Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2004, Page 11

Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2004, Page 11
Fréttir / Fimmtudagur 12. ágúst 2004 11 Tækifærin liggja víða Masterclass 2004 og tónlistarhátíðin Tónlistardagar í Vestmannaeyjum verður haldin í Vestmannaeyjum dagana 14. til 22. ágúst. Áshildar Haraldsdóttur, flautleikari, segist vonast til að hátíðin nái að ávinna sér alþjóðlegan sess og hingað komi fleiri erlendir tónlistarmenn. Kennarar og nemendur hafa staðið fyrir metnaðarfúllum tónleikum þessa daga, tónlistamnnendum til ánægju. Nú er áformað að bjóða upp á námskeið í atburðastjómun en Vest- mnannaeyingar búa eins og kunnug er yfir mikilli þekkingu á skipulagningu stærri atburða. Þetta er íjórða árið sem tónlistamámskeið er haldið hér og kannski er tækifæri til að gera það enn stærra og meira ferðaþjónustunni til framdráttar. Ef námskeiðið yrði markaðsett skipulega erlendis og hingað kæmu fleiri erlendir nemendur gæti það orðið til þess að hingað kæmu tónlistamnnendur ofan að landi til að njóta þess sem nemendur og kennarar hafa fram að færa í tónlistinni. Tækifærin liggja víða. Páp Scheving framkvæmdastjóri ÍBV skrifar: Utihátíð, fíkniefni og leiðari Það sem rek- ur undirrit- aðan í þessi skrif er leiðari Morgun- blaðsins miðvikudag- inn 4. ágúst síðastliðinn undir fyrir- sögninni „Fór allt „vel fram“ um verslunarmannahelgina?" Þessi leiðari endurspeglar umræðu og þanka þeirra sem horfa á hlutina úr fjarlægð og leggjast í mikla stærðfræði við mat á hlutunum án þess að velta því á nokkum hátt fyrir sér hvað í raun og vem liggur að baki tölunum. Leiðarahöfundur segir meðal annars: „í fyrirsögn á forsíðu Morg- unblaðsins í gær kemur fram að rúmlega hundrað fíkniefnamál hafi komið upp á landinu um helgina. Það er grafalvarlegt mál og til marks um að ekki hafi allt verið sem skyldi á öllum þeim skemmtunum sem fóm fram um helgina - vísbending um að ekki hafi allt farið „vel fram“ eins og það er gjaman orðað. Það er eftir- tektarvert hversu ánægðir forsvars- menn hátíðahalda víðs vegar um landið em með þær skemmtanir sem þeir bám ábyrgð á. Því má ekki gleyma að mótshaldarar hafa beina hagsmuni af því að almennt sé álitið að útihátfðir hafi farið vel fram og skemmtanahaldið verið áfallalaust, enda em fjárfestingar þeirra oft umtalsverðar. Hagsmunir almennings em þó fyrst og ffemst þeir að um alla Þjóðhátíð Vest- mannaeyja er 130 ára gömul og Vest- mannaeyingum er mjög annt um það orðspor hátíðarinnar. Þess vegna erum við við öliu búnir og leggjum okkur fram um að leysa öll verkefni í tengslum við hátíðina af kostgæfni. Það er því krafa Eyjamanna að um þessa hátíð sé fjallað af víðsýni og sanngirni. Vestmannaeyingar eru reyndustu menn á íslandi í framkvæmd útihátíða. þætti skemmtanahalds verslunar- mannahelgarinnar sé fjallað af hispursleysi og ábyrgð.“ Á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum komu upp 43 fíkniefnamál. Skyldi það vera jákvætt eða neikvætt fyrir mótshaldara? Af því að stærðfræði er leiðarhöfundi hugleikin þá skulum við aðeins rýna í þessar tölur með það í huga að Þjóðhátíð fer fram á Heimaey sem er eyja suður af íslandi, það gerir alla fíkniefnaleit einfaldari því aðeins er um tvær komuleiðir til Heimaeyjar, í gegn um höfhina eða flugvöllinn sem gefur fíkniefnalögreglu greiðan aðgang að farþegaskrám, farangri og farþegum. Tveir fíkniefnahundar voru í Vest- mannaeyjum um verslunarmanna- helgina sem að sögn lögreglu reyndust afbragðsvel. Það er neikvætt fyrir mótshaldara að gestir skuli bera með sér fíkniefni en það hlýtur að vera jákvætt að um 50 hafi verið gripnir. Hvað skyldi nú vera jákvætt við það? jú lögreglan hefur staðið sig vel, efnanna sem lagt var hald á var ekki neytt í Heijólfsdal. Það berst um fíkniefnaheiminn að erfitt sé að koma efnum til Vestmannaeyja sem þegar til framtíðar er litið hjálpar Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Á kenna bakaranum um holdafarið? Það er rétt hjá leiðarahöfundi að framkvæmd alvöru útihátíðar er mikil fjárfesting og rétt að taka það fram hér að stærsti útgjaldaliður Þjóðhátíðar Vestmannaeyja er vegna öryggis gestanna þ.e. löggæsla, gæsla, læknar og sálgæsla. Það er einfaldlega stað- reynd að sá heimur sem við lifuni í fer harðnandi og tilvist fíkniefna er því miður ömurleg staðreynd í okkar samfélagi en það er fátækleg fram- setning að skella skuldinni á útihátíðir, það er svipað og bæjarbúar í litlu samfélagi myndu kenna bakaranum um slæmt holdafar bara af því að hann bakar góða snúða. Því miður höfum við ekki alltaf fullt vald á aðstæðum hversu vel sem við leggjum okkur fram. Á þjóðhátíð er talið að gestir hafi verið um átta þúsund þetta árið og undirritaður fullyrðir að Þjóðhátíð hafi farið vel ffarn. Alveg eins og skólameistari með áttaþúsund nemendur myndi telja það góðan árangur að útskrifa 99% nemenda með fyrstu einkunn. Þó einhveijir væru örugglega tilbúnir að gagnrýna hann fýrir þetta eina prósent sem klikkaði, það vita líka Eyjamenn og flestar fréttastofur í landinu að Morgunblaðið hefur ekki alltaf farið með rétt mál en er samt sem áður ágætt blað þegar á heildina er litið. Þjóðhátíð Vestmannaeyja er 130 ára gömul og Vestmannaeyingum er mjög annt um orðspor hátíðarinnar. Þess vegna erum við við öllu búnir og leggjum okkur fram um að leysa öll verkefni í tengslum við hátíðina af kostgæfni. Það er því krafa Eyjamanna að um þessa hátíð sé fjallað af víðsýni og sanngimi. Vest- mannaeyingar em reyndustu menn á íslandi í ffamkvæmd útihátíða. Eftirskrif. Segjum sem svo að lögreglan á íslandi hefði á engan hátt staðið sig þessa umræddu helgi og ekkert fíkniefnamál komið upp. Það er gaman að velta því fyrir sér hvort leiðarahöfundurinn töluglöggi hefði orðið himinlifandi eða kannski bara reynt að finna aðra leið til að fjalla um útihátíðir eins og hann orðar það „af hispursleysi og ábyrgð". Páll Scheving Ingvarsson Framkvœmdastjóri IBV Séra Fjölnir kveður Vestmannaeyjar SÉRA Fjölnir segist munu sakna Vestmannaeyja en nú heldur fjölskyldan til Hornafjarðar. Séra Fjölnir Ásbjömsson sem hefur þjónað Vestmannaeyjaprestakalli í vetur, ásamt sóknarprestinum séra Þorvaldi Víðissyni, er nú á fömm frá Vestmannaeyjum. Þessi ungi og hressilegi prestur segist muni sakna Vestmannaeyja enda hafi farið vel um hann hér og fólkið tekið honum vel ffá fýrsta degi. Fjölnir mun fiytja til Homafjarðar þar sem hann mun leysa af sóknarprestinn, séra Sigurð Kr. Sigurðsson sem er á leiðinni í náms- leyfi. Fjölnir er að verða vinsæll afleysingaprestur en segir brátt kom- inn tíma til að festa rætur. „Síðastliðið ár hefur óneitanlega verið fljótt að líða. Eg kem til með að sakna þeirra fjölmörgu sem ég hef kynnst hér og óska Vestmanna- eyingum alls hins besta í framtíðinni. Það hefur verið ógleymanlegt að fá tækifæri til að búa hér og starfa síðast- liðið ár, fá að taka þátt í setningu Þjóðhátíðar og Þjóðhátíðinni sjálfri sem var ógleymanleg upplifun. Einnig er goslokaafmælið minnisstætt og kaffihúsamessumar svo eitthvað sé nefnt. Og það er gott að hugsa til þess hversu fjölbreytt starfið er í Landakirkju," sagði Fjölnir. „Þegar ég hverf frá Vestmanna- eyjum er efst í huga mínum þakklæti til sóknamefndar fýrir að veita mér þetta tækifæri, einnig vil ég þakka öllum þeim fjölmörgu samstarfs- mönnum sem hafa gert mér vinnuna léttari og ánægjulegri og þeim fjölmörgu vinum sem við hjónin höfum eignast héma meðan á þessari dvöl stóð. Við hjónin höfum verið ákaflega ánægð með þær móttökur sem við höfum fengið og viljum þakka fýrir okkur. Ef tækifæri hefði verið til hefðum við gjaman viljað vera lengur en við munum áreiðanlega koma aftur í heimsókn þegar ffarn líða stundir. Það er vissulega þroskandi og lær- dómsríkt að flytja svona milli staða, okkur hjónin hafði langað til að kynnast landinu okkar betur en þangað til við komum til Vestmanna- eyja höfðum við búið á Norður- landi-Vestra og Vestfjörðum ef frá em talin námsárin í Reykjavík. Þetta var því kærkomið tækifæri til að kynnast Suðurlandi og nú höldum við í austurátt. En það virðist vera sam- dóma álit Vestmannaeyinga að Höfn í Homafirði sé afbragðs dvalarstaður og láta margir þess getið að trúlega sé álíka veðursælt þar og hér í Vest- mannaeyjum. Annars fer vonandi að koma að því að við getum sett okkur niður einhvers staðar til frambúðar, vonandi í einhveiju meðalstóm og líflegu útgerðar- og eða landbúnaðar- plássi. Síðasta embættisverkið mitt hér í Eyjum verður trúlega messan á sunnudaginn kemur og verður það kveðjumessan mín hér í Vest- mannaeyjum, í það minnsta í bili. Vonast ég til að ná að kveðja sem flesta af þeim sem ég hef kynnst hér í vetur sem leið. Messan byrjar klukkan 11:00 og að henni lokinni verður boðið upp á kaffi og léttar veitingar í Safnaðarheimili Landa- kirkju." Spurt er: Er of heitt úti? Er um 20 gráður Stcingiínnir Arnar Jónsson: Já. allt of'lieitt lýrir mig. Freydís Vigfúsdóttir: Nci. nei. Mér linnsl þetta bara vcra æði. (iuðjóii (iíslasiiii: Nci, |ictla cr lím cins og cr. Það vtcri bctra cl'tilll siimarið \ ;cri bara svona gott. Snorri I’úll Snorrason: Já það cr ol’t licitt. lig \iiin í kyiulistiið í mikliiin liita cn saml fiiinsi mcr of licilt títi núiia.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.