Vestfirðir - 12.09.2013, Page 8

Vestfirðir - 12.09.2013, Page 8
8 12. september 2013 Atvinnumál og grunn- þjónusta Bílddæling- um afar hugleikin Atvinnumál og grunnþjónusta voru Bílddælingum ofarlega í huga á íbúafundi sem haldinn var í félagsheimilinu Baldurshaga 3. september sl. Tilefni fundarins var tvíþætt, annars vegar kynning á lýs- ingu vegna aðalskipulagsbreytingar Vesturbyggðar og hins vegar tengdist fundurinn byggðaþróunarverkefni sem Byggðastofnun stendur fyrir á Bíldudal, með það að markmiði að virkja íbúa í svokölluðum „brot- hættum byggðum.” Unnið hefur verið að sambærilegu verkefni á Raufarhöfn og auk Bíldudals verður unnið með sama hætti í Skaftárhreppi og Breið- dalshreppi. Að verkefninu standa Vest- urbyggð, AtVest, Fjórðungssamband Vestfirðinga og Háskólinn á Akureyri ásamt Byggðastofnun. Mjög góð mæting var á fundinn, um 50 manns hlýddu á kynningar og tóku síðan þátt í umræðum, sem fóru fram í litlum hópum með aðferð sem kallast ,,Heimskaffi.” Umsjón með fundinum var í höndum Sigurborgar Kr. Hann- esdóttur hjá ILDI, þjónustu og ráð- gjöf. Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar kynnti verkefnið „Brothættar byggðir,” og skipulags- kynning var í höndum Óskars Arnar Gunnarssonar, skipulagsfræðings hjá Landmótun og Ármanns Halldórs- sonar skipulags- og byggingarfulltrúa hjá Vesturbyggð. Þá kynnti Aðalsteinn Óskarsson hjá FV, nýtingaráætlun um Arnarfjörð sem nú er í vinnslu. Íbúum á Bíldudal hefur fækkað um rúm 40% frá árinu 1998. Breytingar hafa orðið á atvinnulífi eftir að fisk- vinnsla lagðist af á staðnum. Nú eru uppi áform um töluverða uppbyggingu tengda laxeldi, en þátttakendur ræddu málin út frá spurningunni „Hvað þarf til, að möguleg uppbygging á Bíldu- dal verði farsæl?,” og fjölluðu þá bæði um drauma sína og áhyggjur. Stærstu draumarnir sneru að öflugu og fjöl- breyttu atvinnulífi, góðri þjónustu og samgöngum. Rætt var um mikilvægi sterkra innviða, skóla, heilbrigðisþjón- ustu, íþrótta- og tómstundastarf og síð- ast en ekki síst, samgöngur. Næsti áfangi í verkefni Byggðastofn- unar, Vesturbyggðar, AtVest og Fjórð- ungssambands Vestfjarða, sem hlotið hefur yfirskriftina „Bíldudalur – samtal um framtíðina,” verður tveggja daga íbúaþing á Bíldudal, helgina 28. – 29. september nk. bíldudalur er byggilelgur staður. Félagsheimilið baldurshagi, þar sem íbúafundurinn var haldinn, lengst t.h. Ökumenn sýni aðgát í nálægð skóla - gönguleiðir yfir umferðargötur oft illa merktar Grunnskólar landsins eru byrjaðir og þá flykkjast þús-undir barna út á göturnar á leið í og úr skóla. Leiðir margra þeirra liggja yfir umferðargötur og við þær. Því er það mjög mikilvægt að allir aðrir vegfarendur, ekki síst þeir sem stjórna vélknúnum farartækjum, fari um með sérstakri gát þar sem barna er að vænta, sérstaklega þar sem þau þurfa að fara yfir umferðargötur. Af þessu tilefni vill FÍB vekja sérstaka athygli á þessum málum og hefur óskað eftir þátttöku almennings. Það ámælisvert að mati FÍB hversu illa gönguleiðir yfir umferðargötur eru merktar hér á landi. Slæmar og óljósar merkingar við skóla og í grennd við þá hljóta að teljast sérstaklega varhugaverðar. Skóla- börnin eiga heimtingu á því að að bestu og öruggustu göngustaðirnir yfir umferðargötur séu skilgreindir og merktir löglega og skýrt, svo ekk- ert fari á milli mála hjá börnunum sjálfum, né heldur ökumönnum sem um þessar götur aka. Gervigangbrautir skapa óvíssu Í grannlöndum okkar tíðkast að merkja gangbrautir rækilega auk þess sem ökumönnum er gefið það skýrt og greinilega til kynna þegar þeir nálg- ast gangbraut. Það er gert með yfir- borðsmerkingum, umferðarmerkjum og skiltum sem minna á það að sýna beri sérstaka varúð. Í stærsta sveitar- félagi landsins, Reykjavík, hefur sú stefna verið ríkjandi um langt árabil að merkja ekki gangbrautir á lögbundinn hátt með hvítum og svörtum þverrönd- um. Hins vegar hafa einskonar gervi- gangbrautir verið gerðar sem skapa fullkomna óvissu bæði gangandi og akandi um það hvort þar sé gangbraut eða ekki. Þetta telur FÍB afar misráðið. Bæði zebrabrautirnar og gang- brautamerkin eru hluti tiltekins al- þjóðlegs táknmáls. Það táknmál segir bæði akandi og gangandi að til staðar sé gangbraut yfir götu. Þar beri báðum – akandi og gangandi –skylda til að sýna fyllstu aðgát. Gangbrautir eru ekki algengar á Vestfjörðum, og þær sem sjást eru oft illa merktar, jafnvel í nálægð skóla. Þessi gangbraut mætti vera sýnilegri en hún liggur yfir Austurveg á Ísafirði milli sundhallarinnar og grunnskólans þar sem fjöldi barna fer um á hverjum degi og allnokkur umferð eftir götunni. Ökumenn og börn þurfa að sýna hvort öðru tillitssemi svo ekki verði slys. Afkastageta Kalkþör- ungaverksmiðjunnar eykst umtalsvert Stór skemma við höfnina í Bíldudal hýsir Kalkþörunga-verksmiðjuna, en verksmiðjan er að verða einn stærsti atvinnurek- andi á Bíldudal. Nú stendur yfir um 100% stækkun á verksmiðjunni og þar með eykst framleiðslugetan um- talsvert. Liður í stækkuninni er að fá nýjan þurrkara í skemmuna en eldri þurrk- arinn er 1, megawött en sá nýi 3,6 megawött. Með tilurð hans getur verksmiðjan loksins fullnýtt starfs- leyfið sem hún hefur. Í verksmiðjunni er sem kunnugt er kalkþörungaset af hafsbotninum í Arnarfirði þurrkað, eftir að því hefur verið dælt upp af dæluskipum. Setinu er síðan dælt í lón, sem er við athafnasvæði verksmiðjunnar, því síðan mokað inn í hús og inn í þurrkara. Að þurrkun lokinni er það malað og úr verður kalkþörungamjöl, sem aðallega er nýtt sem áburður og steinefnafóður fyrir búpening og er flutt síðan flutt út, en það nýtist m.a. sem fæðubótarefni eða vítamín fyrir dýrin. Kalkþörungasetið er líka notað í vatnshreinsun, einkum í Frakklandi, en þá er það unnið á annan hátt. Verksmiðjustjóri er Guð- mundur V. Magnússon. bíldudalur. skemma Kalkþörungaverksmiðjunnar fremst á hafnarsvæðinu. Íslenska Kalkþörungafélagið ehf. var stofnað af Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða árið 2001. Náttfatadagur í Reykhólahreppi - bleikur dagur 4. október nk. Ákveðið hefur verið að prófa að fyrsti föstudagur í hverjum mánuði verði sér- stakur þemadagur í Reykhólahreppi hvað klæðaburð varðar. Þannig var fyrsti föstudagur í september nátt- fatadagur og var fólk í sveitarfé- laginu því hvatt til þess að klæðast náttfötum eftir því sem veður og færð og aðrar aðstæður framast leyfa. Hugmyndir um þemu fram til áramóta eru þessar; 4. október verði bleikur dagur; 1. nóvember verði allir með hálstau, hvort sem það eru bindi, slaufur eða slæður, en 6. desember verði ljótupeysudagur. Frekari hugmyndir eru vel þegnar í netfangið skrifstofa@reykholar.is .Jafnframt er fólk hvatt til að senda vefnum myndir frá þessum þema- dögum, hvort sem það er á heimilum eða vinnustöðum eða í skólanum. Ef fólk á slíkar myndir er blaðið VESTFIRÐIR tilbúið að birta slíkar myndir. Netfangið er geirgudsteins- son@simnet.is ,,Hlíðin mín fríða; hjalla meður græna; og blágresið blíða; og berjalautu væna; á þér ástaraugu; ungur réð ég festa; blómmóðir bezta! Þannig orti Jón thoroddsen fyrrum sýslumaður barðstrendinga um barmahlíðina í reykhólasveit sem hér má augum líta.

x

Vestfirðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.