Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 19

Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 19
Fréttir / Fimmtudagur 17. júlí 2003 19 Knattspyma Landsbankadeild karla: ÍA 0 - ÍBV 3 KA 3 - IBV 1 Frábær sisur 03 masaiendins ÍBV mætti Skagamönnum á útivelli í síðustu viku en IBV hefur ekki riðið feitum hesti frá viðureignum fél- aganna á Akranesi undanfarin ár. En nú tókst Eyjamönnum að snúa dæminu við. Gengi ÍBV hafði verið rysjótt framan af sumri, liðið hefur leiki feikivel á köflum en dottið niður þess á milli. í leiknum gegn ÍA var IB V greinilega í góðu formi því Eyja- peyjar sigruðu Skagamenn sannfær- andi, 0-3. Magnús Gylfason gerði eina breyt- ingu á liðinu frá því í síðasta leik. Bjamólfur Lárusson kom aftur inn í liðið eftir að hafa tekið út leikbann en Bjami Rúnar Einarsson fór á bekkinn. Þá færði Magnús Atla Jóhannsson í ífamlínuna með Gunnari Heiðari. Þeir kunnu þessu greinilega vel því þeir áttu öll mörkin þijú sem IBV skoraði í leiknum. Atli fann sig vel í fram- línunni því auk þess að skora tvö mörk þá lagði hann upp markið íyrir Gunnar Heiðar. IBV liðið lék sterkan vamarleik á Skaganum, hélt sig aftarlega á vell- inum og beið færis. Þessi leikaðferð var lengi vel eitt af aðalsmerkjum IBV og færði liðinu titla. Eyjamenn léku svo síðari hálfleik einum fleiri þar sem einum Skagamanninum var vikið af leikvelli rétt fyrir leikhlé. ÍBV spilaði 4-4-2 Birkir Kristinsson, Hjalti Jóhann- esson, Tom Betts, Tryggvi Bjamason, Unnar Hólm Olafsson, Ian Jejfs, Bjarni Geir Viðarsson, Bjarnólfitr Lárusson, Andri Olafsson, Atli Jó- hannsson, Gunnar Heiðar Þor- valdsson. Varamenn: Igor Kostic, Einar Hlöð- ver Sigurðsson, Pétur Runólfsson (kom inn á 80. mín), Bjarni Rúnar Einarsson (kom inn á 73. mín), Hjalti Jónsson (kom inn á 86. mín). Mörk ÍBV: Atli 2 og Gunnar H. 1. Skorti einbeitingu og baráttu Á sunnudagskvöld mætti IBV svo KA á Akureyri en eins og fyrir leikinn gegn IA var búist við erfiðum leik fyrir Eyjamenn. Sú varð raunin því eftir að hafa sótt meira íyrstu mínútur leiksins áttu leikmenn ÍB V fá svör við leik KA manna sem vom mun ákveðnari og sigmðu þeir sanngjamt 3-1. Það er spuming hvort leikurinn á Skaganum hafi stigið Eyjamönnum til höfuðs því mikið vantaði upp á að einbeiting leikmanna væri í lagi auk þess sem baráttuna skorti. Eins og áður sagði byrjuðu Eyja- menn leikinn mjög vel og strax á sjöttu mínútu fékk Gunnar Heiðar ágætt færi sem markvörður KA manna varði vel. En fyrsta mark leiksins leit dagsins Ijós eftir stundar- fjórðungsleik þegar Birki Kristinssyni mistókst herfilega að koma boltanum frá marki. Hreinn Hringsson fékk boltann fyrir utan teig og lét vaða á markið, boltinn hafði viðkomu í vamarmanni ÍBV og í netið. Sannkallað heppnismark norðanmanna. Tíu mínútum síðar hafði Ian Jeffs hins vegar jafnað leikinn með góðu skallamarki eftir glæsilega sendingu Hjalta Jóhannes- sonar. Annað mark heimaliðsins var svo einkar klaufalegt. Tryggvi Bjamason reyndi að skalla frá marki en boltinn fór hátt í loft upp og börðust Tryggvi og hinn norski framherji KA-manna, Steinar Tenden um boltann á mark- teigshominu. Tenden hafði betur, skallaði aftur fyrir sig og boltinn fór í háum boga yfir Birki í markinu og endaði í netinu, enn og aftur heppnin með KA-mönnum. Þriðja mark KA-manna má svo skrifa á vamarmenn ÍBV þar sem Hreinn spólaði sig framhjá hverjum leikmanni IBV á fætur öðrum og skoraði svo með góðu skoti og staðan í hálfleik 3 - 1. Síðari hálfleikur var mun harðari en sá fyrri og átti greinilega að láta sverfa til stáls. Um miðjan hálfleikinn fengu norðanmenn svo vítaspyrnu en Birkir Kristinsson gerði sér lítið fyrir og varði spymuna. Fátt annað markvert gerðist í síðari hálfleik, KA menn vörðu sinn hlut og niðurstaðan því 3-1 taj> fyrir KA og sex stig til þeirra frá IBV í sumar. IBV spilaði 4-4-2 Birkir Kristinsson, Hjalti Jóhannes- son, Tryggvi Bjarnason, Tom Betts, Unnar Hólm Olafsson, lan Jeffs, Bjarni Geir Viðarsson, Bjamólfur Lárusson, Andri Olafsson, Atli Jó- hannsson, Gunnar Heiðar Þorvalds- son. Varamenn: Igor Kostic, Pétur Runólfsson (kom inn á 82. mín), Bjarni Rúnar Einarsson (kom inn á 70. mín.) Einar Hlöðver Sigurðsson (kom inn á 82. mín.), Hjalti Jónsson. Mark ÍBV: lan Jeffs. Landsbd. kvenna: Stjarnan 0 - IBV 0 Þróttur/Haukar 0 - IBV Lítil von um titil þetta árið ÞÓ íslandsmeistaratitillinn sé ekki lengur í augsýn hljóta ÍBV-stelpurnar að eiga góða möguleika í bikarnum. Visabikar kvenna: Ætlum að breyta sösunni -segir Heimir Hallgrímsson um leikinn á morgun gegn Breiða- bliki í undanúrslitunum Á morgun, föstudag, leikur kvennalið IBV sinn mikilvægasta leik í sumar þegar liðið mætir Breiðabliki í undanúrslitum Visabikar- keppninnar. Leikurinn fer fram í Kópavogi og hefst klukkan 20.00 en í hinum undanúrslitaleiknum mætast Valur og Stjarnan og fer sá leikur fram í kvöld. Sagan sýnir að líkurnar á að annaðhvort IBV eða Stjaman komist í úrslit séu litlar þar sem KR, Valur og Breiðablik hafa nánast skipst á að leika til úrslita í bikar- keppninni undanfarin ár. Heimir Hallgrímsson sagði að leikmenn og forráðamenn IBV ætluðu sér að breyta sögunni. „Það er rétt, líkurnar eru á móti okkur en það gerir verkefnið einfaldlega skemmtilegra fyrír vikið. Við ætlum okkur í úrslitaleikinn enda emm við búin að vinna KR og það væri fúlt að hafa unnið besta Iiðið en komast ekki í úrslitaleikinn. En við gemm okkur grein fyrir að þetta verður erfiður leikur enda á útivelli og okkur hefur ekkert gengið allt of vel á útivöllum í sumar. Við höfum hins vegar unnið Breiðablik, reyndar hérna í Eyjum en af hverju ekki að gera það aftur? Við óskum bara eftir því að fólk á höfuð- borgarsvæðinu mæti á völlinn og styðji okkur, það myndi virkilega hjálpa okkur í að breyta sögunni,“ sagði Heimir. Kvennalið ÍBV mætti Stjömunni í Garðabænum en Eyjastúlkur hafa undanfarin ár verið í miklum vand- ræðum með að sigra í Garðabænum. Stjömustúlkur eiga það til að leika mjög öflugan vamarleik og þegar liðin mættust á fimmtudag var ljóst að heimaliðið lagði alla áherslu á vamar- leikinn. Fyrir vikið náðu Eyjastúlkur sjaldnast að ógna marki Stjömunnar og lokatölur urðu 0-0. Það var nauðsynlegt íyrir ÍBV að ná í þrjú stig í Garðabænum ef liðið ætlaði sér að eiga möguleika á ís- landsmeistaratitlinum en KR-ingar hafa náð afgerandi forystu í deildinni. Vonir Eyjastúlkna minnkuðu stórlega með jafnteflinu þar sem ólíklegt er að KR-liðið eigi eftir að tapa mörgum stigum það sem eftir lifir sumarsins. Annars er fátt um leikinn að segja, ÍBV sótti meira en heimaliðið stillti upp þéttum vamarmúr og beitti skyndisóknum en hvomgu liði tókst að brjóta ísinn og niðurstaðan því markalaust jafntefli. Markmaðurinn reyndist erfiður ÍBV lék svo gegn Þrótti/Haukum á sunnudag og var búist við frekar auð- veldum sigri ÍBV. Annað kom reyndar á daginn því þrátt fyrir þunga sókn IBV tókst aðeins að koma bolt- anum þrívegis í netið og lokatölur 0-3 íyrir ÍBV. Yfirburðir IBV vom miklir og fór mestur hluti leiksins fram á leikhelm- ingi heimaliðsins, Þróttar/Hauka. ÍBV skapaði sér fjölmörg færi en síðasta hindmnin var markvörður heima- stúlkna, sem lék á als oddi í leiknum og varði hvert skotið á fætur öðm. Það var ekki fyrr en á 23. mínútu þegar Margréti Lám Viðarsdóttur tókst að koma boltanum í netið úr vítaspymu eftir að brotið var á henni sjálfri. Áfram hélt ÍBV að sækja og færin létu ekki á sér standa en fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik. f síðari hálfleik var allt enn við sama heygarðshomið, Eyjastúlkur sóttu látlaust en náðu ekki að koma boltanum framhjá markverði Þróttar/- Hauka. Það var svo undir lok leiksins að Olgu Færseth tókst að finna leiðina og fris Sæmundsdóttir gekk á lagið og tryggði ÍBV þriggja marka sigur. Mörk ÍBV: Margrét Lára Viðars- dóttir, Olga Færseth og fris Sæ- mundsdóttir. Knattspyrna, 2. deild: Sindri 1 - KFS 3 Sindri sá um að afgreiða Sindra KFS lék á laugardag gegn Sindra Homafirði á útivelli. KFS hefur gengið ágætlega í 2. deildinni, var reyndar fyrir leikinn í neðri hluta deildarinnar en við því mátti búast þar sem KFS em nýliðar í deildinni. Allir sigrar Eyjamanna höfðu til þessa komið á heimavelli en það breyttist á laugardag því KFS sigraði Sindra 2-3. Það var mikilvægt fyrir KFS að ná þremur stigum af Sindramönnum því bæði lið em í neðri hlutanum og með sigri gátu Eyjamenn losnað lítið eitt undan falldraugnum. Erfitt ferðalag kom ekki niður á einbeitingu leikmanna KFS því liðið komst yfir í leiknum, 0 -1 . Heimamenn náðu hins vegar að jafna leikinn en KFS komst aftur yfir og gott betur því staðan varð 1 -3 fyrir KFS. Heimamenn náðu að minnka muninn og sóttu stíft síðustu mínútumar en vömin hélt hjá KFS og fyrsti útisigur liðsins því staðreynd. Það fyndna við sigurinn gegn Sindra var að Sindri Grétarsson skoraði öll mörk KFS og lokatölur því Sindri 2 - Sindri 3. Í!™"!!*reltir Sindrí a skotskónum Sindri Grétarsson hefur heldur betur fundið gömlu góðu skotskóna eftir að hann byrjaði aftur að spila með KFS. Eftir að hafa spila þtjá leiki með liðinu er hann orðinn marka- hæstur í 2. deild karla með níu mörk. Skoraði Sindri tvö mörk í fyrsta leiknum, í kjölfarið komu svo fjögur mörk gegn Létti og urn helgina skoraði Sindri þrennu gegn Sindra frá Homafirði. Nú er spuming hvort Chelsea sé farið að renna hým auga til Eyja en Hjalti Kristjánsson hefur látið hafa það eftir sér að Sindri sé ekki til sölu. Marsrét Lára osKaritas með U-17ára U-17 ára kvennalandslið íslands í knattspymu heldur á sitt annað mól á rúmum mánuði en um næstu mánaðamót fara fram Olympíu- leikar æskunnar og em þeir haldnir í París. Tveir leikmenn úr ÍBV em í hópnum, þær Margrét Lára Viðars- dóttir, sem lék einnig með liðinu í opna Norðurlandamótinu á dögun- um en Karitas Þórarinsdóttir bætisl nú í hópinn. Margrét Lára var fyrirliði liðsins í Norðurlanda- mótinu á dögunum. Tryggui og lan í bann Þeir Tryggvi Bjamason og Ian Jeffs taka út eins leiks bann í næsta leik sem er heimaleikur gegn Val. Ástæða þess er að báðir fengu þeir sitt fjórða gula spjald í leiknum gegn KA sem þýðir sjálfkrafa eins leiks bann. Þá fékk Bjamólfur Lámsson einnig gult spjald sem þýðir að með næsta spjaldi fer hann í sitt þriðja leikbann á sumrinu. Framundan Fimmtudagur 17. júlí Kl. 18.00 Valur-ÍBV 3. fl. karla Föstudagur 18. júlí KI. 20.00 Breiðablik-ÍBV Visabikar kvenna. Kl. 20.00 ÍBV-Leiknir R. 2. fl. ka. Kl. 20.00 Selfoss-KFS. Laugardagur 19. júlí Kl. 14.00 HK-ÍBV 5. fl. karla ABCD. Kl. 15.00 Breiðablik-ÍBV 3. fl. ka. Kl. 16.00 ÍBV-Þór/KA/KS 2. fl. kvenna. Sunnudagur 20. júlí Kl. 12.00 IR-ÍBV 5.fl. karla ABCD Kl. 13.00 Þór/KA/KS-ÍBV 2.fl. kvenna. Kl. 13.00 Keflavík-ÍBV 3.fl. karla. Þrið judagur 22. júlí Kl. 20.00 Leiknir R-ÍBV 2. fl. karla. Kl. 20.00 Valur-ÍBV 2. II. kvenna. Miðvikudagur 23. júlí Kl. 17.00 ÍBV-Grindavík 4. fl. kv. Kl. 17.00 ÍBV-KR 5. fi. karla ABCD.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.