Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2004, Qupperneq 14

Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2004, Qupperneq 14
14 Fréttir / Fimmtudagur 12. ágúst 2004 VERÐLAUNAHAFAR: Kristján, Jóhann Pétur, Erla og Katrín. / Islandsmót eldri kylfinga í Eyjum um síðustu helgi - Katrín krækti sér í gull Islandsmeistari með lónskyHum Landa- KTRKJA Fimmtudagurinn 12. ágúst Kl. 10:00 Mömmumorgunn í Landakirkju. Kl. 14:30 Helgistund á Heil- brigðisstofnun. Sunnudagur 15. ágúst Kveðjumessa sr. Fjölnis As- bjömssonar. Kl. 11:00 Guðsþjónusta í Landa- kirkju, síðasta guðsþjónusta sr. Fjölnis hér í Eyjum, að sinni. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Guðmundar H Guðjónssonar. Prestur sr. Fjölnir Asbjömsson. Að guðsþjónustu lokinni verður boðið upp á léttar veitingar í Safnaðarheimilinu. Allir velkomnir. Miðvikudagur 18. ágúst Kl. 11:00 Helgistund á Hraun- búðum. Hytta- SUNNU- KIRKJAN Fimmtudagur 12. ágúst Kl. 20:30 Biblíuleshópur í umsjá Lilju Óskarsdóttur. Lesin er Rutar- bók Gamla testamentisins. Allir eru velkomnir. Laugardagur 14. ágúst Samveran fellur niður. Sunnudagur 15. ágúst Kl. 11:00 SAMKOMA Lofgjörð og blessun í Heilögum anda og lifandi orð Guðs. „Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá.“ Sálm. 37:5. Allir eru hjartanlega velkomnir. Skrifstofa safnaðarins er lokuð vegna sumarieyfa. Advent- kirkjan Laugardagur 14. ágúst Kl. 10.30 Biblíurannsókn. Biblían talar Sími 481-1585 Um síðustu helgi fór fram í Eyjum Islandsmót eldri kylfinga í golfi og tók 141 þátt í mótinu í fjómm flokkum. Tveimur flokkum karla, 55 ára og eldri og 70 ára og eldri og tveimur flokkum kvenna 50 ára og eldri og 65 ára og eldri. Mótið fór vel fram en veður hafði áhrif til hins verra. Stefnt var að því að leika þijá hringi þ.e. 54 holur á föstudeginum en vegna bleytu varð að hætta leik þann dag hjá 55+ flokki karla og léku þeir því aðeins tvo hringi en aðrir flokkar þrjá. Annars var árangur góður á mótinu og komust Eyjamenn á verðlaunapall. Katrín Magnúsdóttir krækti sér í gull í keppni með forgjöf og Kristján Gunnar Ólafsson silfur. Hjónin Jó- hann Pétur Andersen og Erla Adolfs- dóttir, sem keppir reyndar fyrir GA, fengu bæði silfur í keppni án forgjafar og bæði brons í keppni með forgjöf sem er frábær árangur hjá þeim. Farangurinn skilinn eftir Frábær árangur Katrínar Magnús- dóttur, Golfklúbbi Vestmannaeyja, í mótinu kom mörgum á óvart og kannski ekki síst henni sjálfri. Hún sigraði í flokki kvenna 50 ára og eldri ÍBV mætti Stjömunni á þriðjudags- kvöld í Garðabænum. f frekar daufum leik hafði ÍBV sigur, 0-3, skoraði Margrét Lára 2 og Ölga 1. Þar á bæ hafa menn tekið þá ákvörðun að knattspymustarf félags- ins fari fram á gervigrasi og er aðal- völlurinn úr gervigrasi sem viðurkennt erafUEFA. Leikurinn var í daufari kantinum, Eyjastúlkur vom mun betra liðið en Stjaman stillti upp þéttum vamarmúr, einu sinni sem oftar og var lítil áhersla lögð á að sækja. í þrígang tókst Eyjastúlkum hins vegar að koma boltanum í netið en ÍBV er enn sem með forgjöf, tók forystuna strax á fyrsta degi, jók hana heldur hina tvo dagana og sigraði með sjö högga mun. Það sem er hvað athyglisverðast við þennan árangur er að golfsettið hennar Katrínar týndist úti í Englandi í fyrri viku og fannst loksins í gær. Hún varð því að spila með lánskylfum sem kom þó ekki að sök. Raunar lék annar og öllu þekktari kylfingur, Trevor Immel- man, sama leik fyrir skemmstu á Hvaleyrinni þegar settið hans tapaðist og hann varð að fá lánað sett. En af hverju týndist settið hennar Katrínar? „Þeir verða að svara því hjá Flug- leiðum. Við vomm í vikugolfferð í Englandi, fjögur saman, við hjónin og Erla og Jóhann Pétur. Komum til landsins aðfaranótt miðvikudags í síðustu viku og allur okkar farangur var skilinn eftir úti. Þau þrjú fengu svo golfsettin sín sama dag og mótið bytjaði en mitt fannst ekki. Eg var fyrst að hugsa um að hætta við að taka þátt í mótinu en lét svo mana mig í að mæta og sé ekkert eftir því. Vinkonur mínar vom einkar hjálplegar, þær Hrefna og Lilla lánuðu mér trékylfur og fleira og Inga Bima lánaði mér jámin sín. Eg er þeim einkar þakklát íyrir að lána mér bæði hægri og vinstri fyrr í öðm sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Val. Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV sagði í samtali við Fréttir að hann væri umfram allt ánægður með sigurinn. „Við höfum lent í vandræðum héma í Garðabænum og þess vegna er ég mjög ánægður með stigin þijú. Þetta var samt sem áður frekar rólegur leikur og sigur okkar í raun aldrei í hættu. Stjaman sótti nánast ekki neitt, þær vom sáttar við að tapa en vildu bara, gera það með sem minnstum mun, Það var líka dálítið erfitt að færa sig aftur á gervigrasið eftir að hafa spilað á grasi í allt sumar en samt sem hendumar sínar.“ Er ekkert erfitt að fara allt í einu að spila með lánskylfum? „Það gekk alveg merkilega vel. Tré- kylfumar vom reyndar sams konar og mínar og jámin hennar Ingu Bimu em einhver þau bestu sem ég hef snert á. Það var helst pútterinn sem var að angra mig, ég hefði gjaman viljað hafa Hippóinn minn, þá hefðu höggin orðið enn færri.“ Katrín byijaði að spila golf fyrir um það bil tíu ámm og hefur tekið þátt í nokkmm íslandsmótum eldri kylfinga en aldrei náð verðlaunasæti þar fyrr en nú. En hverju þakkar hún þennan góða árangur? „Ég hef verið ansi iðin við að æfa mig það sem af er þessu ári og það er að skila sér. Ég var með yfír 30 í forgjöf á síðasta ári og setti mér það takmark að lækka mig rækilega. Ég er núna komin niður í 23 en takmarkið er að komast niður fyrir 20 á árinu. Ég reyni að spila á hverjum degi og fer svo líka á æfingasvæðið. Svo er ég svo heppin að búa uppi í sveit þar sem nóg er landrými og fer oft út á tún með kylfumar. Hestamir em alveg hættir að kippa sér upp við það þótt ég sé að slá við hliðina á þeim.“ áður em aðstæður hér í Garðabænum alveg stórkostlegar, toppgervigras á öllu svæðinu þannig að þeir em vel settir fyrir vetrartímann.“ ÍBVspilaði 4-4-2 Claire Johnstone, Mary McVeigh, Michelle Barr, íris Sæmundsdóttir (Samantha Britton), Elena Einisdóttir, Mhairi Gilmour, Rachel Kmze, Elín Anna Steinarsdóttir (Ema Dögg Siguijónsdóttir), Sara Sigurlásdóttir (Sigríður Asa Friðriksdóttir), Margrét Lára Viðarsdóttir, Olga Færseth. Mörk ÍBV: Margrét Lára Viðars- dóttir 2 og Olga Færseth 1. Lækkaði þá forgjöfin ekki í mótinu? „Nei, veðrið gaf nú ekki tilefni til þess, rok og rigning og þeir vom ekki margir sem lækkuðu í forgjöf. Ég held að ég hafi staðið í stað á þessu móti sem er út af fyrir sig alveg í lagi.“ Var það kannski kostur fyrir þig að spila á heimavelli við þessar að- stæður? , JEflaust hefur það ekki skemmt fyrir. Ég á að þekkja þennan völl og þetta veður betur en hinar. Annars er það merkilega í þessu að ég hef hvað minnst lækkað forgjöfma mína á þessum velli, það er aðallega uppi á landi sem það hefur gerst.“ Eiginmaðurinn í miðjunni Nú spilið þið hjónin bæði golf. Hvemig gekk eiginmanninum? „Hann var einhvers staðar í kringum miðjuna í sínum flokki. Hann hefur fram til þessa verið drýgri en ég við að ná í verðlaun en eigum við bara ekki að segja að nú sé minn tími kominn. En hann dró fyrir mig á laugar- deginum þegar hann var búinn að spila og það var mjög gott enda var það besti hringurinn minn. Ég dró svo fyrir hann á sunnudag en það dugði ekki til. Þau sögðu við hann í mótslok, Erla og Jóhann Pétur að í næstu golfferð yrði að senda hann út viku fyrr svo að hann gæti æft sig og reynt að ná svipuðum árangri og við.“ Það vekur athygli hve fáar konur frá GV taka þátt í þessu móti. Af hveiju mæta ekki fleiri til leiks? „Ég veit það ekki. Það era margar konur sem iðka golf héma en taka sjaldan þátt í mótum. Ég er þannig gerð að mér finnst langmest gaman að spila í mótum, það er meira spennandi og ætli ég sé bara ekki svona mikill spennufíkill. Svo eignast maður svo marga kunningja með því að spila í svona mótum og það finnst mér ómetanlegt." Og á að mæta upp á Skaga að ári til að veija titilinn? „Ég er nú ansi hrædd um það ef mér endist aldur og heilsa til. Það er þegar byijað að planleggja æfingahringina þar og ég ætla bara að vona að ég týni ekki settinu mínu aftur,“ sagði Katrín Magnúsdóttir, nýkrýndur íslands- meistari að lokum. | Knattspyrna Landsbankadeild kvenna: Stjarnan 0 - ÍBV 3 Ánægður meá stigin þrjú -segir Heimir Hallgrímsson, þjálfari

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.