Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.2003, Blaðsíða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.2003, Blaðsíða 4
4 Fréttir / Fimmtudagur 30. október 2003 EYJAMAÐUR VIKUNNAR í leikhúsi eru allir hjátrúarfullir Um síðustu helgi frumsýndi Leikfélag Vestmannaeyja leikritið Litlu Ijót. í aðalhlutverki er Dorthy Lísa Woodland og þykir hún standa sig vel íhlutverki Litlu ijótar. Hún er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni. Nafn: Dorthy Lísa Woodland. Fæðingardagur: 20 nóvember 1986. Fæðingarstaður: Tacoma, Was- hington, USA. Fjölskylda: Pabbi Jessie James, mamma Ágústa, bræður: Óskar, Árni, Hjalli og Goði litli. Systur: Michaela og Nardia. Draumabíllinn: Austin Mini og Ford Mustang. Uppáhaldsmatur: Lasagne, ham- borgarahryggur og McDonalds. Versti matur: Gúllas og þorramatur. Uppáhaldsvefsíða: Þessa dagana er það bílasolur.is, ég er alveg að fá bílpróf. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Allt nema ópera og country. Hvaða mann/konu myndir þú helst vilja hitta í mannkynssögunni: Hallgerði Langbrók. Aðaláhugamál: Bílar, snjóbretti, leik- list og tónlist. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? San Francisco borg. Uppáhaldsíþróttamaður eða íþróttafélag: Real Madrid, Michael Jordan. Stundar þú einhverja íþrótt: Neibb. Ertu hjátrúarfull: Já, það kemur fyrir. Ef svartur köttur myndi hlaupa yfir götuna fyrir framan bílinn þá myndi ég stoppa og snúa við. í leikhúsinu eru allir hjátrúarfullir.. Uppáhaldssjónvarpsefni: Friends og Dawson's creek. Besta bíómynd sem þú hefur séð: Spiderman og Ocean's eleven. Hvernig gekk á fyrstu tveimur sýningunum? Mjög vel, gat ekki verið betra. Hvenær kviknaði áhugi þinn á leiklist? Þegar ég fór á leik- listarnámskeiðið í byrjun hausts þá komst ég að því að þetta var mjög gaman og langaði þá að halda áfram. Er ekki erfitt að byrja leikferil sinn í aðalhlutverki? Jú, ég hefði haldið það en ég hef reyndar enga viðmiðun. Stefnir þú á frekari frama í leiklistinni? Já ef tækifæri býðst þá væri ég alveg til í það. Eitthvað að lokum: Ég hvet alla bæjarbúa að kíkja á sýninguna okkar, við lofum góðri skemmtun. MATGÆÐINGUR VIKUNNAR Teriyaki kjúklingur Eg vil byrja á því að jiakka minni elskulegu systurfyrir þessa áskorun og cvtia að bjóða upp ájapanskan rétt sem er í miklu uppáhaldi á mínu heimili. Teriyaki kjúklingur Fyrir tvo til fjóra 500 gr úrbeinuð kjúklingaiæri. maísmjöl 2 msk. sykur 2 msk. sake (japanskt hrísgrjónavín, fœst í Ríkinu) 2 msk. mirin (j)ykkt japanskt hrísgrjónavín, efþað erekki til þá má nota annaðlivort sœtt sherry eða sake og smá sykur blandað saman) 2,5 msk. japanskt soja 5 vorlaukar, eða samsvarandi af blaðlauk sjávarsalt. Kjúklingurinn erlagðurá hretti með skinnhiiðina upp, pikkið með gaffli á nokkrum stöðum í húðina og nuddið síðan maismjöli á allan kjúklinginn. Steikið kjúklinginn á skinnhliðinni ísmá olt'u þar til hcmn er orðinnfallega gullinn og snúið þá við, lœkkið hitann og setið lok á pömutna og eldið í gegn. Blandið saman ískál sykri, sake, mirin og soja og hrcerið vel saman. Þegar kjúklingurinn er eldaður í gegn takið hann afpönnunni og þurrkið alla sjáanlega fltu og safa af pönnunni. Setjið kjúklinginn aftur á pönnuna og ausið kryddblöndunni jafii yfir hann og látið malla stutta stund. Skerið vorlaukinn niður í bita ca. 5 cm og steikið cí annarri pönnu í smá olíu í stutta stund og stráið salti yfir, haldið heitu. Fcerið kjúklinginn yfir á skurðarbretti og skerið niður í ca. I cm bita og setjið áfat og dreiflð lauknum yfir. Með þessu er gott að hafa sushihrísgrón, volgt sake og baunirmeð valhnetudressingu sem er þannig: Valhnetudressing 250 gr strengjabaunir 50 gr valhnetur 1 msk. sykur I msk. japanskt sojct 1 msk. sake 2 msk. vatn Baunimar eru skomar niður í ca. 5 cnt bita og settar út í sjóðandi léttsaltað vatn og soðnar í I mínutu. Þcer eru þá settar í sigti og kalt vatn látið buna yfir þcvr til kœlingar og st'ðan eru þœrþerraðar gróflega með eldhúspappír. 77/ að búa til dressinguna, myljið lineturnar þar til þcvr eru orðrtarað þurru nuiuki. Bcvtið ísykrinum, soja, sake og vatni og hrcvrið vel samatt þar lil allt er orðið mjúkt. Setjið baunimar ískál og lircerið dressingwmi varlega saman við. Verði ykkur að góðu. Hafþór Þorleifsson er matgæðingur vikunnar Nýfæddir ?cr " Vestmannaeyingar Þann 30. júní sl. eignuðust Ester S. Helgadóttir og Magnús Sigurðsson dóttur. Hún vó 14,5 mörk og var 54 cm við fæðingu á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Ljósmóðir var Drífa Björnsdóttir. Hún hefur verið skírð Ragna Sara. Með henni á myndinni er bróðir hennar, Sigurður Amar. Fjölskyldan býr í Vestmannaeyjum. Lanterna og Framhalds- skólinní samstarf Það lá létt í Olafi H. Sigurjónsson, Núsu Zivotnik og Relju Borosak þegar samningurinn var handsalaöur. í vikubyrjun handsöluðu Relja Boro- sak, annar eigandi Lantema og Ólafur Hreinn Sigurjónsson, skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum samstarfssamning. í honunt felst meðal annars að Lantema ntun stofna sjóð til styrktar efnilegum nemendum sem hafa bága fjárhagsstöðu. I erindi Lanterna stóð meðal annars að eigendur veitinga- staðarins telja að fyrirtæki eigi að skapa atvinnu og láta gott af sér leiða. Með það að leiðarljósi hafi þeir ákveðið að fimm prósent af veltu mánaðanna nóvember og desember, árin 2003 og 2004, fari í að styðja við bakið á efnilegum nemendum við Framhaldsskóla Vestmannaeyja, án tillits til þess á hvaða braut. námsári eða önn þeir em. Hugmyndin er sú að Lantema veiti námsstyrki, greiði skólagjöld og bóka- kaup nemenda sem búa við fjárhagsörðugleika, en eru efnilegir námsmenn að mati stjórnar skólans. Lanterna mun af þessu tilefni veita nemendum Framhaldsskólans 10% afslátt al mat alla virka daga, skólaárið 2003 til 2004 gegn framvísun skóla- skírteinis. Auk þess sem sérstakur matseðill lyrir nemendur verður ávallt til reiðu. Relja Borosak sagði í samtali við Fréttir að hugmyndin væri fyrst og fremst sú að láta gott að sér leiða. „Vonandi í framtíðinni mun fimm prósent velta í fimm mánuðum á ári tara í slíka eða svipaða styrkveitingu. Það fer svolítið eftir því hvernig þetta gengur.“ Relja sagði ennfremur að tíu prósent afsláttur af matseðli byðist framhaldsskólanemum. „Þeir fram- vísa skólaskírteini og geta fengið tíu prósent afslátt af öllum mat héma inni. Við verðum með sérstakan matseðil fyrir krakkana, með léttari réttum, hamborgurum, samlokum og fleira en afslátturinn gildir að sjálfsögðu af báðum matseðlunum." á döfinni Október 31. Höllin: Slórtónleikar með Bubba lillorlhens og Heru falla niður. 31. Lundinn: Hljómsveitin Buff. Nóvember I. Höllin: Lúðrasveil Vesfmannaeyja með tónleika kl. 15.00. I. Leikfélag Vm. Litla Ijóf, sýning kl. 17.00. 1. Höllin: Verslunarballið, Stuðmenn sjá um fjörið. 1. Lundinn: Hljómsveitin Buff. 2. Leikfélag Vm. Litla Ijót, sýning kl. 16.00. 4. Remax deild kvenna: IBV ■ Stjarnan kl. 19.15. 7.-8. Lundinn: Hljómsveitin Tilþrif. Ég bið að heilsa öllum í Eyjunum oj> skora á frænku mína hana Lindu Hrönn Ævarsdóttur að bjóða upp á eitthvað í næstu viku.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.