið að
gera tillögu um sorpbrennslu- og sorp-
eyðingargjöld fyrirtækja.
Gjalddagar fasteignagjalda verða tíu,
15. hvers mánaðar, hinn fyrsti 15.
janúar og sá síðasti 15. október.
Dráttarvextir reiknast af gjaldföllnum
fasteignagjöldum 30 dögum eftir
gjalddaga. Veittur verður 7% stað-
greiðsluafsláttur af fasteignagjöldum,
holræsagjöldum og sorpgjöldum séu
þau að fullu greidd fyrir 16. febrúar
2001.
Þá verða felld niður fasteignagjöld og
holræsagjöld ellilífeyrisþega, sem
njóta tekjutryggingar, af eigin íbúð
sem þeir búa í. Einnig er samþykkt að
fella niður fasteignaskatt ellilífeyris-
þega af eigin ibúð, sem þeir búa í, á
eftirfarandi hátt:
Einstaklingar:
Brúttótekj. að 1374 þús. 100% niðurf.
Brúttótekj. að 1625 þús. 70% niðurf.
Brúttótekj. að 1845 þús. 30% niðurf.
Hjón, bæði ellilífeyrisþegar:
Brúttótekj. að 1653 þús. 100% niðurf.
Brúttótekj. að 1998 þús. 70% niðurf.
Brúttótekj. að 2265 þús. 30% niðurf.
Við mat á niðurfellingu fast-
eignaskatts af eigin íbúð 75% öryrkja,
sem þeir búa í, skal hafa hliðsjón af
fyrrgreindum reglum. Sorphirðu- og
sorpeyðingargjald, holræsagjald og
lóðarleiga verði fellt niður eða lækkað
í samræmi við ofangreindar reglur
hvað varðar eigin íbúð ellilífeyrisþega
og 75% öryrkja.
Fasteignaskattur af nýjum hús-
eignum falli niður í allt að tvö ár eftir
útgáfu fokheldisvottorðs.
Þessum tillögum var vísað til
afgreiðslu bæjarstjómar.
Karpað um
Kaupþings-
samning
Á síðasta fundi bæjarráðs var
nokkuð tekist á um samninginn
milli bæjarins og Kaupþings,
vegna lántöku fyrr á árinu upp á
12 milljónir dollara.
Guðrún Erlingsdóttir, fulltrúi
minnihlutans, ítrekaði fýrirspum sína
frá bæjarráðsfundi 6. nóvember þar
sem hún spurði um fjármögnunar-
og lánasamning milli Vestmanna-
eyjabæjar og Kaupþings hf. Þrjár
vikur væm liðnar síðan fyrirspumin
var lögð fram en engin svör hefðu til
þessa borist. 1 fyrirspuminni var
spurt hvort unnið hefði verið í
samræmi við samninginn og óskað
eftir sundurliðun mála vegna hans.
Þá var og óskað eftir sundurliðun um
hvemig bæjarsjóður og stofnanir
hans hefðu hagnast eða skaðast af
samningnum. áhættustýringunni og
gjaldeyrisráðgjöfinni.
Fulltrúar meirihlutans, Elsa
Valgeirsdóttir og Guðjón Hjörleifs-
son, lögðu ffam svohljóðandi bókun
sem svar við fyrirspuminni: „Fyrir-
spyijanda hefur margsinnis verið
gerð grein fyrir stöðu málsins og í
hvaða farvegi það er, nú síðastliðið
fimmtudagskvöld að loknum auka-
fundi í bæjarstjóm. Því er ítrekuð
fyrirspum óskiljanlegur málatil-
búnaður af hálfu fýrirspyijanda."
Þessu svaraði Guðrún með annarri
bókun, svohljóðandi: „Ég ítreka
kröfu um skriflegt svar við fyrir-
spum minni og vísa á bug órök-
studdum dylgjum sjálfstæðismanna
um óskiljanlegan málatilbúnað.