Fréttir - Eyjafréttir - 02.10.2003, Qupperneq 14
14
Fréttir / Fimmtudagur 2. október 2003
Eyjabúð 50 ára - Elsta verslunin í Eyjum:
Okkar styrkur er ánægðir viðskiptavinir
-sem halda tryggð við okkur, segir Fríðfinnur Finnbogason
FEÐGARNIR, Finnbogi, Friðfinnur og Gunnar. Friðfinnur segist ekki haf'a trú á að synirnir komi til með að taka við rekstrinum af honum og þar með
slitnar þráðurinn sem haldist hcfur í 50 ár.
„Það er ekki hávaði eða asi sem mætir
viðskiptavinum Eyjabúðar þegar þeir
líta við,“ segir í grein um þennan fasta
punkt í bæjarlífinu fyrir tíu ámm síðan
en þá stóð Eyjabúð á fertugu.
I gær, 1. október hefur verslunin
bætt við tíu árum í sögu sína, er sem
sagt orðin fimmtug og um leið lang-
elsta verslun bæjarins. Eyjabúð hefur
verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá
upphafi, stofnandinn er Friðfinnur
Finnsson á Oddgeirshólum og nú
hefur fjórði ættliðurinn í karllegg tekið
sér stöðu innan við búðarborðið.
Það hefur ekki margt breyst í
Eyjabúð á síðustu ámm og áratugum,
upp um alla veggi hanga lásar af
öllum gerðum og annað sem útgerðin
þarf, kókakólakistan er á sínum stað
og innan við borðið er gamalkunnugt
andlit, Friðfinnur Finnbogason sem nú
er tekinn við rekstrinum.
„Afi stofnaði Eyjabúð haustið 1953
og opnaði verslunina þann 1. október
það ár. Hann byrjaði hinum megin við
götuna,“ segir Friðfinnur og bendir
yfir götuna á Vosbúð þar sem
Miðstöðin er nú til húsa. „Þar var hann
ekki lengi og flutti að Strandvegi 60
þar sem við erum enn í dag,“ bætti
hann við.
Friðfinnur eldri rak verslunina til
ársins 1965 þegar Finnbogi sonur
hans, Bogi í Eyjabúð, yfirtók
reksturinn en hann hafði staðið við
hlið föður síns frá upphafi. „Pabbi
keypti af afa og við hjónin keyptum
svo af pabba 1. janúar 1998,“ segir
Friðfinnur en kona hans er Inga
Jónsdóttir. Sjálfur á hann langan
starfsaldur að baki f Eyjabúð.
„Eg byrjaði að vinna héma sumarið
1967 en árin 1968 og 1969 var ég í
Verslunarskólanum og vann í Eyjabúð
á sumrin auk þess að spila með
meistaraflokki ÍBV í fótboltanum."
Friðfinnur segir að fjölskyldan hafi
frá fyrstu tíð unnið í versluninni og
aðeins einn utan hennar hefur starfað í
Eyjabúð. „Það var Guðbjartur Herj-
ólfsson frá Einlandi sem var hér í
nokkur ár og starfaði bæði með afa og
pabba.“
Eyjabúð hefur frá upphafi boðið
upp á útgerðar- og byggingavömr,
handverkfæri, málningu og fatnað.
Þegar talið berst að fækkun í flotanum
segir Friðfmnur að það hafi óhjá-
kvæmilega bitnað á Eyjabúð. „Þessi
þróun er slæm fyrir allt og alla sem hér
búa og við höfum ekki farið varhluta
af því. Okkar styrkur em ánægðir
viðskiptavinir sem halda tryggð við
okkur. Hafa sumir verslað við okkur í
áratugi."
Viðbót í rekstrinum er sala á ferðum
til útlanda en Friðfinnur er umboðs-
maður fyrir ferðaskrifstofumar
Urval-Utsýn og Plúsferðir.
„Ferðaþjónustan hefur reynst okkur
góð viðbót en eins og allir vita em
Veslmannaeyingar duglegir að ferð-
ast,“ sagði Friðfinnur og nefndi sem
dæmi að í síðustu viku fóm 50
Eyjamenn á hans vegum til Marmaris
í Tyrklandi. Og á meðan spjallað var
við Friðfinn var stöðugur straumur
fólks inn í búðina að ganga frá sínum
málum vegna ferða út í heim.
Þegar minnst er á framtíðina segir
Friðfmnur að hún ráðist af þróun mála
í Vestmannaeyjum. „Eg vona að þetta
fari ekki meira niður á við en orðið er.
Með tilkomu jarðganga upp á land
eftir nokkur ár mundi staða Vest-
manneyja gjörbreytast. Annars finnst
mér meira talað um samgöngur en
atvinnumál sem em það sem allt
byggist á. Eg veit um fullt af fólki sem
vildi búa hér ef það hefði atvinnu.“
Sérverslanir hafa átt undir högg að
sækja á landinu og veiðarfæraverslanir
eins og Eyjabúð hafa ekki farið var-
hluta af því. „í dag em tvær veiðar-
færaverslanir á landsbyggðinni,
Eyjabúð og verslun á ísafirði. Aðrar
em annað hvort hættar eða hafa mnnið
inn í stórútgerðir og em notaðar sem
lager fyrir þær. Við byggjum á tryggð
Eyjamanna við okkur og góðu sam-
starfi við Ellingsen í Reykjavík en við
höfum verslað með vömr frá þeim frá
upphafi," sagði Friðfmnur að lokum.
t«ki»
Arsenalklúbburinn 20 ára:
Bogi og Haukur heiðraðir sérstaklega af því tilefni
-með áritaðri bók sem gefin var út af þessu tilefni
Það er ekkert grín að eiga sitt lið í
ensku knattspyrnunni en menn
geta átt sínar gleðistundir þegar
uppáhaldsfélaginu gengur allt í
haginn á vellinum. Og það er ekki
tjaldað til einnar nætur í þessari
aðdáun því ef menn ánetjast endist
áhuginn ævina á cnda.
Lundúnaliðið Arscnal hefur
lengi verið í fremstu röð
knattspyrnufélaga í enska
boltanum og á marga dygga
áhangendur hér á landi og finnast
þeir m.a.s. í Vestmannaeyjum.
Meðal þeirra dyggustu eru
Finnbogi Friðfinnsson, Bogi í
Eyjabúð og Haukur Guðjónsson,
Haukur vörubflstjóri á Reykjum.
Bogi er skráður númer 64.897 í
Arsenal og er númer fjögur í
Arsenalklúbbnum á íslandi.
Haukur kemur á hæla hans og er
númer sjö í Aðdáendaklúbbnum
en félagar eru um 2000 á Islandi.
Klúbburinn á 20 ára afmæli um
þessar mundir og gefur út af því
tilefni myndarlega bók um sögu
klúbbsins og koma Bogi og
Haukur báðir við sögu. Fráfarandi
formaður, Kjartan Björnsson,
INGVAR afhendir Hauk og Boga bókina góðu sem Kjartan Björnsson, fráfarandi formaður Arsenalklúbbsins
árítaði.
rakari á Selfossi, fékk Ingvar
Sigurjónsson í Skógum til að taka
með sér tvær áritaðar bækur og
afhenda þeim félögum. Hist var á
heimili Boga og Kristjönu Þor-
finnsdóttur konu hans þar sem
rætt var um ensku knattspyrnuna
og að sjálfsögðu var Arsenal þar
efst á baugi. Bogi ánetjaðist Arsen-
al á fyrri hluta síðustu aldar þegar
Albert Guðmundsson gerði
garðinn frægan á Highbury.
„En ég hef aldrei komist á leik
með Arsenal,“ segir Bogi.
Haukur hefur aftur nióti ekki
slegið slöku við og hefur aðeins
sleppt einu ári frá 1971. „Ég og
konan höfum skellt okkur á hverju
ári og árið í ár verður engin
undantekning,“ sagði Haukur.
I spjallinu kom Ijóslega fram að
stuðningur þeirra er einlægur og
meinleg skot hafa ekki meiri áhrif
en þegar vatni er skvett á gæs., Já,
við fórum ekki að svíkjast undan
merkjum eftir öll þessi ár,“ sögðu
þeir félagar um leið og Ingvar
afhenti þeim bókina góðu.