Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2004, Page 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 12. ágúst2004
EYJAMAÐUR VIKUNNAR
Alls ekki sleppa
lundapysjum í höfnina
Nú er pysjutímabilið að hefjast og að
mörgu að hyggja. í fyrra hóf göngu
sína Pysjueftirlitið og gekk það vel. í
árverðurekkertslegiðaf. Höfuðpaur
Pysjueftirlitsins er Brúsi bjargfasti og
hann er Eyjamaður vikunnar af
þessu tilefni.
Nafn: Brúsi Bjargfasti.
Fæðingardagur: 21. febrúar 1963.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar
og Klifið en ég fæddist þar.
Fjölskylda: Laus og liðugur en er að
leita mér að hentugum lífsförunaut.
Draumabíllinn: Þarf ekki bíl, flýg allt
sem ég þarf að fara.
Uppáhaldsmatur: Síli er minn
uppáhaldsmatur
Versti matur: Hamborgarar og
pítsur. Lít ekki við skyndimat.
Uppáhalds vefsíða: eyjafrettir.is og
setur.is.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Fugladansinn með Ómari
Ragnarssyni. Það er besta lag sem
ég hef heyrt.
Aðaláhugamál: Björgun litiu
lundapysjanna og allt sem snýr að
útivist.
Hvaða mann/konu myndir þú helst
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Fuglamanninn.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Ég er ekki mikið fyrir að
ferðast á landi og eyði ansi miklum
tíma á sjó. Ég skreppi þó stundum
upp að ströndum Skotlands yfir
Brúsi bjargf'asti er
Eyjamaður vikunnar.
veturinn. En björgin í Vest-
mannaeyjum eru fallegustu björgin
og Vestmannaeyjar eru fallegasti
staðurinn sem ég hef komið á.
Uppáhaldsíþróttamaður eða
íþróttafélag: Allir Eyjamenn og að
sjálfsögðu öll liðin sem koma frá
Vestmannaeyjum. Svo er Lalli lundi,
vinur minn sérlega góður í 200 metra
kafsundi.
Ertu hjátrúarfullur: Nei.
Stundar þú einhverja íþrótt: Nei en
ég reyni að fljúga reglulega.
Uppáhaldssjón varpsef ni:
Sjónvarp? Hvaðernúþað.
Besta bíómynd sem þú hefur séð:
Ég hef ekki ennþá séð bíómynd en
vonandi fæ ég að gera það einhvern
tímann.
Hvernig finnst lundapysjum best
að láta bjarga sér: Þeir sem bjarga
lundapysju verða að fara mjög
varlega með þær. Best er að setja
þær strax í kassa og passa að hafa
ekki of margar pysjur í hverjum
kassa. Það má alls ekki leika sér
með pysjurnar og svo verður að
geyma þær á svölum en öruggum
stað yfir nóttina. Gott er að koma við
í Náttúrugripasafninu áður en farið
er heim og vigta pysjurnar. Það
verður svo að sleppa þeim sem fyrst
daginn eftir og alls ekki í höfnina.
Hvar er best að sleppa lunda-
pysjum: Það eru nokkrir staðir sem
eru góðir, t.d. inni á Eiði, úti í Klauf og
Brimurð og í fjörunni í nýja hrauninu.
Hvar er hægt að nálgast bækling
Pysjueftirlitsins: Það er hægt að
nálgast þá í Sparisjóði Vestmanna-
eyja, Náttúrugripasafninu, Hótel
Þórshamri og Hótel Eyjum. Best er
að lesa bæklinginn vel, kynna sér
sleppistaðina og skrá svo sam-
viskusamlega niður þær upplýsingar
sem beðið er um. Bæklingnum skal
svo skila í Sparisjóðinn eða á
Náttúrugripasafnið
Eitthvað að lokum: Já ég vil bara
þakka öllum þeim duglegu krökkum
og líka fullorðna fólkinu fyrir að bjarga
pysjunum okkar. Án ykkar hjálpar
værum við algjörlega ósjálfbjarga.
Skúffukaka og létt meðlæti
Eg vil þakka uppáhalds vini
mínum, Bjarka Kristjánssyni fyrir
að skora á mig sem matgœðing
vikunnar. Það hefur greinilega haft
áhrif á liann að ég hakaði
skúffuköku í Elliðaey ífyrra en slíkt
er algjör barnaleikur.
Ég ákvað að vera ekki með
aðalrétt frekar meðlaiti eða eins og
þeir segja fyrir norðan mceru með
grillmatnum og að sjálfsögðu
skúffuköku uppskrift sem er œttuð
frá Sœsu Vídó, og hefur uppskriftin
reynst mér ekkert nema gœðin í
gegn.
Skúffukaka
400 gr sykur
400 gr hveiti
6 mtsk, kakó
2 tsk. natron
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
200 gr smjörlíki
2 bollar mjólk
4 stk. egg
Friðrik Björgvinsson er
matgæðingar vikunnar
Það hefur reynst mér best að setja
þurrefnið saman og hræra því vel
sarnan, meðan ég bræði smjörlíkið.
bæta svo vökvahliðinni við meðan
hrært er. Ofninn er hafður á 180° og
tekur um 20 - 30 mínútur eftir
smekk.
Krem
4 bollar flórsykur
2 msk. kakó
200 gr smjörlíki
Vi bolli mjólk
2 tsk. vanilludropar.
Það er algjört lykilatriði að hræra
kretnið vel saman og smyija því á
kökuna meðan hún er heit.
Grillmeðlœti
1 lítil dós majones
I dós sýrður rjómi
Vi dós ntaís baunir
1 laukur
1 - 2 tsk karrý (saltflögur).
Þessu er einfaldlega hrært saman og
er mjög gott með öllum grillmat, þá
eru það bökunarkartöflur sem em
skomar til helminga og sárið penslað
með olíu og kryddað með papriku,
sett í 200° heitan ofn í c.a. 50 - 60
mín. Þá er stráð yfir beikon bitum frá
Mac Cormick ásamt rifnum osti og
látið bakast í 10 - 15 mín. Gott er að
hræra sarnan restinni af beikon
bitunum saman við sýrðan tjóma og
bera það fram með kartöflunum.
Eg vil svo skora á einstakan matgæðing og Elliðaeying Arnar Andersen.
Nýfæddir______ 9*
Vestmannaeyingar
Þannl9. júní
eignuðust Björk
Steingnmsdóttir og
John Mark Atkins,
dóttu r.
Hún fæddist á
Heilbrigðisstofnun
Vestmannaeyja og
vó 18 merkur og
55 cm.
Ljósmaður ver
Guðný
Bjamadóttir.
Stúlkan hefur verið
skírð Lena Atkins.
Fjölskyldan býr í
Vestmannaeyjum.
Nýtt uimboð
JHbtgttioHröifr
í Ves tmannaey j uin
Nýtt símanúmer 481-3293 / 699-3293 Breytingar á áskrift í sráa 800-6122
Eigendur fellihýsa og
tjaldvagna í Eyjum
Get tekið að mér geymslu á þessum búnaði í vetur
í Eyjum. Húsnæðið er upphitað og loftræst.
Upplýsingar í síma 481-1353 / 898-1353
Þjóðhátíðarblað 2004
Hægt ér að nálgast Þjóðhátíðarblaðið á eftirfarandi
stöðum: Skýlinu, Klettí, Vöruvali og Tvistinum.
Fólk getur einnig haft samband við Skapta Örn
Úlafssonís. 899-2200.
Eínníg er hægt að fá blöð hjá Skapta
fráárunum 2002 og 2003.
www.eyjafrettir.is
- nýr og betri fréttavefur
◦ döfinni
Ágúst
6. Landsbankadeild kvenna: ÍBV - KR kl. 19.00.
6.-8. íslandsmót eldri kyllinga.
14. Landsbankadeild kvenna: ÍBV ■ Þór/KA/KS kl. 16.00.
14. Masterclass 2004 belst.
15. Landsbankadeild karla: ÍBV ■ FH kl. 18.00.
16. VÍS-mótii I golli.
20. ■ 22. Sveitakeppni anglinga i golli.
21. Menninganótl í Reykjavík, Vestmannaeyjabær tekur þátt.
28. Landsbankadeild karla: ÍBV - Vikingurkl. 14.00.