Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Side 14
14
Fréttir / Fimmtudagur 18. september 2003
Eigum að stefna á
sigur gegn Þjóðverjum
-segir Eyjapeyinn Hermann Hreiðarsson í spjallli við
Fréttir - Er ánægður hjá Charlton
HERMANN: Það vantaðl samt ekkert upp á stemmninguna og það er
alltaf gaman að hitta strákana. Það er einmitt okkar styrkleiki, góð
stemmning og góð liðsheild. A því iórum við langt. Mynd: G.Ásm.
Einn þekktasti knattspyrnu-
maður landsins um þessar
mundir er án efa Eyjapeyinn
Hermann Hreiðarsson. Her-
mann hefur, síðan hann fór
frá ÍBV árið 1997, gert
garðinn frægan í ensku
deildarkeppninni og hefur
leikið í úrvalsdeildinni, 1.
deildinni og sömuleiðis í 3.
deildinni ensku í um hálft
tímabil með Brentford. Her-
mann hefur sömuleiðis spilað
stórt hlutverk með íslenska
karlalandsliðinu undanfarin
ár. Nú er staðan þannig að
sæti á lokamóti Evrópu-
mótsins er í þeirra höndum.
Eg hitti á Hermann eftir
landsleikinn gegn Þjóðverj-
um, nánar tiltekið á skrifstofu
KSI en þar hafði Hermanni
verið afhent málverk sem
hann fékk í tilefni þess að
hafa spilað 50 landsleiki fyrir
Islands hönd.
Klikkuðum á að skora
Byrjum aðeins á landsleiknum, ís-
lenska liðið átti algjöran toppleik, var
undirbúningurinn ekki frekar stuttur
fyrir leikinn?
„Jú, en við búum einfaldlega við
þetta hjá íslenska landsliðinu að fá
stuttan undirbúning fyrir okkar leiki.
Enska liðið fær t.d. mun lengri tíma
þar sem flestir leikmanna liðsins eru í
Englandi en við komum alls staðar að.
Það vantaði samt ekkert upp á
stemmninguna og það er alltaf gaman
að hitta strákana. Það er einmitt okkar
styrkleiki, góð stemmning og góð
liðsheild. Á því förum við langt. Það
má eiginlega segja að í leiknum gegn
Þjóðverjum, gerðum við allt rétt nema
kannski að skora, það var það eina
sem gekk ekki upp.“
Þjóðverjarnir pressuðu ykkur stíft í
fyrri hálfleik en allt strandaði á
vörninni. Finnst þér betra að spila í
þriggja manna varnarlínu frekar en í
fjögurra manna?
„Eg er ekki frá því að það henti
okkur betur að spila með þriggja
manna vamarlínu. Við höfum ekki
fengið mörg mörk á okkur í undan-
fömum leikjum og þetta hefur gengið
mjög vel.“
Þér finnst gaman aðfara úr vörninni
frain völlinn, þú hefur ekki hugsað þig
tvisvar uin þegar spilað var gegn
silfurliði heimsineistarakeppninnar,
áður en skeiðað varfram á við?
„Nei, nei. En það er rétt, ég hef
gaman af því að fara aðeins fram
völlinn og reyna mig í sókninni.
Mestan hluta leiksins er maður bara að
skalla boltann frá og sparka honum í
burtu þannig að það er gaman að
reyna sig í sókninni. í fyrra spilaði ég
í stöðu afturliggjandi kantmanns eða
eins og Englendingarnir kalla „wing
back“ og fyrir vikið þurfti ég að
bregða mér í sóknina þegar færi gafst.
Svo get ég líka alveg kennt þessum
guttum þama frammi sitthvað," segir
Hermann og hlær.
Nú eru nokkrir dagar liðnir frá
leiknum, ertu ennþá svekktur með
jafntefli gegn Þjóðverjum ?
„Kannski ekki beint svekktur. Við
vomm að spila einn okkar besta leik í
langan tíma og Þjóðverjarnir voru í
miklu basli með okkur. Þeir björguðu
tvisvar á línu og við fengum miklu
betri færi en þeir til þess að klára
leikinn. En eins og ég sagði áðan þá
gekk allt upp hjá okkur nema að skora
þannig að við getum ennþá bætt
okkur. Við vorum auðvitað mjög
svekktir fyrslu mínútumar eftir leikinn
en núna er maður fyrst og fremst
ánægður með okkar leik og ekki síst
stemmninguna á Laugardalsvelli. Það
er engu líkt að spila fyrir fullum
Laugardalsvelli og svo létu áhorfendur
vel heyra í sér. Mín skoðun er sú að
það vom Þjóðveijar sem náðu jafntefli
gegn okkur en ekki við gegn þeim.“
Það hafa orðið miklar breytingar á
gengi liðsins síðan Asgeir og Logi
tóku við liðittu, hvað hefiir breyst?
„Við höfum auðvitað breytt um
leikkerfi og það fylgja oft ferskir
vindar nýjum þjálfumm. Þegar Atli
tók við landsliðinu náði hann mjög
góðum úrslitum til að byrja með. Svo
fékk hann mjög óvæga meðferð frá
fjölmiðlum og fékk í raun aldrei
vinnufrið. En Ásgeir og Logi eru
mjög færir í því sem þeir eru að gera
og eiga stóran þátt í þessu góða gengi
landsliðsins."
Ertu mikið að spá í stöðunni í riðlinum
og möguleikum íslenska liðsins?
,,Ég lýg því ekki þegar ég segi að ég
velti þessu mikið fyrir mér. Staðan er
góð eins og er og í rauninni er mér
alveg sama hvernig leikur Þjóðverja
og Skotlands fer. Þetta er í okkar
höndum og ef við vinnum Þjóðveijana
þá verðum við að minnsta kosti í öðm
sæti. Það besta sem gæti gerst er að
Þjóðverjamir vinni Skotana og við svo
Þjóðverjana, þá yrðum við efstir og
draumurinn um að spila á stórmóti
eins og EM yrði að vemleika.“
Eigum við möguleika á að vinna
Þjóðverjana á þeirra heimavelli?
„Samkvæmt leiknum á Laugardals-
velli þá eigum við ekkert að vera
feimnir við að stefna á sigur. Þeir
voru ánægðir með jafntefli þó að
Ijölnúðlar í Þýskalandi hafi ekki verið
það. Þetta verður samt mjög erfiður
leikur, fullur leikvangur af þeirra
stuðningsmönnum þannig að að-
stæður verða allar erfiðari en á
Laugardalsvelli. Eg hef reyndar heyrt
að það sé mikill áhugi meðal
Islendinga fyrir leiknum og vonandi
að okkar stuðningsmenn láti í sér
heyra.“
Heiður að Charlton sýndi
MÉR ÁHUGA
Snúum okkur aðeins að þér og ensku
deildinni. Þú skiptir umfélag áður en
síðasta tímabil var úti og fórst í
úrvalsdeildarliðið Charlton. Þar sem
félagsskiptaglugginn var ekki opinn
þegar þú skiptir um lið þurftir þú að
spila með varaliðinu. Var ekkert eifitt
að vera utan við boltann síðustu vikur
ensku keppninnar?
„Eg var reyndar meiddur þegar
Charlton keypti mig þannig að ég
spilaði nánast ekkert með varaliðinu.
Mér fannst það líka vera mikill heiður
fyrir mig að tvö ensk úrvalsdeildarlið
vildu kaupa mig þó að ég væri
meiddur og yrði ekki leikfær fyrr en á
næsta tímabili. Þegar ég var búinn að
ná mér æfði ég með aðalliðinu síðustu
vikumar. Svo var komið sumarfrí
þannig að tíminn fór eiginlega bara í
að ná sér af þessum meiðslum."
Hvernigfélag er Charlton, miðað við
þaufélög sem þú hefur spilað með?
„Charlton er orðið rótgróið úrvals-
deildarfélag. Það hefur verið að
byggja upp sitt starf í úrvalsdeildinni
undanfarin ár og stendur sig alveg
ágætlega. Stjórinn, Alan Curbishley,
virkar lika vel á mig og líka öll
umgjörðin og ég held að þetta sé
sterkasta liðið sem ég hef spilað með.“
Italski skaphundurinn Paolo Di Canio
er nýgenginn til liðs við Charlton en
hvemig kann Hemmi við hann ?
„Hann er auðvitað snarklikkaður,"
segir Hemmi og hlær. „En að öllu
gríni slepptu þá virkar hann mjög vel á
mig. Hann er líflegur og lyftir öllu upp
á hærra plan. Það er líka gott fyrir
félag eins og Charlton að hafa einn
svona leikmann sem stuðningsmenn
liðsins þekkja."
Enska úrvalsdeildin sú
STERKASTA
Hvemig er það svo að vera kominn
enn og aftur upp íúrvalsdeildina?
„Urvalsdeildin er auðvitað sú deild
sem maður vill spila í. Þetta er ein af
bestu deildum heimsins og héma er
maður að kljást við stóm nöfnin í
boltanum. Enska 1. deildin er auð-
vitað mjög sterk líka en öll umgjörð í
kringum úrvalsdeildina er svo miklu
meiri og betri. Það em líka gerðar
meiri kröfur, hraðinn er meiri þannig
að leikmenn í úrvalsdeildinni verða
betri knattspymumenn fyrir vikið.“
Fjölskyldan bjó í Ipswich á meðan þú
spilaðir með liðinu þar, eruð þiðflutt
til London?
„Já, og við emm ekki í nema
hálftíma fjarlægð frá þeim stað sem
við bjuggum á þegar við vomm í
London þannig að við könnumst vel
við okkur héma.“
Nú er tímabilið á íslandi að klárast,
hefurðu Jylgst eittlivað með því?
,Já, já. Við komum alltaf til Islands
í nokkrar vikur á ári og þá kíkir maður
alltaf á æftngar hjá liðunum. Eg fór
t.d. á æfingu hjá ÍBV og eftir það
töpuðu þeir ekki næstu leikjum þar á
eftir. Ég hefði kannski átt að kíkja á
æftngu hjá þeim um helgina,“ segir
Hemmi og hlær.
„IBV er með mjög ungt og efnilegt
lið núna en reynslulítið. Þetta em
ferskir strákar og nokkrir gamlingjar
inn á milli. Það er mjög mikilvægt
fyrir liðið að halda sér uppi því
framtíðin gæti verið björt. Ég vona
bara að þeir græi KR-ingana í næstu
umferð og klári svo síðasta leikinn á
heimavelli. Annars fylgist ég vel með
íslenska boltanum. Ég fer auðvitað á
þá leiki sem ég get þegar ég er heima
og svo fylgist ég með á netinu."
Þá látum við þessu spjalli okkar við
Hermann lokið í bili enda í nógu að
snúast fyrir íslenskan landsliðsmann
eftir landsleik þar sem ungir knatt-
spymumenn bíða óþreyjufullur fyrir
utan eftir því að fá að berja goðið
augu.
julius @ eyjafrettir. is
ALFA-námskeið
í Hvítasunnu-
kirkjunni
Hvítasunnukirkjan er að fara af stað
með ALFA-námskeið í næstu viku.
Því verður kynningarkvöld í Hvíta-
sunnukirkjunni fimmtudagskvöldið
18. september, í kvöld, kl. 20.30 fyrir
áhugasama. ALFA-mámskeið eru
námskeið í kristinni trú sem hafa farið
sigurför um heiminn. Á námskeiðinu
er farið yfir gmnnþætti kristinnar trúar
og hafa margir komist að raun um að
þekking þeirra er ærið glompótt þegar
á á að taka.
ALFA- námskeiðin em haldin hér á
landi í mörgum kirkjum, jafnt í þjóð-
kirkjunni sem og fríkirkjum. Alls
staðar er um sama námskeið að ræða,
það er ekki sniðið að kenningu
ákveðinnar kirkju. ALFA er í raun
fyrir alla, hvort sem þeir eru kristnir
eða annarrar trúar og ekki þarf að
tilheyra þeirri kirkju sem námskeiðið
heldur. Þátttaka í námskeiðinu er án
allra skuldbindinga gagnvart þeirri
kirkju sem heldur námskeiðið. Fyrir
áhugasama sem ekki komast má hafa
samband við Hvítasunnukirkjuna.
Laun í fjarnámi
Erindi frá tómstundafulltrúa Vest-
mannaeyjabæjar var lagt fyrir fund
íþrótta- og æskulýðsráðs þann 8.
september þar sem óskað er eftir
heimild til að sækja fjamám, eins og
verið hefur.
Um er að ræða þriðja ár af tjórum í
tómstunda- og félagsfræði í Kennara-
háskóla íslands og ljóst að námið
nýtist í starfmu. Iþrótta- og æsku-
lýðsráð lýsti sig hlynnt erindinu og
beinir því til bæjarráðs að reglur um
fjamám bæjarstarfsmanna verði
endurskoðaðar meðal annars með
tilliti til ofanritaðs. Bæjarráð tók svo
fundargerðina fyrir á mánudaginn og
samþykkti hana með þeirri undan-
tekningu að afgreiðslu á þessu máli
var frestað.