Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Page 1

Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Page 1
✓ H ERJOLFU R Daglega Frá Frá V«itm.«yjum Þorl.höfn 8.15 12.00 Aukaferðlr: Alla daga nema þrl., mið. og laug. 16.00 19.30 HERJÓLFUR Upplýaingasfmi: 481-2800 * www.hsrjolfur.is 30. árg. / 38. tbl. / Vestmannaeyjum 18. september 2003 / Verð kr.180 / Sími 481-1300 / Fax 481-1293 / www.eyjafrettir.is TM-ÖRYGGI fyrir fjölskylduna sameinar öll tryggingamálin á einfaldan og hagkvæman hátt Á öllutn svidum! Bílaverkstæðið Bragginn s.f. Flótum 20 Viðgerðir og smurstöð Sími 481 3235 _ . Rettmgar og sprautun Sími 481 1535 Skip Heildarlausn og íflutningum bílt E EIMSKIP www.eimskip.is • www.flytjandi.is • simi 4S13500 Stormviðri í Bíóinu í kvöld -Sólveig Anspach, leik- stjóri og aðalleikarar verða viðstödd Efnt verður til sérstakrar sýningar á myndinni Stormy Weather, Stormviðri, fyrir boðsgesti í Bíóinu í Vestmannaeyjum, í dag, fimmtudag kl. 18.00. -Sólveig Anspach, leikstjóri, kemur til landsins sama dag og verður viðstödd sýninguna í Eyj- um ásamt Diddu Jónsdóttur sem lék annað aðalhlutverkið í mynd- inni, nema „stormviðri" komi í veg fyrir það. Mireya Samper, sem leikur annað aðalhlutverkið, verður einnig viðstödd en Baltasar Kor- mákur, sem er einn framleiðenda auk þess að leika í myndinni, verður fjarri góðu gamni þar sem hann þarf að ná flugi til útlanda snemma í fyrramálið. Stormy Weather eða Stormviðri, eins og myndin heitir á íslensku, var valin til sýningar á kvik- myndahátíðinni í Cannes í vor þar sem hún fékk lofsamlega dóma gagnrýnenda. Um þessar mundir er myndin sýnd á hinni árlegu kvikmynda- hátíð í Toronto, einni mikilvæg- ustu kvikmyndahátíð ársins fyrir Bandarfkjamarkað og Kanada. I Toronto hefur myndin líka fengið góða aðsókn og góða dóma. Formleg frumsýning myndar- innar hér á landi verður í Háskólabíói á morgun en Bíóið í Vestmannaeyjum sýnir myndina á almennri sýningu kl. 21.00 í kvöld að forsýningu lokinni og er það viðburður í sjálfu sér því þetta verður fyrsta almenna bíósýning á myndinni í heim- inum. Ráðgert er að myndin fari í dreifingu í Frakklandi í nóvember en einnig verður henni dreift í Belgíu, Hollandi og víðar á næstu mánuðum. Samningaviðræður standa yftr um dreifingu Storm- viðris í Þýskalandi, Bandaríkj- unum og Japan. Eyjamenn, einstaklingar jafnt sem fyrirtæki og bæjarstjórnin öll, eiga stóran þátt f gerð mynd- arinnar og stuðningur allra sem að komu ómetanlegur. Þeir sem að framleiðslunni komu, með Sólveigu Anspach í broddi fylkingar, senda Eyjamönnum öllum ómældar þakkir fyrir sam- starfiðf' segir í frétt um myndina. GAMLI og nýi tíminn. í forgrunni er gamli slippurinn og Skipalyftan í bakgrunni. Mynd: Sæþór Vídó. Enn eru að koma fram gögn hjá Þróunarfélaginu: Sorgarsaga sem verður að ljúka -og mikilvægt að menn læri af reynslunni, segir bæjarstjóri Málefni Þróunarfélagsins hafa enn og aftur dúkkað upp í bæjarstjórn eftir að bókhaldsgögn fundust á skrifstofu félagsins. Bergur Elías Agústsson, bæjar- stjóri og starfandi framkvæmda- stjóri félagsins, hefur unnið að því síðustu vikur að ganga frá bókhaldi félagsins svo hægt verði að leggja það niður. Hefur það dregist vegna þeirra reikninga sem nú hafa verið að koma í ljós. Bergur sagði í samtali við Fréttir að um væri að ræða þrjá plastpoka af reikningum. „Þarna er um að ræða bókhaldsgögn sem ekki hefur verið komið til skila eða þau með- höndluð samkvæmt lögum um bókhaldsskil," sagði Bergur. Hann sagðist ekki geta sagt til um upphæðir í þessu sambandi enda væri óljóst hvað væri greitt og hvað ógreitt af þeim reikningum sem nú hafa fundist. „Upphæðirnar skipta kannski ekki meginmáli heldur það, að ntenn sem hafa stjórnað félaginu hafa ekki sinnt sínu starfí á fag- legum nótum." Bergur benti á þriðju grein stofn- samnings um félagið þar sem segir meðal annars að áhersla sé lögð á að félagið sýni frumkvæði og skipulögð og fagleg vinnubrögð. „Þetta snýst um það, að ef þú ætlar að veita öðrum ráð skaltu hafa þokkalega hreint fyrir þínum dyrum." Aðspurður um hvort hann héldi að um sakamál væri að ræða sagði Bergur það vel hugsanlegt. „Aftur á móti er ég í ákveðnu verkefni sem framkvæmdastjóri félagsins. Eg hef haldið einn fund þar sem ákveðið var að leggja félagið niður. Það hefði klárast í þessum mánuði hefðu þessi gögn ekki dúkkað svona upp.“ Hann sagði ekki aðalmálið hvar reikningarnir hefðu fundist. „Þeir fundust eingöngu vegna þess að ég lét fara yfir öll gögn sem þama voru inni," sagði Bergur sem vildi ekki vera að velta sér frekar upp úr hvar reikningarnir hefðu verið. „Þessari sorgarsögu verður von- andi lokið í næsta mánuði og nú er mikilvægt að menn læri af reynslunni." Skiptar skoðanir um línuívilnun Sjávarútvegsnefnd var hér á ferð í síðustu viku. Þar var m.a. rætt um línuívilnun sem Eyjamenn eru ósáttir við. | BLS. 8 og 9 Fjömennt kennaraþing I dag og á morgun halda grunn- skólakennarar þing í Eyjum og verða þátttakendur um 330. | BLS. 18.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.