Harmoníkan - 28.02.1996, Page 6

Harmoníkan - 28.02.1996, Page 6
Grænlandsför Spilað í gamla bcenum Það var í byrjun marsmánaðar, að síminn hringdi og ég kölluð í símann. Það var þá formaður menningarráðs ísa- fjarðar. Atti hann þá að erindi að bjóða mér að fara til Grænlands í boði bæjar- stjómar Nanortalik sem er vinabær Isa- fjarðar. Ég vissi satt að segja ekki hvaðan á mig stóð veðrið. Þar átti að vera menn- ingarvaka, þar sem allir vinabæir Norð- urlanda áttu að senda fulltrúa. Það þótti við hæfi að senda mig, konu til að spila á harmoníku. Ég spurði hvemig músík ég ætti að spila. Svarið var - bara spila eitt- hvað fjörugt. Það var nú það. Með hjart- að niður í skóm, bað ég um frest, og hann fékk ég. Ekki vissi ég hvernig ég ætti að snúa mig út úr þessu. En freist- ingin var mikil. Átti ég að sleppa þessu einstæða tækifæri til að sjá Grænland, og kynnast Grænlendingum. Þá datt mér í hug að fá leyfi til að fá með mér gítar- leikara, Sigurð Friðrik Lúðvíksson, sem er samkennari minn við skólann. Það gekk eftir. Þá var að athuga hvað við gætum fram borið. Ákváðum við að leika eingöngu íslensk lög. Þá var farið að safna efni. Að lokum höfðum við sett 40 lög á efnisskrána. Hófust nú æfingar af miklu kappi. Þess má geta að gítarleik- arinn er ágætur söngvari og ekki spillti það fyrir. Svo var lagt af stað út í óviss- una. Átjánda júní var ekið til Reykjavík- ur og átti að fljúga út 22. júní. Mættum við þann morgun í Keflavík, en ekki var hægt að fljúga vegna veðurs á Græn- landi. Daginn eftir flugum við svo til Narsarssuaq. Vorum við komin þangað um ellefu leytið fyrir hádegi. Var stór- kostlegt að horfa út og sjá landslagið. Þegar inn í flugstöð var komið, var okkur sagt að við fengjum flug til Nanortalik um kvöldið. Nú voru góð ráð dýr, því að þennan dag var þjóðhátíð Grænlendinga og áttum við að spila þar. Ur þessu rættist þó. Ég var að horfa út um glugga stöðvarinnar og sá þá þyrlur lenda og aðrar að fara. Þá fór ég að hugsa. Guð almáttugur, við eigum þó ekki að fara í þyrlu. Ég hef nefnilega alltaf verið mjög flughrædd. í ljós kom að við áttum að flýta för okkar og áttum að fara eftir klukkustund, og í þyrlu. Jæja ekki varð aftur snúið. í þyrluna fór ég og leið bara býsna vel. Sú ferð tók um klukkustund. Glæfraleg var hún en mik- ilfenglegt landslagið fyrir neðan okkur heillaði mig svo að ég gleymdi öllu sem heitir flughræðsla. Þegar til áfangastaðar var komið var fjöldi manns á flugvellin- um og var vel tekið á móti okkur. Var okkur vísað til húss þar sem við áttum að gista. Var það hjá hjónum með tvö böm. Hátíðarhöld vegna þjóðhátíðar voru í fullum gangi á torgi bæjarins, svo að þangað var haldið. Allir bæjarbúar voru mættir á staðinn og mikið um að vera. Um kvöldið var skemmtun í íþróttahús- inu. Okkur var sagt að mæta þar. Þurft- um við að ganga með hljóðfærin, nokkuð langa leið þar sem fáir bflar eru á staðn- um. Þegar þangað var komið var húsið troðfullt af fólki. Sýnt var grænlenskt leikrit, þar sem aldraðir léku. Ekki skildum við hvað fram fór. En leikendur skemmtu sér svo vel að það smitaði áhorfendur og skemmtum við okkur hið besta. Síðan við á svið. Var leikið og sungið góða stund og var okkur vel tekið. Síðan voru grænlenskir dansar. Þótti mér mikið til koma. Þar var grænlenskur harmoníkuleikari sem spilaði af hjartans list. Þarna voru dansarar á öllum aldri, mikið ef sá elsti var ekki um áttrætt. Þá 6

x

Harmoníkan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.