Harmoníkan - 28.02.1996, Blaðsíða 9
pappír“ var 27.200,- krónur og var spurt í
hverju þetta fælist? Ásgeir svaraði því -
prentuð voru jólakort og þakkarspjöld í
það miklu magni að þau duga í nokkur
ár. Reikningamir voru samþykktir mótat-
kvæðalaust.
Fundargerð síðasta haustfundar
Gunnar G. Gunnarsson ritari
Gerð var athugasemd við eitt atriði í
fundargerðinni: "Þau lög sem unnu til
verðlauna á síðasta landsmóti stóð til að
gefa út á geisladiski". Þetta er ekki rétt,
því aldrei stóð til að gefa út nema nótna-
hefti með lögunum og leiðréttist þetta hér
með. Fundargerðin var samþykkt eftir
þessa leiðréttingu.
Landsmót S.Í.H.U. 1996
Sigrún Bjarnadóttir formaður H.F.R.
dreifði bæklingum um Laugaland í Holt-
um, en þar verður næsta landsmót. Þetta
er kjörinn staður fyrir landsmót, því hann
hefur uppá svo margt að bjóða sem fellur
vel að landsmótshaldi. Góð tjaldstæði,
húsbílastæði, svefnpokapláss fyrir rúm-
lega 200 manns, í skólanum kojur með
dýnum og sundlaug. Þá er hægt að dansa
á tveimur stöðum í sama húsi án þess að
dansleikimir trufli hvor annan. Minni sal-
urinn tekur rúmlega 150 rnanns, en stóri
salurinn er sjálfur íþróttasalurinn en þar
verða tónleikamir haldnir. Sigrún vissi af
samkomu í þessum sal með um 700
manns. Nóg er af snyrtingum í húsunum
og verða reistar nýjar snyrtingar fyrir
tjaldstæðin. Innganga á sviðið er um ein-
ar dyr og út um aðrar, þannig að ekki þarf
að koma til árekstra þegar skipt er inná
og út. Fjölmennari hljómsveitum verður
skipað á tvo palla. Varðandi video-upp-
tökur eru þau að skoða ýmislegt. Stóri
gallinn við svona upptökur er, að maður
veit aldrei fyrr en eftirá hvort vel hefur
tekist til eða ekki.
Dagskráin gæti litið út eitthvað þessu
líkt:
Fimmtudagur 20/6: Aðalfundur
S.Í.H.U. um kvöldið
Föstudagur 21/6: Tími fyrir æfingar
f.h. Tónleikar eftir hádegi. Dansleikur
um kvöldið - félögin spila.
Laugardagur 22/6: Æfingar f.h. Tón-
leikar og dagskrá einleikara eftir hádegi.
Vladmir Cuchran frá Tékklandi sýnir
listir sínar á harmoníkuna. Dansleikur um
kvöldið í báðum sölum, félögin leika aft-
ur fyrir dansi.
Vladmir óskaði eftir að vera með
kennslufyrirlestur og gæti hann t.d. orðið
á sunnudagsmorguninn. Túlkur verður á
staðnum. Þessi Tékki er um fimmtugt og
er harmoníkukennari og hljómsveitar-
stjóri. Það er víst mikil breidd í spila-
mennsku hans og efnisskráin verður
klassísk. Að lokum vildi Sigrún taka
þetta fram. Þeir sem ætla að panta sér
hótelgistingu verða að aka 10 km leið til
Hellu og ættu að hugsa út í það fyrr en
seinna - hótel er það eina sem vantar á
þennan stað.
Lög S.Í.H.U.
Guðrún Jóhannsdóttir og Sigrún
Bjamadóttir
1. Lög S.Í.H.U. hafa verið í endurskoð-
un s.l. 5 ár og lögðu þessar konur nú
fram ákveðnar tillögur að lagabreyt-
ingum. Tillögurnar voru lesnar upp og
menn gerðu við þær athugasemdir og
síðan voru þessar breytingar sam-
þykktar af fundarmönnum. Mikill tími
fundarmanna fór í að kryfja þessi lög
enn einu sinni til mergjar og yrði of
langt mál að tíunda það allt hér. Þessar
tillögur verða fluttar á aðalfundinum í
vor nákvæmlega eins og þær voru
samþykktar nú og þá verða þær vænt-
anlega samþykktar og þar með eru
þær ekki tillögur lengur heldur orðnar
að nýjurn lögum S.Í.H.U. (I lögunum
stendur: Lögum þessum má aðeins
breyta á aðalfundi).
2. Tillaga hafði verið gerð að stofnun
„Styrktarsjóðs S.I.H.U.“, en vegna
þeirra breytinga sem nú voru gerðar á
lögum Sambandsins heitir þetta eftir-
leiðis „Reglugerð um styrkveitingar
S.Í.H.U.“.
3. Önnur reglugerð með lögunum var
líka samþykkt, en hún heitir: „Reglu-
gerð um verðlaunaveitingar S.I.H.U.“
Eftir landsmótið í sumar verða nýju
lögin og reglugerðirnar gefnar út að
nýju og hver veit nema þetta verði birt
hér í Harmoníkunni. Ásgeiri formanni
fannst mikill léttir að við skyldum nú
loksins vera komin fram úr þessum
lögum og vonar að þau verði sam-
þykkt í sumar.
Ákvörðun um árgjald félaganna til
S.Í.H.U.
Ásgeir formaður lagði til að það yrði
óbreytt kr. 2.000,- á hvert aðildarfélag.
Nokkrar umræður spunnust um árgjald-
ið. Einn stakk uppá 2.500,- krónur, annar
að árgjaldið færi eftir félagatölu t.d. 100
kr. pr. félaga, en að lágmarki 2.000,- en
að hámarki 10.000,- krónur. Samþykkt
óbreytt árgjald.
Landsmótið 1999
Ásgeir formaður:
Nauðsynlegt er að á næsta aðalfundi
liggi fyrir tilboð frá einhverju félagi um
að halda næsta landsmót. Hverjir ætla að
bjóða uppá næsta landsmót?
Staða harmoníkunnar í nútímaþjóð-
félagi
Ásgeir flutningsmaður:
Þegar maður lítur á þennan aldurshóp
sem er í þessum harmonfkufélögum eins
og t.d. á ísafirði, þá eru fáir undir fertugu
en flestir yfir fimmtugt. Hvar er það fólk
sem tekur við af okkur þessum gömlu?
Hvar er unga fólkið sem á að taka við
á haustráðstefuwmi við störfífundarsalað Varmalandi.
9