Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2004, Page 15

Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2004, Page 15
Fréttir / Fimmtudagur 12. ágúst 2004 15 | Knattspyrna Landsbankadeild: KR 0 - ÍBV 0 Mikilvægt stíg í toppbaróttunni Eyjamenn léku erfiðan útileik gegn KR síðastliðinn sunnudag, aðeins þremur sólarhringum eftir framlengd- an bikarleik gegn KA. Lokatölur gegn KR urðu 0-0 sem verða að teljast nokkuð góð úrslit. Fyrri hálfleikur var jafn og liðin skiptust á að sækja. Af rúmlega 1300 áhorfendum á KR-vellinum voru um 300 á bandi IBV og létu vel heyra í sér. Annars fengu áhorfendur talsvert fyrir peninginn því leikurinn var bæði opinn og skemmtilegur þrátt fyrir að mörkin hafi vantað. KR-ingar komust næst því að skora undir lok fyrri hálfleiks, reyndar skoruðu þeir en markið var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Þá áttu þeir einnig skalla í stöng og nokkrum sinnum þurfti Birkir Krist- insson að taka á honum stóra sínum. En Eyjamenn fengu líka sín færi. Bjamólfur Lárusson átti bylmingsskot að marki sem var varið á línu og í kjölfarið fékk Atli Jóhannsson gott skotfæri en vamarmaður náði að komast fyrir skotið og bjarga í hom. I síðari hálfleik vom KR-ingar svo meira með boltann án þess þó að mikil hætta skapaðist upp við mark ÍBV. Eyjamenn beittu hættulegum hraða- upphlaupum og tvívegis skapaðist hætta við KR-markið, fyrst átti Atli gott skot sem Kristján Finnbogason, markvörður KR varði naumlega í hom. Svo sýndi Gunnar Heiðar Þor- valdsson lagleg tilþrif þegar hann sneri af sér vamarmann KR og skaut föstu skoti að marki en aftur varði Kristján. Undir lokin vom fætur leikmanna ÍBV orðnir ansi þugnir og sóttu KR- ingar nokkuð stíft síðustu tíu mín- útumar. En það sem komst í gegnum vamarmúrinn, varði Birkir meistara- lega og lék þessi næstum fertugi markvörður sig aftur inn í lands- liðshópinn. Bjamólfur Lámsson sagði í samtali við Fréttir eftir leikinn að leikurinn hafí verið skemmtilegur fyrir áhorf- endur. , Já, ég er mjög sáttur við okkar leik enda áttum við mjög erfiðan bikarleik fyrir þremur dögum. Það sat talsvert í manni. Það var mjög góð barátta hjá okkur, liðið reyndi að spila fótbolta þegar okkur gafst tækifæri til þess og ég er mjög ánægður með eitt stig þegar upp er staðið. Það ætluðu bæði lið að vinna og sýndu mikla baráttu. Reyndu að sækja eins og þau gátu og ég held að þetta hafi verið mjög skemmtilegur leikur á að horfa.“ ÍBV spilaði 4-4-2 Birkir Kristinsson, Matt Gamer, Páll Hjarðar, Tryggvi Bjamason, Mark Schulte, Atli Jóhannsson, Ian Jeffs, Bjamólfur Lámsson, Jón Skaftason (Bjami Geir Viðarsson), Magnús Már Lúðvíksson (Steingrímur Jóhannes- son), Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Þrír Eyjamenn í landsliðinu A mánudaginn úlkynntu lands- liðsþjálfaramir, Ásgeir Sigurvins- son og Logi Ólafsson, 22 manna landsliðshóp sinn fyrir leikinn gegn Itölum sem fram fer miðvikudaginn 18.ágúst. I hópnum má finna þrjá Eyja- menn, Hermann Hreiðarsson er að vitaskuld á sínum stað en Birkir Kristinsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson koma nýir inn í hópinn. Birkir er auðvitað einn leikreyndastli leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi en hefur ekki verið viðloðandi landsliðið undanfarin misseri. Þessi fertugi unglingur hefur svo sannarlega spilað sig inn í lands- liðshópinn að nýju, hefur leikið nánast óaðfmnanlega og er sterkasti markvörður íslensku deildarinnar í dag. Gunnar Heiðar er að sjálf- sögðu búinn að sanna sig í sumar sem framtíðarlandsliðsmaður og kemur val á honum lítið á óvart en þetta er í fyrsta sinn sem hann er valinn í hópinn. Hins vegar vekur nokkra athygli að Tryggvi Guðmundsson er ekki í hópnum en áætlað er að skera hópinn niður í átján leikmenn í dag. Þá var Tryggvi Bjamason valinn íU-21 árs landsliðið. Púsluspil fyrir FH-leikinn Magnúsi Gylfasyni er vandi á höndum því svo gæti farið að fimm leikmenn, sem vanalega em í byij- unarliði ÍBV, geti ekki leikið með liðinu gegn FH. Þannig munu þeir Matt Gamer, Atli Jóhannsson og Jón Skaftason allir taka út leikbann í leiknum en auk þess er afar ólfldegt að Magnús Már Lúðvíksson geti leikið þar sem hann tognaði aftan í læri gegn KR. Þá hefur Einar Þór Daníelsson ekki verið leikfær í síðustu tveimur leikjum. Góðu fréttimar em hins vegar þær að Andri Ólafsson kemur aftur inn eftir leikbann og Steingrímur Jóhannesson er að koma til. | Knattspyrna Landsbankadeild kvenna: ÍBV 6 - KR 2 Olga skoraði fjögur mörk Kvennalið ÍBV tók á móti KR á Hásteinsvelli síðastliðið föstudags- kvöld en liðin em í öðm og þriðja sæti deildarinnar. Það var hins vegar ekki að sjá í fyrri hálfleik að ÍBV væri að spila á móti KR, Eyjastúlkur fóm hreint á kostum og hefðu með réttu átt að skora 6-7 mörk. Lokatölur leiksins urðu svo 6-2, glæsilegur sigur á KR. Eins og áður sagði vom yfirburðir ÍBV talsverðir í fyrri hálfleik. Samtals fékk IBV ein sjö dauðafæri en mark- vörður KR varði oft á tíðum mjög vel og auk þess hefðu sóknarmenn ÍBV átt að gera betur í þijú skipti. Eftir aðeins fimmtán mínútna leik var staðan orðin 2-0 fyrir ÍBV en KR náði að minnka muninn úr einni af sínum fáu sóknum fjómm mínútum síðar. Eftir þetta tók við nánast ein allsherjar sókn að marki KR en það var ekki fyrr en fimm mínútum fyrir leikslok að Margréti Lám tókst að koma boltanum framhjá markverði KR og staðan í hálfleik því 3-1. Það var svo ekki langt liðið af síðari hálfleik þegar KR-ingar náðu að minnka muninn í eitt mark en þá tók Edda Garðarsdóttir aukaspymu á miðjum vallarhelmingi IBV. Hún skaut að marki og boltinn sveif yfir Claire Johnston í marki ÍBV, afar klaufalegt hjá skoska markverðinum. Og KR-stúlkur héldu áfram að sækja meira en smám saman náðu Eyjastúlkur að snúa vöm í sókn. Síðustu tíu mínútumar vom svo ein allsherjar skemmtun því þá skomðu leikmenn ÍBV þrjú mörk og hefðu með smáheppni getað bætt við fjórða markinu og lokatölur því 6-2. ÍBVspilaði 4-4-2 Claire Johnstone, Mary McVeigh, Michelle Barr, Iris Sæmundsdóttir, Elena Einisdóttir, Bryndís Jóhannes- dóttir, Rachel Krnze, Elín Anna Steinarsdóttir, Sara Sigurlásdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir, Olga Færseth. Mörk ÍBV: Olga Færseth 4, Margrét Lára Viðarsdóttir, Mhairi Gilmour. | Knattspyrna, 2. deild: KFS 2- Tindastóll 3 Eru Eyjamenn fallnir í 3. deild? KFS lék mikilvægan leik á heimavelli en um helgina komu Tindastólsmenn íheimsókn. Eyjamenn hafa lengst af í sumar vermt neðsta sæti 2. deildar og þurftu nauðsynlega að hala inn fleiri stig ef þeir ætluðu að forðast fall. Hins vegar vom það Tindastólsmenn sem náðu öllum þremur stigunum á laugardaginn og urðu lokatölur 2-3. Tindastóll er líka í fallbaráttu og hafði því einnig ríka þörf fyrir stigin þijú. Leikurinn fór fjörlega af stað og KFS virtist vera sterkari aðilinn á vellinum. Gestimir komust hins vegar yfir eftir 25 mínútna leik og þrátt fyrir nokkur ágætis færi KFS þá var staðan í hálfleik 0-1. Fátt markvert gerðist framan af í síðari hálfleik og það var í raun aðeins síðustu tíu mínútumar sem líf færðist í leikinn. Fyrst jafnaði Yngvi Borgþórsson úr víti á 81. mínútu en Kevin Barr, fyrrverandi leikmaður ÍBV skoraði sitt annað mark fyrir Tindastól þremur mínútum síðar og kom gestunum aftur yfir. Pétur Runólfsson jafnaði svo fyrir KFS mínútu áður en venjulegum leiktíma var lokið en áður höfðu Eyjamenn sótt nokkuð stíft. En á síðustu andartökum leiksins kom sigurmark Tindastóls, svolítið klaufa- legt hjá heimamönnum og er staða KFS nú orðin ansi erfið. Staðan er þannig að KFS er neðst með sex stig en Víðir er í níunda sæti með þrettán stig og IR og Tindastóll með fjórtán. Mörk KFS: Yngvi Borgþórsson, Pétur Runólfsson. Verður Birkir elsti londsliðsmaðurinn? Birkir Kristinsson mun í næstu viku leika landsliðsleik sinn númer 74. Er hann leikjahæsti markvörður íslenska landsliðsins frá upphafi. Birkir hefur staðið sig vel með ÍB V í sumar en síðast var hann í leik- mannahópi íslenska liðsins í úti- leiknum gegn Þýskalandi 20. október á síðasta ári. Eftir því sem næst verður komist er Birkir elsti lands- BIRKIR, Þóra Björg Clausen og Bjarnólfur. Nafn Þóru féll niður í viðtali við þá félaga í síðasta blaði. liðsmaður fslands frá upphafi en hann mun fagna fertugsafmæli sínu næst- komandi sunnudag, þegar ÍBV tekur á móti FH. Þeir eru líklega ekki margir knatt- spymumennimir sem hafa spilað landsleik, komnir á fimmtugsaldurinn en Birkir fær leikinn ekki skráðan nema hann komi inn á. 2. flokkur kv. að falla? Annar flokkur karla lék tvo leiki um helgina. Fyrst var leikið gegn UÍA sem er sameiginlegt lið á Austfjörðum og var leikið fyrir austan á laugardaginn. Lokatölur urðu 1-3 fyrirÍBV. Daginn eftir var svo leikið gegn Sindra og fór leikurinn fram á Homafirði. Lokatölur þar urðu 2-3 fyrirÍBV. Eyjamenn em sem stendur í þriðja sæti C1 -riðils og em í harðri baráttu gegn Grindavík og Haukum um efsta sætið en eitt lið kemst upp í B-deild. Annar flokkur kvenna lék einn leik í síðustu viku en stelpumar sóttu Fjölni heim. Lokatölur leiks- ins urðu 3-1 fyrir Fjölni en ÍBV er í neðsta sæti Á-deildar, hefur ekki unnið leik í sumar og stefnir allt í að liðið falli. Þriðji flokkur kvenna tók á móti Fram á sunnudaginn og urðu loka- tölur í þeim leik 2-0. Þriðji flokkur er efstur í B1 -riðli, hafa stelpumar ekki tapað stigi í sumar og em nokkuð ömggar með sigur í riðlinum þó að enn séu nokkrir leikir eftir. Fjórði flokkur kvenna gerði sér lítið fyrir og tók KR í kennslustund í knattspymuffæðunum. Leikið var í A- og B-liðum, A-liðið sigraði 11- 0 en B-liðið lét sér nægja tveggja marka sigur, 2-0. Fimmti flokkur karla tók á móti Njarðvík f síðustu viku. Njarð- víkingar hafa breiðum hópi á að skipa í yngri flokkunum og mikill uppgangur í félaginu. Hjá A-liðum endaði leikurinn 1-3 fyrir Njarðvík, B-liðið tapaði 1-5, C-liðið 0-1 en D-liðið vann sinn leik 6-3. Með sködduð krossbönd Enska knattspymukonan Karen Burke hefur ekkert getað leikið með IBV síðustu vikur en hún meiddist í leik gegn Val þegar hún var tækluð gróflega. Ekki hefur enn fengist staðfest hvort, eða hvenær hún geti leikið aftur með ÍBV en samkvæmt nýjustu upplýsingum era krossbönd í hné sködduð. I fyrstu var talið að liðþófmn væri rifinn og átti Burke í kjölfarið að fara í speglun en af því verður ekki. Framundan Fimmtudagur 12. ágúst Kl. 19.00 Stjaman-ÍBV 2. fl. kv. Kl. 19.00 Selfoss-KFS 2. deild kk. Kl. 19.30 ÍBV-Fylkir 2.11. karla. Laugardagur 14. ágúst Kl. 16.00 IBV-Þór/KA/KS Lands- bankadeild kvenna. Kl. 16.30 Afturelding-ÍBV 3. fl. kvenna. Kl. 17.00 Haukar-ÍBV 4. fl. kv. AB. Sunnudagur 15. ágúst Kl. 12.00 Valur-ÍBV 4. fl. kv. AB. Kl. 12.00 Breiðablik-ÍBV 3. fl. kv. Kl. 14.30 Valur-ÍBV 2.11. kvenna. Kl. 17.00 ÍBV-FH Lands- bankadeild karla. Þriðjudagur 17. ágúst Kl. 19.00 IBV-Breiðablik 2. fl. kv. Kl. 19.00 Afturelding-ÍBV 2. fl. kk.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.