Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.2003, Blaðsíða 20
Enn
G l_ l_
hársnyrtistofa
SÍMI 481 3666
LftHTERHK
VEITINGAHUS
BÁRUSTÍG 11
SÍMI 481 3393
Vilhjálmur Bergsteinsson
Góðurmatur. Góð þjónusta. ir 481-2943 n 897-1178
Kostar minna en þú heldur.
ÞAÐ var mikið um dýrðir í Vélasalnum þegar þeir slógu saman, Hallarbændur, Ármann
Reynisson og Þórður Svansson, sem hér er með Anítu Vignisdóttur konu sinni.
Kristján Eggertsson
ráðinn hafnarvörður
Fundargerð hafnarstjórnar var lögð
fyrir bæjarráð á mánudag en meðal
mála sem afgreidd voru í nefndinni
var ráðning nýs hafnarvarðar.
Alls barst 21 umsókn um starfið og
ákvað meirihluti nefndarinnar að
ráða Kristján Eggertsson rafvirkja í
starfið.
Ekki var sátt um ráðninguna í
stjórninni og sat einn nefndarmaður
hjá við atkvæðagreiðslu og annar
greiddi atkvæði á móti.
Elsa Valgeirsdóttir (D), sem sat
fyrsta fund sinn á þessu kjörtímabili
í bæjarráði, óskaði eftir upplýsing-
um um nöfn, menntun og starfs-
reynslu umsækjandanna. Vildi hún
að þær lægju fyrir á næsta fundi
bæjarstjórnar sem er í kvöld.
Fréttir óskuðu eftir því við for-
mann hafnarstjómar, Hörð Þórðar-
son að fá nöfn umsækjenda upp-
gefin en hann sagði að ákveðið
hefði verið að halda því sem trúnað-
armáli og að allir stjórnarmenn
hefðu verið sammála um það.
Samkvæmt upplýsingalögum ber
að birta nöfn umsækjenda hjá hinu
opinbera en Hörður sagði aftur á
móti að hann væri ekki einu sinni
viss um að þeir þyrftu að auglýsa
þessa stöðu.
Samkvæmt heimildum Frétta voru
meðal umsækjenda þeir Sveinn
Rúnar Valgeirsson, Friðrik Már
Sigurðsson, Steingrímur Sigurðs-
son, Oskar Olafsson, Oskar Pétur
Friðriksson, Sigurjón Birgisson,
Reynir Jóhannesson, Grétar Omars-
son og Sigmar Magnússon. Eru allir
nema Grétar með skipstjórnarrétt-
indi og hafa flestir miklu reynslu á
því sviði Enn vantar nöfn ellefu
umsækjenda.
Stór flugslysaæfing í Vestmannaeyjum um helgina
Flugslysaæfing verður haldin í
Eyjum næsta laugardag. Æfingin er
í framhaldi af flugslysaáætlun sem
gerð var sl. sumar fyrir Vestmanna-
eyjallugvöll og þetta er í fyrsta
skipti sem slík áætlun er gerð
sérstaklega fyrir ákveðinn flugvöll á
landinu.
Jóhannes Ólafsson, yfírlögreglu-
þjónn, segir flugslysaáætlunina hafa
verið undirbúna í framhaldi af
mikilli flugumferð í kring um
þjóðhátíð. „Þegar áætlunin var klár
og búið að undirrita hana og sam-
þykkja var ákveðið að setja á æf-
ingu og fara eftir þessari flugslysa-
áætlun. Undirbúningur hefur staðið
yfir í nokkrar vikur og það koma
margir að henni, bæði hér og ofan af
landi.“
Mikill undirbúningur
Að æfingunni standa Flugmála-
stjórn Islands, Almannavarnadeild
ríkislögreglustjóra ásamt öllum við-
bragðsaðilum í Vestmannaeyjum,
svo sem lögreglu, slökkviliði,
heilsugæslu, almannavarnanefnd,
starfsmönnum flugvallarins, Rauða
krossinum og fleiri aðilum.
„Æfingin verður keyrð eftir svo-
kölluðu SABF skipulagi sem fjallar
um aðgerðastjórn á hópslysi. Heil-
brigðisstofnun Vestmannaeyja mun
vinna eftir nýrri hópslysaáætlun
sem gerð hefur verið fyrir stofnun-
ina. Það hafa verið þó nokkrir
undirbúningsfundir og m.a. var
námskeið sl. laugardag fyrir verk-
þáttastjóra þar sem starfsmaður
Almannavarnadeildar ríkislögreglu-
stjóra fór yfir æfinguna. I þessari
viku heldur undirbúningur áfram og
frá miðvikudagskvöldi er fullskipuð
dagskrá fram að æfingu. Þar verður
reynt að taka á þeim þáttum sem
geta komið upp í slysi af þessari
stærðargráðu. Hingað koma aðilar
sem hafa sérþekkingu á þessum
þáttum, t.d. fyrir slökkvilið, lög-
reglu, heilsugæslufólk, starfsmenn
flugvallar o.fl.
Vettvangsstjóraiíifreið í
FYRSTA SKIPTI
Jóhannes segir að í fyrsta sinn verði
notuð vettvangsstjórabifreið sem
búin hefur verið fjarskiptabúnaði og
öðrurn búnaði sem þarf að nota við
slíkar aðstæður. „Þetta er gamla
sjúkrabifreiðin sem Rauði krossinn
gaf alnrannavarnanefnd og hefur
verið sérstaklega útbúin sem vett-
vangsstjórabifreið. Vel á annað
hundrað manns koma að æfingunni
þar af eru tugir manna sem koma
ofan af landi eða taka þátt í henni
þar. Gert er ráð fyrir að vélin, sem
lendir í óhappinu, sé með fjörutíu til
fimmtíu farþega. Æfingin hefst um
hádegi á laugardag og stendur þann
dag. A sunnudag verður haldinn
sameiginlegur fundur með aðilum
sem komu að æfingunni þar sem
farið verður yfir æfinguna, þ.e. þá
þætti sem tókust vel og einnig þá
sem þarf að bæta,“ segir Jóhannes.
Hraunbitar + 3 buff 319,
Hversdags ís 1 Itr 299,
Vanillustangir 10 stk 428,
Hulk pinnar 5 stk 289,
Charmin comfort wc 8 rl 429,
Hersheys dassic caramels 170g 229,
SSSmurkæfa 135
SSskólakæfa 145
SS Helgarsteikur 1098,
Kynning fimmtudag og föstudag !
Nýtt á íslandi!
Brauðblöndur, frábært verð!