Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Page 9

Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Page 9
Fréttir / Fimmtudagur 18. september 2003 9 MEÐAL gesta á fundinum voru þingmenn. Mynd BB. Guðmundur Halldórsson, formaður Eldingar: Kvótakerfið lifir ekki af þessa hörðu stefnu sem hefur gilt Guðmundur Halldórsson, formaður Eldingar, félags smábátaeigenda á Vestijörðum, var að vonum ánægður með fund um línívilnun, sem haldinn var á Isafirði á sunnudaginn. Alyktun um línuívilnun strax í haust var sam- þykkt. Guðmundur segir í samtali við Fréttir að fundargestir hafi verið hátt í 600 og mikill einhugur hafi verið á fundinum. „Við vorum með nýtt form á fundinum og fengum Ama Snævarr, fyrrum fréttamann á Stöð 2, til að stýra spumingaþætti fundarins og gagnspyrja þingmenn En fundarstjóri var Olafur Kristjánsson, fymim bæjarstjóri Bolvíkinga. Við emm með mikilvæg gögn af fundinum sem em loforð okkar þingmanna um að þeir muni flytja fmmvarp um línuívilnun strax í haust ef sjávarútvegsráðherra gerir það ekki. Einar Oddur tók af öll tvímæli þegar hann sagði að Davíð Oddsson. forsætisráðherra, muni standa við gefin loforð um línuívilnun eins og önnur loforð sem hann hefur gefið í 20 ár sem borgarstjóri og forsætisráðherra.“ Guðmundur sagði að Ami Mathie- sen, sjávarútvegsráðherra, teldi sig geta staðið við loforð landsfundar Sjálfstæðisflokksins með því að setja á 1% línuívilnun á næsta ári. Eins og hann tjáði mér á fundi sem ég átti með honum í vor „Ef ráðherrann ætlar að tefja málið eða flækja tók fundurinn af öll tvímæli um að hann hefur ekki fylgi til þess. Okkar krafa er 20% ívilnun á þorsk og 50% á aðrar tegundir. Línuveiði er orðin stærsti hluti útgerðar á Vestíjörðum þannig GUÐMUNDUR í ræðustól á Vestfjarðafundinum. Mynd BB að þetta skiptir okkur miklu máli.“ Guðmundur sagði þetta neyðarrétt þvf án breytinga á núverandi fiskveiði- stjóm yrðu það örlög sjávarbyggða að deyja drottni sínum hver af annarri. Eins og raunin er að verða á Bíldudal, Raufarhöfn og nú síðast Seyðisfirði „Það er ljóst að kvótakerfið lifir ekki af þessa hörðu stefnu sem hefur gilt. Stórútgerðir fá núna úthlutað 80.000 tonna kvóta árlega á úthafsmiðum, Flæmingjagrunni og Barentshafi og víðar og þetta hafa þeir notað til kaupa upp veiðiheimildir í minni plássunum." Guðmundur notaði tækifærið og bar Vestmanneyingum kveðju en hann var hér á vertíð 1958. „Þá vom gerðir úl 100 bátar frá Eyjum og þúsundir aðkomumanna kornu á vertíð, annaðhvort á sjó eða til að vinna fiskinn í landi. Þá reri allur þessi floti á línu á haustin og fram í mars þegar netavertíð tók við. Vest- mannaeyjar hafa um aldir lifað á bátaútgerð. Reyndar vom þá gerðir út tveir nýsköpunartogarar frá Eyjum, Bjarnarey og Elliðaey, en krafturinn var í bátaflotanum. Þeir búa við gjöful fiskimið eins og Vestfirðingar og krafan sem stendur á bak við þetta allt saman er að sjávarplássin fái að nýta sér nálægðina við fiskimiðin eins og þau hafa gert um aldur. Þess vegna er það hrein firra að halda því fram að verið sé að taka af Vestmannaeyjum því skilyrði línuívilnunar er að landa daglega. Hún á að gilda fyrir allar stærðir af bátum og skipum og við erum ekki á móti tækninni. Það má nota beitningavélar en þær eiga ekki að veita forgang umfram aðra.“ Að lokum sagðist Guðmundur sjá í þessu mikla möguleika fyrir Vest- mannaeyinga ekki síður en Vest- firðinga. „Línuívilnunin gæti verið hið gullna tækifæri fyrir Vest- mannaeyjar að byggja upp aftur það mannlíf sem var og þegar kemur að því að fiytja þarf fólk til ykkar, verður það gert um göngin sem vonandi koma bráðlega," sagði Guðmundur að lokum. Lúðvík Bergvinsson: LÍÚ þáði ekki bjarghringinn Lúðvík Bergvinsson, alþingismaður og bæjarfulltrúi, sagði að sín skoðun hefði komið fram í tillögu bæjar- stjómar um 5% ívilnun til allra sem landa afla til vinnslu í landi. Var tillagan samþykkt samhljóða í bæjarstjóm. „Það er fráleitt ef stjómvöld ætla að mismuna landsvæðum eins og kemur fram í hugmyndum um línuívilnun. Tillaga okkar var hugsuð sem innlegg í þessa umræðu og samkvæmt henni verður ekki um mismunun að ræða. Það sem kemur manni á óvart eru fár- ánleg viðbrögð formanns Utvegs- bændafélagsins og fulltrúa LIÚ og það er umhugsunarvert hverra hagsmuna þeir em að gæta,“ sagði Lúðvík. Hann sagði að 5% ívilnunin hefði engin áhrif á báta sem selja aflann erlendis og það gerði málið enn skrýtnara. „Mér finnst því að þeir skuldi landsbyggðinni svör við því hvers vegna þeir vilja ekki skoða þennan möguleika með okkur.“ Er möguleiki að Vestmannaeyingar myndi samstöðu til varnar útgerð hér eins og Vestfirðingamir gera? „Það er rétt, með samstöðu sinni og öfiugri kröfugerð hafa Vestfirðingar náð að verja hagsmuni sína. Þegar við lögðum tillöguna fyrir bæjarstjóm var það gert með hag Vestmanneyja í huga. Það hefur því ekki síður vakið athygli mína að nú reynir Amar Sigur- mundsson með öllum ráðum að koma sér undan þeirri ábyrgð að hafa greitt tillögunni atkvæði sitt. Þetta háttarlag Amars rýrir þessa samstöðu. Tillagan var hugsuð sem bjarghringur til LÍÚ sem þeir vilja ekki sjá. Gerir viðbrögð þessara herra enn athyglisverðari,“ sagði Lúðvík að lokum. Aðalfundur Útvegsbænda: Eðlilegt að allir sitji við sama borð -og jafnræði ríki Útvegsbændafélag Vestmannaeyja hélt aðalfund sinn á mánudaginn þar sem hugmyndum stjómvalda um línuívilnun var harðlega mótmælt. í ályktun sem fundurinn sendi frá sér segir að engin ástæða sé til þess að að umbuna einum flokki útgerða á kostnað annarra. Eðlilegt hljóti að teljast að allir, sem fengið hafa út- hlutað aflaheimildum, sitji við sama borð og jafnræði ríki í atvinnu- greininni. „Línuívilnun, eins og hún er kynnt á opinberum vettvangi, mun skerða vemlega aflaheimildir Eyjamanna og er þar síst á bætandi. Þannig hafa á í atvinnugreininni undanfömum ámm verið færðar frá Eyjum aflaheimildir upp á nær 4.000 þorskígildistonn í þorski, ýsu, ufsa og steinbít. Línuívilnunin myndi skerða aflaheimildir Eyjamanna um allt að 2.250 þorskígildistonn til viðbótar. Sú skerðing jafngildir því að taka úr umferð tvo af alls 28 vertíðarbátum Eyjamanna! Útvegsbændur í Eyjum telja fráleitt að stjómvöld stuðli að því að veikja þannig efnahags- og félagslegar undir- stöður byggðarlagsins og krefjast þess að frá þessum áformum verði fallið þegar í stað,“ segir í ályktuninni. Drífa Hjartardóttir þingmaður: Verðum að standa við gefin loforð Drífa Hjartardóttir, þingmaður sjálf- stæðismanna í Suðurkjördæmi, sagði að ekki yrði hjá því komist að standa við loforð landsfundar Sjálfstæðis- flokksins og stjómarsáttmálans um hnuívilnun. En hvers á fólk í Vestmannaeyjum að gjalda? „Það er mjög slæmt ef þetta bitnar á sjávarplássum eins og Vest- mannaeyjum. Það verður að reyna að bæta upp með einhverjum hætti," sagði Drífa. Nú þegar hafa um 4000 tonn af bolfiski verið tekin af Vestmanna- eyjum. Er ekki nóg komið? „Eg held að það verði að skoða þetta í stærra samhengi og ef hægt verður að bæta þetta upp með auknum veiðiheim- ildum verða Vestmannaeyjar að njóta þess.“ Er þetta ekki einn og sami potturinn? „Þetta er alltaf mikill vandi að taka af einum og setja yfir á annan. Ég tel að það verði að líta til þess að nú er talað um að hægt sé að auka kvóta í þorski og ýsu og staðir eins og Vest- mannaeyjar verði þar ekki útundan. I byggðakvóta er meira tekið af Vestmannaeyingum en þeir fá og það er því skiljanlegt að þeir séu ekki sáttir." Er það ekki skylda þín sem þing- manns kjördæmisins að verja byggðimar? „Ég tel að við geram það með því að byggja áfram á núverandi aflamarkskerfi og að við höldum áfram að ná betri árangri við uppbyggingu fiskistofna og auka verðmæti aflans með auknu þróunar - og rannsóknastarfi. Við verðum að leitast við að styrkja hagsmuni sjávarbyggðana og það getum við meðal annars með því, eins og segir í stjómarsáttmálanum, að kanna kosti þess að styrkja forkaups- réttarákvæði sveitarfélaga og lögaðila. Það má einnig nýta tekjur af veiði- gjaldi til uppbyggingar í greininni." Er ekki nóg komið af ofsóknum ríkisstjómarinnar á hendur Eyja- mönnum? „Ríkisstjómin hefur ekki ofsótt Vestmannaeyinga, heldur þvert á móti, það er hægt að sjá í gegn um fjárlögin til margra ára,“ sagði Drífa að lokum. Þeir liggja kylliflatir -segir Guðjón Rögnvaldsson Guðjón Rögnvaldsson, útgerðar- maður, segir að af samtölum sínum við fulltrúa í sjávarútvegsnefnd sé ekki annað að heyra en að þeir séu hlynntir línuívilnun. „Ég ræddi ekki við alla en þeir sem ég talaði við em inn á línuívilnun,“ sagði Guðjón. „Ég er á móti því þegar menn komast upp með að vaða svona uppi og hvað stjómmálamenn geta legið kylliflatir fyrir þeim. Það eina já- kvæða sem ég heyrði var að Jóhann Arsælsson, sem sæti á í sjávar- útvegsnefnd og samgöngunefnd, sagðist vilja sjá göng til Vestmanna- eyja eftir fimm til sjö ár.“

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.