Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Side 20

Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Side 20
Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 / Fox 481-1293 LRmEmR VEITINGAHÚS BÁRUSTÍG 11 sT A ^ SÍMI 481 3393 IGoður matur. Góð þjónusta. Kostar minna en þú heldur. Sendibílaakstur - innaiibæjar Vilhjálmur B n 481-2943 o 897-1178 ergsteii SEMðÍPEII isson IMBÍLL SMÁEY VE 144 kom til heimahafnar í Eyjum á laugardaginn. Kaupin lentu fyrir dómstólum þar sem seljandinn vildi taka hærra tilboði eftir að Bergur-Huginn ehf. hafði þinglýst kaupsamningi. Bergur-Huginn hafði sigur. Minna framboð á ferðum Samkvæmt afgreiðslu Herjólfs er nú þegar nánast fullt í báðar ferðir fimmtudag og föstudag fyrir þjóð- hátíð. Fólk virðist líka koma fyrr en áður, jafnvel strax á þriðjudeginum. Flugfélag Vestmannaeyja mun mynda loftbrú milli Vestmannaeyja og Bakka og er nú fullt í allar ferðir eftir klukkan tvö á föstudeginum en enn er eitthvað laust fram að því. Eins er þéttsetið seinni part fimmtu- dags og fá sæti eftir á Bakka á mánudeginum. Ekki er eins mikið pantað hjá þeim nú og í fyrra. íslandsflug áætlar 12 vélar til Eyja fimmtudag og föstudag en ekki fengust upplýsingar um hversu stórar þær vélar eru eða hvort fleiri ferðir eru fyrirhugaðar. Þjóðhátíðarnefnd hefur vissar áhyggjur af flutningsmálum enda virðist spurningin ekki vera hvort fólk vilji koma á þjóðhátíð heldur hvort það kemst til Eyja. Ýmsar leiðir hafa verið ræddar til að bregðast við vandanum sem er að nú eru á milli 400 og 500 færri sæti í boði í flugi en í fyrra sem er að mestum hluta vegna brotthvarfs Flugfélags Islands. Páll Scheving, framkvæmdastjóri ÍBV, sagði að það væri ekki eftir- spumin sem þeir hefðu áhyggjur af heldur framboðið á ferðum. „Það er takmarkað sem við getum gert enda emm við ekki í fólksflutningum. Við höfum sett okkur í samband við þá sem em í þessum geira en þetta er erfiðara í framkvæmd en áður vegna reglugerða um skráningu far- þega og fleira," sagði Páll. íslandsmeistaramót í golfi í Eyjum: Þeir bestu mæta í næstu viku, dagana 24. til 27. júlí, verður Islandsmeistaramótið í golfi haldið í Vestmannaeyjum. Þetta er stærsta goifmót ársins á ísiandi og flestir af bestu kylflng- um landsins munu mæta til Ieiks. Umfang þessa móts er mikið og áætlað að um 50 sjálfboðaliðar taki þátt í vinnu við undirbúning og í mótinu sjálfu auk þess sem fjöldi manns vinnur nú daglega við að slá og hirða golfvöllinn svo að hann verði í sem bestu standi mótsdag- ana. Allt bendir til þess að völl- urinn verði í toppstandi, hann er iðjagrænn og vel gróinn og hefur sjaldan verið betri. Helgi Bragason, formaður GV, segir að búist sé við 120- 150 kepp- endum, körlum og konum og auk þess megi reikna m ;ð u.þ.b. einum aðila með hverjum keppanda þann- ig að hér verði milli 250 og 300 manns ofan af landi gagngert vegna mótsins. 1 Bein sjónvarpsútsending frá mót- inu verður á Sýn á laugardag og sunnudag og voru aðilar frá GSÍ og Sýn hér á þriðjudag til að undirbúa útsendinguna. „Við sögðum þeim að það eina sem við ekki gætum ábyrgst vegna þessa móts, væri veðrið. En ef veðrið verður gott þá fáum við varla betri kynningu fyrir völlinn og Eyjar en slíka beina útsendingu," sagði Helgi. Þegar hafa rúmlega 80 manns skráð sig í mótið en skráningu lýkur á sunnudag. Af þeim eru tíu heima- menn en við eigum í dag nokkra spilara sem hæglega gætu blandað sér í baráttuna um efstu sæti. Þeir sem eru hvað heitastir af Eyja- mönnum eru Júlíus Hallgrímsson sem lenti í 2. sæti í mótinu í fyrra, Örlygur Helgi Grímsson, sem hefur spilað mjög vel í ár og svo marg- faldur Islandsmeista'ri fyrri ára, Björgvin Þorsteinsson, sem spilar fyrir GV. Þá bíða menn þess að Karl Haraldsson fari að blómstra. íslandsmótið er nú haldið með nokkuð breyttu sniði. Aður var keppt í mörgum flokkum en nú er aðeins keppt í höggleik þar sem bestu kylfingarnir hafa rétt til þátt- töku. Fyrir hina er haldið Lands- mót 35 ára og eldri sem er flokka- skipt. Landsmót var síðast haldið í Eyjum árið 1996 og þótti takast með afbrigðum vel. Sigurvegari þá í karlaflokki var atvinnukylfmg- urinn Birgir Leifur Hafþórsson og mun hann mæta núna. Helgi segir það mikið metnaðar- mál fyrir klúbbinn að halda íslands- mót og ef vel takistl til sé þetta frá- bær auglýsing fyriri völlinn. Til að allt gangi upp þárf mikið sjálf- boðastarf og er þess óskað að þeir sem hafa tök á að hjálpa til við mótið hafi samband við fram- kvæmdastjóra klúbbsins. „Þeir sem hafa unnið við slík mót eru sam- mála um að það sé mjög skemmti- legur starfi," segir Helgi. Æfingasvæði mótsins verður á Þórsvellinum. „IBV heimilaði okkur fúslega aðgang að því svæði og verður umferð að einhverju leyti takmörkuð um Hamarsveg vegna þess keppnisdagana. Við biðjum bæjarbúa að sýna skilning á því. Mótið skilar okkur það miklu að sú lokun er lítilvæg, miðað við þá miklu hagsmuni sem í húfi eru fyrir okkur,“ sagði Helgi. VIKUTILBOÐ 17. júlí - 23. júlí Verð Nú Kuchen Meister kökur 139,- Prince kex 2 pk snmun 179,- Lu Bostonge kex 168,- Vol Chic kex 300 gr 99,- Morkizy kex 99,- Horpic 2in1 WC steinor 199,- Horpic WC klútor 299,- Powo eldhúsrúllur 3 stk 218,- Povo Wc poppír 6 rl 322,- Morcio óvoxto hloup 250 gr 169,- Milko súkkuloði 100 gr 89,-

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.