Vestfirðir - 12.09.2013, Blaðsíða 1
Verum
gáfuð
og
borðum
fisk
Kveðja Grímur kokkur
www.grimurkokkur.is
Plokkfiskur
- Hollur kostur tilbúinn á 5 mín.
Glæsilegur undirfatnaður frá
Vanity Fair og Lauma.
HAMRABORG 20A • KÓPAVOGI 544-4088 • YNJA.IS
Útsalan er hafin
Erum á Facebook
Vinsælu læknahal ararnir frá
komnir í hvítu & svörtu.
DEKKIN
Á B E T R A V E R Ð I
www.dekkjahollin.is
Pantaðu dekkin á betra verði á:
12. september 2013
9. tölublað 2. árgangur UMHVERFISVOT TUÐ PRENTUN
Vaxandi atvinnulíf og aukin
bjartsýni ríkjandi á Bíldudal!
Saga Bíldudals er samofin Íslands-sögunni, athafnamenn hafa komið og farið, skipst hafa á skin og skúrir.
Einn mesti uppgangur athafna á Bíldudal
var á tímum Péturs Thorsteinssonar fyrir
og eftir aldamótin 1900 og svo aftur upp
úr 1935, þegar Gísli Jónsson alþingismaður
hóf atvinnusköpun á Bíldudal. Bíldudals
grænar baunir svo og margir aðrir vöru-
flokkar urðu þjóðkunnir. Má þar til dæmis
nefna handsteiktar kjötbollur.
Nú eru aftur tímamót og þorpið er að
byggjast upp eftir langt hnignunarskeið.
Íbúum fjölgar og atvinna eykst. Bjartsýni
ríkir í þorpinu og ungt fólk er að flytjast
heim. Aldrei að vita nema árin eftir 2011
verði talin uppgangstími í sögunni, rúmum
100 árum eftir tíð Pétur Thorsteinssonar.
Margt er í boði þegar komið er til Bíldu-
dals. Skrímslasetrið er frábær staður fyrir
alla fjölskylduna, afar skemmtileg sýning
og margt að sjá og upplifa. Tónlistarsafnið
Melódíur minninganna þar sem Jón Kr.
Ólafsson fer á kostum og aldrei að vita
nema hann taki lagstúf eða setji plötu á
fóninn. Á Tungunni eru minnisvarðar um
atburði og fólk. Þar á meðal þau heiðurs-
hjón Pétur Thorsteinsson og Ásthildi
Thorsteinsson, ásamt minnisvarða um son
þeirra Guðmund Thorsteinsson, listamann-
inn Mugg en hann samdi og myndskreytti
meðal annars hina sívinsælu barnasögu
Dimmalimm.
Það er einnig hægt að fá mjög skemmti-
legan ratleik um þorpið hjá EagleFjord
ferðaþjónustu, fá lánaðan árabát og róa út
á voginn með færi, fara á sjóstöng eða sigl-
ingu á söguslóðir Gísla Súrssonar. Setjast
niður á veitingastaðnum Vegamótum og fá
sér í svanginn. Það er því vel þess virði að
dvelja um stund á Bíldudal, og það á hvaða
árstíma sem vera skal.
silvía björt Jónsdóttir og elva Lind bjarnadóttir voru á byrja í 3. bekk í Grunnskóla
bíldudals í haust. Alls eru nemendur í skólanum 22 í vetur, og hefur þeim fjölgað
milli ára, sem helst í hendur við svolitla fjölgun íbúa á bíldudal, sem er auðvitað afar
ánægjuleg þróun. stelpurnar standa við minnisvarða um seglskipið Gyðu sem pétur
thorsteinsson átti en það fórst með allri áhöfn 10. apríl 1910 og með því átta menn.
mastrið kom upp í rækjutrolli 1953.