Harmoníkan - 28.02.1996, Qupperneq 5
Ferðasaga H.F.Þ.
síðastliðið sumar
Föstudaginn 18. ágúst s.l. sumar, fór
40 manna hópur félaga úr Harmoníkufé-
lagi Þingeyinga í 3ja daga skemmtiferð í
Dali og Reykhólasveit. Farið var á rútu-
bíl heiman frá félaga okkar Jóni Arna
Sigfússyni, en sjálfur gat hann því miður
ekki farið með okkur. Bílstjóri var Kjart-
an Sigurðsson á Grímsstöðum, sem
einnig er félagi í H.F.Þ. Ekið var sem leið
liggur frá Húsavík, fram Aðaldal og
Reykjadal, vestur yfir Fljótsheiði og fé-
lögum okkar "smalað" á leiðinni allt inn í
Fnjóskadal. Þegar á Víkurskarðið var
lagt, voru allir ferðafélagarnir fundnir.
Veður var gott eins og oftast þegar H.F.Þ.
er á ferð. Fararstjóri var auðvitað þáver-
andi formaður, Stefán í Hólkoti. Stjóm-
aði hann ferðinni allri frá upphafi til
enda. Heimtaði fólk óspart að hljóðnema
rútunnar og skyldu menn flytja alls konar
skemmtun og fróðleik, bæði í bundnu
máli og óbundnu. Aðeins tvisar fengu
menn að fara á skyndibitastaði. Þegar
komið var vestur undir Búðardal, var
ekið að samkomuhúsinu „Árbliki”. Þar
tóku á móti okkur félagar úr harmoníku-
félaginu „Nikkólínu“ með veitingum.
Þaðan fór með okkur í rútunni formaður
þeirra Jóhann Elísson, sem leiðsögumað-
ur um Mið-Dalina. Hann sagði okkur
nöfn bæja og ýmissa staða, og við nutum
útsýnis og góðrar leiðsagnar. Mér og
sjálfsagt fleirum þótti nóg um hversu
margar jarðir eru komnar í eyði á þessu
svæði, en svona er þetta orðið allt of víða
á landi hér. Að Laugum í Sælingsdal var
ekið, en þar hafði verið pöntuð gisting.
Þar fengum við hinar ágætustu mót-
tökur. Um kvöldið var svo farið á sam-
komu að Staðarfelli á Fellsströnd, sem er
alllöng keyrsla.
Samkomu sem þessa halda Dalamenn
ár hvert síðsumars þarna á Staðarfelli.
Höfðu Nikkólínumenn séð til þess að við
værum velkomin á samkomuna. Þarna
var heilmikið um að vera. Söngur, ræðu-
höld, kaffiveitingar og að lokum ball,
sem stóð til kl. 3 um nóttina. Margt fólk
var þama og húsið virtist helst til lítið, en
„þröngt mega sáttir sitja“ og menn
skemmtu sér vel. Nikkólínuinenn sáu um
dansmúsíkina, þó spiluðu dálítið menn úr
okkar hópi. Kl. hálf þrjú yfirgáfum við
staðinn og héldum í næturstað, öll held
ég, harðánægð með daginn. Næsta morg-
un var lagt af stað áleiðis í Reykhóla-
sveitina í yndislegu veðri, svo að hið
stórbrotna og fjölbreytta landslag á leið-
inni skartaði sínu fegursta. Video-mynda-
vél fararstjóra var óspart notuð. Leiðin
liggur um Svínadalinn, sem frægur varð
víst í fornöld af drápi Kjartans (út af
kvennamálum), síðan Saurbæinn og fyrir
Gilsfjörðinn, sem náttúruvemdarráð vill
ekki láta brúa, og í Króksfjarðames, það-
an svo að Bjarkalundi. Þar hafði verið
pöntuð gisting næstu nótt. Þar voru gisti-
herbergi afhent, og við komum farangri
okkar fyrir. Svo héldum við að Reykhól-
um. Þar var staðurinn og umhverfið
skoðað, þörungaverksmiðjan, þéttbýl-
iskjamin sem þar er risinn, og kirkja sem
er vegleg. Hana sýndi okkur sóknarprest-
urinn séra Bragi Benediktsson, og hann
rakti líka sögu Reykhólastaðar frá önd-
verðu og allt til þessa dags. Síðan var
okkur boðið í kaffi heima hjá Ingibjörgu
Tómasdóttur frá Reykhólum, sem dvaldi
í fríi í húsi foreldra sinna, Steinunnar
Hjálmarsdóttur og Tómasar Sigurgeirs-
sonar (frá Stafni), sem bjuggu langa ævi
rausnarbúi á Reykhólum, en eru nú bæði
látin. Ingibjörg hefur um langt skeið ver-
ið yfirljósmóðir við Landspítalann. Á
Reykhólum er sem fyrr segir allfjöl-
inennur þéttbýliskjarni. Þar er heilsu-
gæslustöð, verslun, garðyrkja, skóli,
dvalarheimili aldraða og áðurnefnd þör-
ungaverksmiðja, sem skapa mörgum
vinnu. Áætlað hafði verið að fara í stutta
bátsferð í einhverjar nálægar eyjar, en við
vorum þama stödd á óheppilegasta tíma
til slíks,-um háfjöru-, svo frá því var
horfið. Eftir ánægjulegar stundir á hinu
forna höfuðbóli var haldið aftur að
Bjarkalundi. Þá voru mætt þar til móts
við hópinn, hjónin Messíana Marselíus-
ardóttir og Ásgeir Siguðrsson, frá ísa-
firði, til að vera með okkur það sem eftir
var dags, svo og á dansleik sem fyrirhug-
aður var um kvöldið. í fylgd með þeim
var einn ágætur félagi okkar, Stefán
Leifsson, er verið hafði í heimsókn á Isa-
firði og tók síðan þátt í förinni með okk-
ur það sem eftir var. Ásgeir Sig. er bæði
formaður H.F.V. og einnig Landssam-
bandsins. Um kvöldverðarleytið var svo
hópurinn sestur að veglegu kvöldverðar-
hófí, sem Harmoníkufélagið veitti ókeyp-
is.
Síðan var haldið að félagsheimilinu
Vogalandi í Króksfjarðamesi. Þar héldum
við dansleik um kvöldið fyrir fullu húsi,
sem tókst prýðisvel. Um kl. hálf fjögur
voru allir komnir á gististað. Sex af okk-
ur gistu á Bæ, þar er gistiþjónusta.
Sunnudagurinn heilsaði með hagstæðu
veðri. Um hádegisbil héldum við úr
hlaði, eftir að hafa kvatt heimafólk með
þakklæti, og hjónin blessuð frá ísafirði.
Bjart veður og gott hélst langleiðina
heim. Frá Blönduósi lögðum við smá-
lykkju á leið okkar og skruppum á
Skagaströnd, og fengum okkur kaffi í
„villta vestrinu" þar, Kántrý-bæ. Sjálfur
séffinn var að heiman. Mikill gleðskapur
var í rútunni, sem hélst allt til ferðaloka.
Virtist þó nokkuð ort í ferðinni. Það var
talið af þeim, sem flest allar skemmti-
ferðir félagsins hafa farið, og þær eru
orðnar mjög margar, að aldrei hafi verið
fjörugra en í þetta sinn. Hafi fararstjóri,
bflstjóri og allt samferðafólk kæra þökk
fyrir samfylgdina.
Hákon Jónsson
Sérstakt áskriftartilboð
fyrir nýja áskrifendur
Harmoníkunnar!
5