Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Blaðsíða 18
18
Fréttir / Fimmtudagur 18. september 2003
Uppskeruhátíð KFS:
Fjölmennt þing grunnskólafólks
STJÓRN félagsins, Ágústa, Ólöf Heiða, Svava, Guðrún og Elín.
Stjóm Kennarafélgs Vestmannaeyja
heíúr í mörg hom að líta þessa dagana
við undirbúning haustþings kennara
sem hefst síðdegis í dag, fimmtudag.
Þingið sækja kennarar og skóla-
stjómendur grunnskóla á Suðurlandi.
Búist er við unr 220 manns ofan af
landi en í allt verða þingfulltrúar,
gestir og fyrirlesarar um 330. Boðið er
upp á fjölda fyrirlestra um hin ólíkustu
efni sem tengjast kennslu og skóla-
starfi.
I stjóm Kennarafélags Vestmanna-
eyja sitja Svava Bogadóttir formaður,
Guðrún Stefánsdóttir varaformaður,
Ólöf Aðalheiður Elíasdóttir gjaldkeri,
Elín Yngvadóttir ritari og Ágústa
Guðnadóttir meðstjómandi. í samtali
við Fréttir sögðu þær að komin væri
hefð á haustþing kennara unr allt land.
„Síðustu tvö ár hafa grunnskóla-
kennarar í Vestmannaeyjum haldið sín
þing með kennurum og starfsfólki
allra skólastiga í bænum. Þau þing
vom mjög vel heppnuð. Fyrir þremur
árum héldum við hinsvegar þing á
Flúðum með starfsbræðmm okkar á
Suðurlandi. Nú er komið að okkur að
bjóða þeim hingað til Eyja,“ sagði
Svava.
„Það hefði verið gaman að vera
áfram með öll skólastigin saman en
því miður leyfa aðstæður það ekki og
það er ekkert sem segir að þingin þurfi
alltaf að vera með sama sniði. Það
koma 220 gestir ofan af landi og í allt
verðum við 330 á þinginu með gestum
og fyrirlesumm."
Við emm búin að fylla næstum allt
gistirými og við myndum illa ráða við
að halda stærra þing,“ sögðu þær.
Dagskrá þingsins mun ná til margra
sviða í kennslu og skólastarfi almennt.
„Á svona þingum kynnumst við
ólíkum sjónarmiðum, fræðumst um
nýjar kennsluaðferðir, nýtt námsefni
og sjáum hvemig aðrir takast á við hin
ýmsu mál sem koma upp í skóla-
starfinu um leið og við aukum okkar
faglegu vitund. Þingin em líka
vettvangur til að sýna sig og sjá aðra
og þessi þáttur á ekki síst við sam-
eiginlega árshátíð sem verður í kvöld.“
Þær sögðu að undirbúningur hefði
staðið í eitt ár og hefur mestur þunginn
hvílt á stjómum kennarafélaganna í
Vestmannaeyjum, Suðurlandi og for-
manni Skólastjórafélags Suðurlands,
Hjálmfríði Sveinsdóttur, skólastjóra
Bamaskólans. „Það hafa allir lagt sig
fram og við emm bara nokkuð bjart-
sýnar á að þingið verði vel heppnað,"
sögðu þær að lokum.
Fjölmargir fyrilestrar
Meðal þess sem boðið er upp á
þinginu er fyrirlestur Sigrúnar Áðal-
bjamardóttur, prófessors við HI,
sýningu Námsgagnastofnunar og
Rauða kross Islands, kynningu á
styrkjum Evrópusambandsins vegna
Sókrates- og Comenius verkefna og
Menntagáttar.
Aðrir fyrirlestrar em; skyndihjálp
fyrir unglinga, að læra nýtt tungumál,
textil/þæfing, Olweus-kerfið, Early
steps, hlustunarskilyrði í kennslu-
stofunni og raddbeiting, listin að nota
leiklist í gegnum kennslu, kynning á
rafrænu námsefni í dönsku, lífsleikni,
heimspeki í gmnnskóla, stærðfræði,
árangur fyrir alla gmnnskóla-
nemendur, tónmennt fyrir yngsta stig
og handritin heima.
Hlynur bcstur 03 Sindri sýndi mestar framfarir
KFS héll lokahóf sitt í golfskálanum
um helgina og fögnuðu menn sæti í 2.
deild að ári. Að venju vom afhentar
viðurkenningar fyrir sumarið, þannig
fékk Sindri Grétarsson verðlaun fyrir
mestar framfarir og Sæþór Jóhannes-
son prúðasti leikmaður. Markahæstur
í KFS varð Yngvi Borgþórsson með
tólf mörk í deild og bikar en þess má
til gamans geta að næstur kom Sindri
Grétarsson með tíu mörk í aðeins
fjórum deildarleikjum. Þannig að ef
hann hefði spilað alla átján leiki KFS í
deild þá hefði hann endað með 45
mörk, samkvæmt þeim útreikningi.
Að lokum var Hlynur Stefánsson
valinn besti leikmaður KFS enda þótt
hann hafi ekki spilað alla leiki liðsins
þá var hann yfirburðamaður á
vellinum í þeim leikjum sem hann
spilaði og í raun hálf sorglegt að hann
skuli ekki enn vera að spila í efstu
deild. Leikmenn og forráðamenn
liðsins skemmtu sér svo saman fram
eftir kvöldi og enduðu lokahófið á
balli með Sálinni.
HLYNUR, sá besti 2003, Hjalti þjálfari og Yngvi Borgþórs, markakóngur KFS 2003.
Landakirkja
Fimmtudagur 18. september
Kl. 10.00 Mömmumorgunn í
Safnaðarheimilinu. Hvenær ætli
við fáum heimsókn?
Kl. 20.00 Tólf spora vinna hefst á
þessum tíma efitir viku!! Allir sem
hafa áhuga á því að vinna af
einlægni með tilfinningar sínar
með það að markmiði að verða
betri og sterkari einstaklingar ættu
að kynna sér málin.
Laugardagur 20. september
Kl. 14.00 Útför Aðalbjargar
Jóhönnu Bergmundsdóttur.
Sunnudagur 21. september
Kl. 11.00 Sunnudagaskóli í kirkj-
unni. Rebbi refur og brúðuleikrit.
Mikill söngur, bænir og biblíusaga.
Sr. Fjölnir Ásbjömsson og barna-
fræðaramir.
Kl. 14.00 Innsetningarmessa. Sr.
Fjölnir Ásbjömsson verður settur
formlega inn í embætti prests í
Vestmannaeyjaprestakalli við há-
tíðlega athöfn. Prófastur sr.
Gunnar Kristjánsson setur sr.
Fjölni inn í embætti. Kór
Landakirkju syngur undir stjóm
Guðmundar H Guðjónssonar
organista og sr. Þorvaldur Víðisson
þjónar ásamt prófasti og presti fyrir
altari. Kaffi í Safnaðarheimilinu
eftir messu.
Mánudagur 22. september
Kl. 17.30 Æskulýðsstarf fatlaðra,
eldri hópur. Hulda Líney Magnús-
dóttir æskulýðsfulltrúi og sr.
Þorvaldur Víðisson.
Kl. 20.00 Kvenfélag Landakirkju
undirbýrárleganjólabasar. Kven-
félagskonur hvattar til að mæta.
Þriðjudagur 23. september
Kl. 15.00 Kirkjuprakkarar, 6-8 ára
krakkar f kirkjunni. Sr. Fjölnir
Ásbjömsson og leiðtogamir.
Kl. 20.30 Kyrrðarstund í Landa-
kirkju. Sr. Fjölnir Ásbjömsson og
organisti Guðmundur H. Guð-
jónsson. Góður vettvangur frá erli
hversdagsins.
Miðvikudagur 24. september
Kl. 16.20 TTT yngri, 9-10 ára
krakkar í kirkjunni. Sr. Fjölnir
Ásbjömsson og leiðtogamir.
Kl. 17.30 TTT eldri, 11-12 ára
krakkar í kirkjunni. Sr. Fjölnir
Ásbjömsson og leiðtogamir.
Kl. 20.00 Opið hús hjá Æsku-
lýðsfélagi Landakirkju og
KFUM&K í félagsheimili
KFUM&K. Hulda Líney
Magnúsdóttir æskulýðsfulltrúi, sr.
Fjölnir Ásbjömsson og
leiðtogamir.
Hvítasunnukirkjan
Fimmtudagur 18. september
Kl. 20.30 ALFA-námskeið.
Kynningarkvöld fyrir þessi
vinsælu námskeið. Heitt á
könnunni.
Allir velkomnir.
Föstudagur 19. september
Kl. 20.30 Unglingakvöld.
Laugardagur 20. september
Kl. 20.30 Bæna- og lofgjörðar-
stund.
Sunnudagur 21. september
Kl. 13.00 Sunnudagaskólinn, böm
að aldri og í anda velkomin.
Kl. 15.00 SAMKOMA
Lofgjörð fyrirbænir og lifandi
Guðsorð.
Komið og takið þátt, kaffisopi eftir
samkomu.
Allir hjartanlega velkomnir.
Aðventkirkjan
Laugardagur 20. september
Kl. 10.30 Biblíurannsókn.
Biblían talar
sími 481-1585