Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Page 20

Fréttir - Eyjafréttir - 18.09.2003, Page 20
Bpr x jiyi'1" ia En m' máíir_^/ mí_i_Lj!J G L_ L_ Frétta- og auglysingasími: 481-3310 / Fax 481-1293 há rsnyrtistofa SlMI 481 3666 LSHTESHS VEITINGAHÚS BÁRUSTÍG 11 SÍMI 481 3393 IGóður matur. Góð þjónusta. Kostar minna en þú heldur. Sendibilaakstur - innaiibæjar Vilhjálmur Bergsteinsson * 481-2943 * 897-1178 BERGÞÓRA í Visku tekur á móti Ragnari Óskarssyni og Jóhönnu Njálsdóttur sem eru að kynna sér aðstöðu fjarnema í Háskólasetrinu. Hitaveita Suðurnesja: Tvíborgar flutn- ing á raforku Fyrir nokkrum vikum birtist í Fréttum viðtal við Júlíus Jónsson, forstjóra Hitaveitu Suðurnesja, þar sem hann kom meðal annars inn á hátt flutningsgjald raforku til Vestmannaeyja. Vill hann meina að tvfborgað sé fyrir flutninginn. I mörg ár hefur verið barist fyrir leiðréttingu á þessu við Lands- virkjun en ekkert gengur. Raforku- verð í Eyjum er þrátt fyrir þessa tvírukkun mjög ódýrt miðað við aðra staði. Samkvæmt útreikningum Friðriks Friðrikssonar, veitustjóra, er Hita- veita Suðurnesja með lægsta raforkuverð á landinu til viðskipta- vina sinna á Suðurnesjum en næst- lægst er verðið í Eyjum. Má búast við að ef forráðamenn Hitaveitu Suðurnesja næðu sínu fram gagn- vart Landsvirkjun yrði lægsta raforkuverð á landinu í Eyjum. I dag borga Eyjamenn 7,92 krónur á Kwh en Suðumesjamenn 7,27. Til samanburðar borga Reykvík- ingar 8,04 og íbúar Selfoss og ná- grennis 9,25. Samkvæmt áætlunum borgar Hita- veita Suðurnesja tæpar 396 milljónir króna fyrir flutning raf- orku og þar af eru 97 milljónir króna vegna Vestmannaeyja. Við þetta bætist svo 35 milljón króna kostnaður til RARIK sem er hinn eiginlegi flutningsaðili. Bæjarstjórn á þriðjudaginn: Mótmæli gegn línuívilnun valda titringi Á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag lögðu Arnar Sigurmundsson og Selma Ragnarsdóttir fram eftir- farandi tillögu. „Bæjarstjórn Vestmannaeyja mót- mælir öllum hugmyndum og áform- um um sérslaka línuívilnun, sem ætlað er að koma til móts við kröfur smábátamanna um aukinn hlut þeirra í heildarfiskafla landsmanna. Verði látið undan þessum kröfum mun það koma allharkalega niður á Vestmannaeyjum og óhjákvæmi- lega leiða til verulegs flutnings afla- heimilda úr byggðarlaginu." Itarleg umræða fór fram um tillög- una á fundinum en niðurstaðan varð sú að vísa henni til bæjarráðs. „Eg vonast til að bæjarráð afgreiði tillöguna óbreytta með formlegum hætti næstkomandi mánudag,“ sagði Amar Sigmundsson (D) annar flutningsmanna tillögunnar. Lúðvík Bergvinsson (V) sagði að tillaga sjálfstæðismanna gengi skemmra en tillagan sem bæjar- stjórn samþykkti fyrir skömmu um 5% ívilnun til allra sem landa fiski til vinnslu hér á landi. „Við töldum þetta skref aftur á bak og því eðli- legt að vísa tillögunni til bæjarráðs ef vilji verður. til þess að herða aðeins á boðskapnum. Annars verður þetta ótrúverðugt og við lítum út eins og vitleysingar, sama hvað einstaka útgerðarmenn hér segja,“ sagði Lúðvík. Guðjón Hjörleifsson (D) segir tillöguna koma í framhaldi af tillögu í bæjarstjórn um 5% löndunarívilnun heima í héraði. „Þar hafði Lúðvík Bergvinsson tekið að sér að túlka tillöguna og sent þá túlkun til fjölmiðla á annan hátt en hún var sett fram. Því fannst okkur eðlilegt að tillagan yrði meira afgerandi og fram kæmi að við værum alfarið á móti línuívilnun sem gerir ekkert annað en að skerða hlut Eyjamanna í aflaheimildum. Eg er mjög ósáttur við að tillög- unni var vísað til bæjarráðs og að menn geti ekki staðið saman þegar svo afgerandi tillaga er flutt. Eg lýsti því yfir að ég styddi tillöguna en sæti hjá við áskorun til þing- manna enda óeðlilegt að skora á sjálfan sig. Við stóðum saman þegar bæjar- stjórn mótmælti kvótasetningu á skötusel. keilu og löngu. Það var gert samhljóða í bæjarstjórn og bæjarráði og sýndi samstöðu full- trúa bæjarfélagsins. Þess vegna hefði verið mjög mikilvægt að klára tillöguna á þriðjudaginn í stað þess að vísa henni til bæjarráðs. Það má taka þetta mál upp í bæjarráði sem sjálfstætt mál hvenær sem er,“ sagði Guðjón. VIKUTILBOÐ 18. sept. -24. sept. Uncel Ben Tomat Basil grjón Uncel Ben Mex chicken sósa Barilla Fusille Bounty 6 stk Nóa Rúsínur 300 gr Sun C Appelsínusafi Vita Wrap filma 30 m SS Lifrakæfa Bökuð SS Koníakslegin Helgarsteik Verá Nú 109,- 239,- 89,- 159,- 219,- 119,- 118,- Aður

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.