Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Page 2
2
Frcttir / Fimmtudagur 18. september
Byggðastofnun
vffl upplýsingar
um stöðu mála
Bæjarráð tók fyrir bréf frá Byggða-
stofnun á fundi sínum á mánudag þar
sem óskað er eftir upplýsingum um
stöðu hinna ýmsu mála í Vestmanna-
eyjum. Byggðastofnun hefur ákveðið
að uppfæra skýrslu stofnunarinnar frá
október 2001 um stöðu sjávarbyggða.
Kemur fram að vinna sé þegar hafin
og bætast upplýsingar um land-
búnaðarhéruð við. Markmiðið er að
afla upplýsinga þannig að Byggða-
stofnun geti á skjótan hátt metið atvik
sem kunna að koma upp í einstaka
byggðarlagi og brugðist við þeim.
Sendu þeir spumingalista um almenn
atriði og óska eftir svörum fyrir 20.
september.
Baðvörður og sex
í æskulýðsmálin
Á fundi íþrótta- og æskulýðsráðs var
gerð grein fyrir ráðningum í stöðu
baðvarðar í Iþróttamiðstöðinni og í
störf í félagsmiðstöð. Ásgeir Þor-
valdsson var ráðinn í stöðu baðvarðar
en alls bárust sex umsóknir. Þau
Jóhann Ólafur Guðmundsson,
Örlygur Helgi Grímsson, Sigurlaug
Lára Ingimundardóttir, Ólafur
Kristján Guðmundsson og Kolbrún
Stella Karlsdóttir voru ráðin í
félagsmiðstöðina en þar bárust tíu
umsóknir.
Hvað var Andrés að gera í
Færeyjum og Frakklandi?
-Tekist á um skýrslugerðir vegna utanlandsferða
Amar Sigurmundsson (D) kom með
fyrirspum í bæjarráði á mánudaginn
þar sem hann bendir á að á fundi
bæjarstjómar 26. júní sl. hafi verið
samstaða um að taka upp þá
vinnureglu að ef bæjarfulltrúar og eða
embættismenn bæjarins fæm í
utanlandsferðir á vegum bæjarins skili
þeir skýrslu um ferðina og hvaða
árangri hún skilaði.
I þessu sambandi var rætt um
Frakklandsferð og Færeyjaferð fyrr-
verandi forseta bæjarstjórnar sem
farnar voru fyrr á þessu ári. Arnar
sagðist gera sér grein fyrir því að ekki
verði komist hjá nokkmm útgjöldum
úr bæjarsjóði í þessu sambandi en spyr
hvenær sé að vænta skýrslu um
ferðirnar og hver kostnaður bæjarins
varð.
Meirihlutinn svaraði því til að
Andrés Sigmundsson hafi gert munn-
lega grein fyrir ferðunum í bæjarráði
fyrir nokkru síðan. „Fyrrverandi
meirihluti ákvað að senda þrjá fulllrúa
í Frakklandsferðina sem farin var
ásamt 23 nemendum í 8. bekk Barna-
skólans ásamt tveimur kennumm og
einum hjúkrunarfræðingi. Verið var
að endurgjalda ferð franskra bama er
komu hingað á síðasta ári. Um 1200
börn frá ýmsuin þjóðlöndum voru
saman komin í Frakklandi í sambandi
við verkefnið, Um vatnið. Gera má
ráð fyrir að Arnari Sigurmundssyni
hafi verið fullkunnugt um kostnað
þessarar ferðar. Núverandi meirihluti
ákvað að senda einn fulltrúa til
Færeyja til að taka formlega upp
vinabæjatengsl við bæjarfélagið Götu.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að afla
upplýsinga vegna kostnaðar þessara
tveggja ferða, jafnframt var óskað eftir
að lagðar verði fram skýrslur um
kostnað, tilefni, árangur og fjölda
ferða bæjarfulltrúa og embættismanna
fráárinu 1990.“
Arnar bókaði þá að hann, sem
formaður skólamálaráðs og bæjar-
fulllrúi, hafi samþykkt ferð gmnn-
skólabama til Frakklands ásamt
fararstjórum. „Um það var og er
enginn ágreiningur í bæjarstjórn.
Sjálfsagt er að afla uplýsinga um
utanferðir bæjarfulltrúa og embættis-
manna bæjarins frá 1990 og leggja
fyrir bæjarráð. Fyrirspurn minni er
ósvarað og óska ég eftir að henni verði
svarað innan tíðar af formanni
bæjaráðs, sem var forseti bæjarstjómar
þegar utanlandsferðimar áttu sér stað.“
Þá var komið að meirihlutanum:
„Fyrrverandi meirihluti bæjarstjórnar
Vestmannaeyja tók ákvörðun um að
senda þrjá fulltrúa bæjarfélagsins til
Frakklands. Meirihluti bæjarráðs telur
fullvíst að bæjarfulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins hafi verið fullkunnugt um
kostnaðaráætlun vegna fararinnar. Að
sjálfsögðu verður orðið við beiðni
bæjarfulltrúa minnihlutans, Amars
Sigurmundssonar að afla þeirra
upplýsinga sem um er beðið, ásamt
frekari upplýsingum um kostnað
vegna ferða undanfarinna ára.“
Brýnt að gera breytingar
á samþykktum bæjarins
-Er byrjað á því eða ekki, það er spurningin?
„Bæjarráð samþykkir og beinir því til
bæjarstjómar að hafin verði endur-
skoðun á reglugerð um Samþykkt um
stjóm Vestmannaeyjabæjar og fundar-
sköp bæjarstjómar, jafnframt því að
aðlaga nefndaskipan að nýju stjórn-
skipuriti bæjarins og verkaskiptingu í
stjórnun starfssviða."
Tillöguna bar Arnar Sigurmunds-
son (D) upp á fundi bæjarráðs á mánu-
daginn. I greinargerð segir að nauð-
synlegt sé að endurskoða reglugerð
um stjórnun bæjarins og fundarsköp
bæjarstjómar með reglubundnum
hætti. „Síðasta breyting á reglu-
gerðinni kom til framkvæmda haustið
2002, í kjölfar breytinga á verksviðun
nokkurra nefnda sem kosnar eru af
bæjarstjóm.
I ljósi nýlegra skipulagsbreytinga
við stjóm bæjarfélagsins og tillagna
sem snerta endurskoðun á nefnda-
skipan og áréttingu á starfsmanna-
stefnu og upplýsingaskyldu sveitar-
félaga er nauðsynlegt að hefja þessa
endurskoðun. Á fundi bæjarstjómar
4. sept. sl. kom fram almennur vilji
bæjarfulltrúa að fara í þessa vinnu á
næstu vikum.“
Meirihlutinn bókaði þar sem fram
kom að nú þegar hafi verið tekin
ákvörðun að fara í þessa endurskoðun;
„...eins og bæjarfulltrúanum Amari
Sigurmundssyni hefur ítrekað verið
gerð grein fyrir bæði á bæjarráðs-
fundum og á bæjarstjórnarfundum.
Undirbúningur að þessari vinnu er
hafinn og því ástæðulaust að sam-
þykkja tillögu, sem kveður á um að
hefja vinnu sem þegar er hafm.“
Var svo samþykkt að vísa tillögunni
frá. Arnar Sigurmundsson sagði þá í
bókun að á síðasta fundi bæjarstjómar
hafi skipulagsmál bæjarins verið mjög
til umræðu. „í máli bæjarfulltrúa kom
fram vilji til þess að fara í endur-
skoðun á bæjarmálasamþykkt og var
ætlun bæjarfulltrúa að fara sam-
eiginlega í þessa vinnu. Bæjarsjóður
hefur nú þegar varið rúmlega 3
milljónum kr. í úttekt á stjórnsýslu
bæjarins. Með þessari lillögu er lagt
til að nú taki bæjarfulltrúar og bæjar-
stjóri við vinnu við þriðja áfanga í
úttektinni. Þriðji áfanginn snertir
endurskoðun á nefndarskipan og sam-
þykkt um stjóm bæjarmála og sam-
þykktir um fundarsköp bæjarstjómar.
Ákvörðun um þessa endurskoðun ber
að taka á vettvangi bæjarstjómar og
hvergi annars staðar." Lúðvík Berg-
vinsson (V) og Andrés Sigmundsson
(B) sögðu þá í bókun að ekkert nýtt
hafi komið fram hjá Arnari, hvorki í
tillögunni né bókunum hans og
ítrekuðu þeir fyrri bókanir meiri-
hlutans og afstöðu.
HÓLSHÚS og Bakaríið Viðberg. Eigendur fljúðar á efri hæðinni eru
ónægðir með nábýlið við Vilberg.
Bærínn á yfir sér
málshöfðanir vegna
skipulagsmála
Að minnsta kosli tvö mál er varða
skipulags- og byggingarnefnd veltast
nú í kerfinu og virðist engin lausn í
sjónmáli. Eigendur íbúðar hafa farið
fram á það við Vestmannaeyjabæ að
hann kaupi íbúðina vegna ónæðis af
völdum atvinnustarfsemi sem rekin er
í húsnæði við hliðina. Einnig hafa
eigendur gistiheimilis kvartað vegna
ónæðis frá skemmtistað sem er í
áföstu húsi við gististaðinn.
Friðbjörn Valtýsson, formaður
skipulags og umhverfisnefndar, segir
lögfræðing eigenda íbúðar í Hólshúsi
hafa farið þess á leit í bréfi að bærinn
kaupi húsnæðið vegna starfsemi
Vilbergs. „Þau telja að skipulagsnefnd
og bæjarfélagið hafi ekki staðið rétt að
málum þegar veitt var leyfi til starf-
rækslu bakarís að Bárustíg 7. Starf-
semin hefst eldsnemma á morgnanna
sem er breyting frá því sem áður var.
Þama var kjötvinnsla á sínum tíma en
það er orðið langt síðan. Fólk er orðið
meðvitaðra um sinn rétt og ég á mjög
auðvelt með að setja mig í þess spor.
Ég vildi leggja mikið á mig til að leysa
þessi mál en mér sýnist skipulags-
nefnd og bæjaryfirvöld ófær um að
taka á þeim vandamálum sem við er
að glíma. Þetta mál er búið að vera
mörg ár í kerfinu,11 segir Friðbjöm.
Hitt málið em ítrekaðir kvartanir
eigenda Gistiheimilisins Heimis
vegna hávaða frá skemmtistaðnum
Prófastinum. „Þorkell Húnbogason
hefur hótað málsókn og við fómm yfir
bréf frá honum á mánudag. Þar segist
hann vera búinn að missa þolin-
mæðina enda fari rekstur gisti- og
skemmtistaðar alls ekki saman.
Heilbrigðiseftirlit, ásamt skipulags- og
bygginganefnd, hafa Ijallað um málið
en það er á svipuðum stað og hin
málin, engin lausn í sjónmáli. Það
virðist vera vegna getu- eða dugleysis,
nema hvort tveggja sé, til að leysa mál
af þessum toga. Mér sýnist stefna í
málsókn á hendur bænum enda hafa
þessi mál verið mörg ár í kerfrnu."
Innbrot í Hamarsskóla:
Þar er engin
lyf að hafa
Að morgni laugardagsins 13. sept. sl.
var tilkynnt um innbrot í Hamars-
skóla, en brotin höfðu verið upp
fjögur opnanleg fög. Talið er að
stolið hafi verið einni fartölvu af gerð-
inni HP 4500. Þá var grænum
peningakassa sem geymdur var í
eldhúsi stolið en í honum voru m.a.
mjólkurmiðar, matarmiðar og eitt-
hvað af peningum. Þeir sem geta
gefið einhverjar upplýsingar um hver
eða hverjir þama vom að verki em
hvattir til að hafa samband við
lögreglu.
Vera Björk Einarsdóttir, skóla-
hjúkmnarfræðingur Hamarsskóla,
hafði samband við Fréttir og sagði
þetta vera annað innbrotið sem framið
er í Hamarsskóla á stuttum tíma. I
báðum tilfellum var mikið rótað í
aðstöðu skólahjúkmnarfræðings og
vildi hún koma því á framfæri að
engin lyf em geymd þar eða í
skólanum. Öll börn sem þurfa lyf fá
þau heima og þar af leiðandi engin lyf
skömmtuð á skólatíma.
Tillögurnar kosta
3 milljónir
Fyrir fundi bæjarráðs á mánudag lá
fyrir svar frá Bergi Elíasi Ágústssyni
bæjarstjóra vegna fyrirspuma um
greiddan kostnað til IBM business
consulting service, vegna breytinga á
stjómskipulagi Vestmannaeyjabæjar.
Samtals vom greiddar rétt rúmar þrjár
milljónir króna fýrir verkið og verður
gert ráð fyrir upphæðinni við
endurskoðun fjárhagsáætlunar.
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549 - Vestmannaeyjum. Ritstjóri; Ómar
Garðarsson. Blaðamenn: Sigursveinn Þórðarson, Guðbjörg Sigurgeirsdóttir. íþróttir:
Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi
47. Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur:
frettir@eyjafrettir.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti,
Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni,
ísjakanum, Bónusvídeó, verslun 11-11, Skýlinu í Friðarhöfn og í Jolla í Hafnarfirði
og afgreiðslu Hejrólfs í Þorlákshöfn. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun,
hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.