Harmoníkan - 28.02.1996, Side 3

Harmoníkan - 28.02.1996, Side 3
Fræðslu- og upplýsingarit S.Í.H.U. Ábyrgðarmenn: Hilmar Hjartarson, Ásbúð 17, 210 Garðabæ, sími 565 6385 Þorsteinn Þorsteinsson, Torfufelli 17, 111 Reykjavík, sími 557 1673. Prentvinnsla: Prenttækni hf. Forsíðumyndin er af hinum þekkta harmoníkuleikara og lagahöfundi (valsakóngi) Svavari Benediktssyni sem kynntur er í þessu blaði. Ljósm: Óskar Björgvinsson, Vestmannaeyjum Efni fyrir næsta blað verður að hafa borist fyrir 15. apríl. Blaðið kemur út þrisvar á ári. í október, endaðan febrúar og í endaðan maí. Gíróreikningur nr. 61090-9. Auglýsingaverð: 1/1 síða kr. 9.300 1/2 sfða kr. 6.200 1/4 síða kr. 3.900 1/8 síða kr. 2.300 Smáauglýsingar (1,5 dálksentímetri) kr. 650 + kr. 120 fyrir hvern auka dálksentimetra. DANSIÐ MÐ SVEINAR 0G DANSIÐ MÐ FLJÓÐ í nánast hverju samfélagi á jarðkringl- unni er dans stiginn af kappi, hefur svo verið um aldir. Fjölbreytni dansins er óþrjótandi. Dansinn á sér hundruða ára sögu að baki eða meir í þróun ýmissa undirstöðuatriða til túlkunar mismunandi tilbrigða í lífi okkar mannanna. í dans- listinni tjá menn sig um ástina og hatrið, stríð og frið, gleðina að vera til í ótal myndum og fjölmargt annað í mennsku samfélagi. Tónlistin situr þar í hásæti og er leikið undir allt frá undirslætti trumbunnar til fjölmennra hljómsveita. Ástæða er til að fjalla um þann þátt í dansi til styrkingar líkama og sálar. í allri heilsufarsumræðu nútímans er dansinn hátt metinn til hjálpar fyrir heilbrigða sál í hraustum líkama. Allt fram á þennan dag vitum við að gömludansamir eru vel frambærilegir sem allsherjar líkamsþjálf- un. Fólk sem vill dansa undir taktfastri hrynjandi gömludansanna má þó muna sinn fífil fegri. Fjölmörg ár eru að baki frá þeim tíma þegar hægt var að velja úr danshúsum í Hafnarfirði og Reykjavík þar sem nær eingöngu voru leiknir gömludansamir. Fólk á öllum aldri sótti þessa staði og naut þess að dansa með tilþrifum. Það sama hefur átt við annars staðar á landsbyggðinni þar sem dansinn dunaði. Oft vom það nú harmoníkuleik- ararnir sem héldu uppi fjörinu, stöku sinnum aleinir en stundum með fleirum. Alltaf fannst líka einhver til að kenna manni frumsporin. En í upphafi byrjaði maður á að virða fyrir sér dansfólkið sem ljómaði af lífsgleði og fjöri. Sumir dansaranna hoppuðu taktlaust eins og haltir hanar í hænsnahóp, aðrir kjöguðu eins og andasteggir á þurru landi. Enn aðrir tóku risaspor eins og strútar á flótta yfir eyðimörk eða sem Hilmar Þorsteinn Hjartarson Þorsteinsson eldur væri undir fótum þeirra. Dansfé- laginn hélst jafnvel ekki fastur við gólfið í mestu rykkjunum. Svo voru enn fleiri danssnillingarnir er svifu um dansgólfið með djúpum dýfum, beygjum og sveigj- um eins og álftir í tilhugalífi, runnu í mjúkum bugðum framhjá þúfnabönun- um sem snérust eins og hringiða í straumnum. En hnitmiðuð dansspor snillinganna bjöguðust ekki á nokkurn hátt. Svona er nú bara lífið. Hver sem komin er til vits og nokkurra ára man ekki eftir Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði, eða í Reykjavík Mjólkurstöðinni gömlu og Skátaheimilinu, Gúttó, Þórskaffi, Al- þýðuhúskjallaranum, Breiðfirðingabúð með nýjudönsunum uppi en þeim gömlu niðri, þannig var ámóta með Klúbbinn. Þá var Lindarbær, Brautarholt 4, Silfur- tunglið, Sigtún við Austurvöll (áður Sjálfstæðishúsið) og Sigtún við Suður- landsbraut. Síðasti opinberi gömludansa- skemmtistaður borgarinnar er sennilega Ártún sem verið hafði athvarf áhuga- fólks og gömludansaunnenda í all mörg ár en var lagður af um mitt ár 1995. Reyndar er verið að freista þess um þess- ar mundir að hefja gömludansana í Ár- túni að nýju og var sá fyrsti dansleikur- inn haldinn 27. janúar síðastliðinn. Hann hófst með þorrablóti, var fjölmennur og ætti að lofa góðu um framhald. Nánast það eina sem eimir eftir af gömlu döns- unum eru skemmtanir hjá eldri borgur- um og dansleikir harmoníkufélaganna á borgarsvæðinu. Sem betur fer er fjöldi harmoníkufélaga og einhverjir dans- klúbbar út á landsbyggðinni sem ég ef- ast ekki um að viðhaldi gömludansalist- inni af heilum hug. I einhverjum dans- skólum borgarinnar fer fram kennsla í gömludönsunum og Þjóðdansafélag Reykjavíkur sinnir þeim einnig ásamt kennslu í þjóðdönsum. Ef ég álít mig tala út frá hjarta harmoníkuleikara hlýtur að brenna á okkur að sómi sé sýndur gömludönsunum í framtíðinni, það er þjóðarhefð. Ekki er heldur annað að merkja en harmoníkuleikarar almennt sýni þeim hvað mestan áhuga nú sem fyrr, enda hið besta mál að saman fari góður harmoníkuleikur og gömludans- arnir er bjóða uppá mikla fjölbreytni fyr- ir spilara og dansara. Svo einkennilega vill til þegar við íslendingar bregðum okkur á gömludansana dönsum við oft í bland nýjudansana, ýmsa leikdansa, dægurlög, tangóa og sömbur með meiru. Þetta er fátítt í nágrannalöndunum að blanda þessum dansstíl saman. Þá er vín- arkrusinn ekki algengur nema hér. Það er fallegt að horfa yfir dansgólfið iðandi af fjöri og sjá fagurlega dansaðan ræl eða skottís, en allt verður að hanga saman. Harmoníkuleikurunum er nauðsynlegt að spila vel, með réttum takti og túlkun. Gömludansarnir og harmoníkan með þeim tilbrigðum sem á undan er lýst eiga samleið nú sem áður. Við skulum dansa og daganna njóta. Stöndum vörð um gömludansahefðina. H.H. 3

x

Harmoníkan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.