Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 4
4 Fréttir / Fimmtudagur 17. júli 2003 Sparisjóðs- dagurinn SPARISJÓÐSdagurinn var á laugardeginum í goslokum. Var efnt til ýmissa leikja sem einkum voru ætlaðir þeim ungu. Á eftir grilluðu stjórn og starfsfólk pylsur sem öllum stóðu til boða. Tengdamömmusmj aður Ég vil byrja ú því að lýsa undrun minni á að Sveinn á Múla skyldi verða fyrir valinu sem matgœðingur þar sem liann spurði okkur félagana hvort pylsur skyldu soðrtar ípakkningunni eður ei og svo varð ég enn meira hissa þegar Sveinninn skoraði á mig eftirað hann kom í heimsókn til mín og ég var nýbúinn að steikja kleinur. Hann horfði andartak á kleinumar og sagði: „Nei, hva, bara kjúklingabitar! “ En livað sem þeim gömlu góðu dögum líöur œtla ég að skutla hér saman matseðli sem upplagt er að nota til að smjaðra við tengdamóður sína þvíþar er alltaf gott að eiga prik eða tvö. Þegar tengdó birtist ert þú búinn að setja púður- sykursrönd á staup (bleytir kantinn á staupi með sítrónusafa og stingur staupkantinum í púðursykur), hellir í staupið 2cl af koníaki, lcl Contreu og Jyllir upp með kampavíni. Þessi fordrykkur er einn affáum sem virkar. Fyrir utan að vera góður verður matarlystin svakaleg. Léttur forréttur fískbúðingur í dós erskorinn í fjóra parta, þú skerð út litlar skálar úr hvetjum parti og setur í smurt eldfast mótog bakarþangað til skálin fer að litast lítillega. Á meðan tekurþú skellausan humar og steikir í 150 gr afsmjöti og kryddar með sítrónupipar, bœtir útí höipudiski og rækjum og hellirgóðum slatta afhuítuíni yfir. Síðan veiðirþú fiskmetið nánast strax upp úr og setur út í einn hvítlauksost. Hrœrðu vel á meðan osturinn bráðnar. Settu fískmetið í fískbúðingsskálamar (sem tengdó á eftir að dásama í bak og fyrir), helltu sósunni yfir og stráðu smá steinselju yfir allt dæmið. Berið fram með vel kœldu Chardonnay og hrísgrjónum Hryggur Aðalrétturinn erhryggur. Þú byrjaráþví að flaka fituna (puruna) afí heilu lagi og flakarsvo fíllet og lundir af. Þú byrjar á því 2 tímum fyrir mat að setja beinagarðinn í eldfast mót og leggur kiyddaða puruna yfir hann. Seturþetta inn í ofn og eldareins og hryggirvoru eldaðir í gamla daga. Á meðan tekurþú vöðvana niðurí litlar steikur og leggurþœr í lög sem saman stendur af: 1 matsk. hvítlauksmauki 1 matsk. pipan ótarmauki, 5 matsk. hunangi, 4 matsk. dionsinnepi og smá dilli Snöggsteiktu kjötið (bara loka kjötinu) og settu það í eldfast mót. Skerðu 1 camembert ísneiðar og raðaðu á steikumar. Hentu þeim í ofn í2 mín. í mesta lagi. Taktu allt út, settu beinagarðinn á langan disk raðaðu steikum á sinn stað á beinagarðinn og leggðu punma yfír kjötið. Aður en þú labbar með hrygginn út úr elhúsinu hellirþú hálfu glasi afkoníaki yfírpuruna og kveikir í og leggur varlega á borðið við hliðina á Faustíno 1 rauðvíni, bökuðum kartöflum, gulum baunumog fersku salati. Nú,þarsem tengdamamma þín ernú afvelta og nálœgtþví ástfangin afþér er þér óhœtt að sleppa eftirréttinum og bjóða gömlu upp á kaffi og koníak og að sjálfsögðu drekkurþú henni til samlœtis. þar sem ég er í matar- og vínklúbbi þá er ekki úr vegi að skora á hinn meðliminn, Jón Högna Stefánsson, vélstjóra á Drangavík. N yf ce d d i xtt'j' §é v Vestmannaeyingar Þann 11. febrúar sl. eignuðust Ingunn Ragna Sæmunds- dóttir og Heiðar Kristinsson son sem skírður hefur verið Guðjón Ingi. Hann var 8 merkur og 47 sm við fæðingu. Hér er Guðjón Ingi með ömmu sinni, Guðmundu Steingrímsdóttur. Þann 17. apríl sl. eignðustj-lalldóra Knstín Ágústdóttir og Sveinn Matthíasson son sem skírður hefur verið Heimir Freyr. Hann var 12 merkur og 48 sm við fæðingu. Fjölskyldan býr í Vestmannaeyjum. Bryggjudagur ÍBV á laugardaginn Á laugardaginn verður hinn árlegi bryggjudagur ÍBV haldinn. Að vanda verður mikið um dýrðir en þetta er í þriðja sinn sem handknattleiksdeild ÍBV stendur fyrir miklum hátíðahöldum á bryggjunni. Verður bryggjudagurinn á Eim- skipsplaninu milli klukkan 13 og 17.00 á laugardag. Boðið verður upp á mikið úrval fiskmetis á hreint frábæru verði og eins verður kaffihús á staðnum þar sem hægt verður að fá sér kaffi, kökur og vöfflur. Pylsur verða grillaðar og seldar gegn vægu verði, aðeins hundrað kall fyrir pylsu og pepsí í dós. Boðið verður upp á létt skemmtiatriði og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. SJÓVE verður með dorgveiðikeppni við Nausthamar hjá FES og hefst keppnin klukkan eitt. Eyjamenn em hvattir til að taka þátt í bryggjudeginum, gera sér glaðan dag, kaupa sér glænýjan fisk í soðið og njóta góða veðursins sem miðað við síðustu veðurspá verður í Eyjum um helgina. Myndin er frá bryggjudeginum í fyrra sem þótti mjög vel heppnaður og mæltist úrvalið af fiski, sem var á boðstólum, vel fyrir. a döfinni 16. - 20. Meislaramól GV í golfi. 17. -19. Tríkot á Lundanum. 19. 65 ára afmælismól Símans og GV. 19. Bryggjudagur frá kl. 13-17 á fimskipsplaninu. 24.-27. Islandsmólið í golfi. 26. 2. deild karla: KFS - KS kl. 16.00 á Helgafellsvelli. 30. Landsbankadeild kvenna: ÍBV - Valur kl. 20.00 á Hásteinsvelli. 31. Húkkaraballið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.