Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 16
16
Fréltir/ Fimmtudagur 17. júli 2003
Sumarstúlka Vestmannaeyja 2003 og Herra Vestmannaeyjar:
Sædís Eva og Stefán Atli sigurvegarar
Hún var líka valin ljósmyndafyrirsætan - Eygló Egilsdóttir var kjörin Vinsælasta stúlkan af
keppendum sjálfum auk þess sem hún var valin Hummel-Sportstúlkan - Benedikt Óskar
Steingrímsson var Hummel-sportherrann og Foto-ljósmyndafyrirsætan
Það var mikið um dýrðir í Höllinni á laugardaginn þar sem rúmlega 300 gestir
fylgdust með Sumarstúlkukeppninni 2003 og vali á Herra Vestmannaeyjum.
Sædís Eva Birgisdóttir kom sá og sigraði og stóð uppi sem Sumarstúlka
Vestmannaeyja 2003 auk þess sem hún var valin Foto-ljósmyndafyrirsætan
2003. Eygló Egilsdóttir var kjörin Vinsælasta stúlkan af keppendum sjálfum auk
þess sem hún var valin Hummel-Sportstúlkan. Valið á Herra Vestmannaeyjar
var tekið upp að þessu sinni við hliðina á Sumarstúlkukeppninni og þar stóð
Stefán Atli Agnarsson uppi sem sigurvegari og Benedikt Oskar Steingrímsson
var Hummel-sportherrann 2003 og Foto-ljósmyndafyrirsætan.
Þátttakendur í keppninni Herra Vestmannaeyjar voru Styrmir Jóhannsson,
tuttugu og eins árs, Ragnar Smári Ragnarsson átján ára, Stefán Atli Agnarsson
sem verður átján ára ájtessu ári, Stefán Bjöm Hauksson verður nítján ára á
þessu ári og Benedikt Oskar Steingrímsson sautján ára.
Sumarstúlkumar vom Sædís Eva Birgisdóttir sautján ára, Amdís Bára
Ingimarsdóttir átján ára, íris Elíasdóttir nítján ára, Sigrún Ama Gunnarsdóttir
sautján ára, Thelma Rós Tómasdóttir nítján ára, Ásta Hrönn Guðmundsdóttir
sautján ára, Eygló Egilsdóttir nítján ára og Ingibjörg Ósk Þórðardóttir átján ára.
Dagskráin hófst með opnunaratriði sem var með indverskum blæ og tóku
bæði strákamir og stúlkumar þátt í því. Svo rak hvert atriðið annað, fyrst var það
Silja Elísabet Brynjarsdóttir sem söng nokkur lög við undirleik Víkings
Mássonar gítarleikara, þá stigu nokkrar stúlkur dans undir stjóm Irisar Önnu
Steinarsdóttur, Sindri Freyr Ragnarsson tætti af sér föt og brandara, féiagar úr
Leikfélaginu komu fram, bæði Sindri Freyr og Ema Björk Einarsdóttir sem sló
í gegn í Gauragangi síðasta vetur. Védís Guðmundsdóttir og Víkingur fluttu lög
BENEDIKT Óskar myndast öðrum betur að mati dómnefndar auk þess
sem hann er Sportherrann 2003 í Eyjum. Bakvið er Ragnar Smári.
EYGLÓ brosti sínu blíðasta sem Sportstúlka Hummel 2003.
ÚRSLTIN kunngjörð. Sædís Eva fagnar sigrinum, og Sigrún Arna og Ásta Hrönn samfagna henni.
STEFÁN Atii var vel að sigrinum kominn.