Harmoníkan - 28.02.1996, Side 10

Harmoníkan - 28.02.1996, Side 10
Asgeir S. Sigurðsson form. SIHU. afhendir þeim mœðgum Páht Geirsdóttur og Jóhönnu Þórarinsdóttir minjagrip fyrir að sjá um og matreiða holla og góða nœringu handafundar- gestum ráðstefmidagana að Varmalandi. eftir örfá ár? Þetta verða gamalmennafé- lög. I tónlistarskólum landsins er fullt af ungu fólki. Harmoníkan var í lægð á þeim árum sem við erum að tala um að vanti fólk, því þá voru strengjahljóðfærin allsráðandi. Hvernig getum við laðað fólk inn í félögin? Hvernig getum við gert ásýnd félaganna unglegri? En mér finnst samt staða harmoníkunnar fara batnandi frá því sem hún var fyrir nokkrum árum. Hér koma svo nokkrar glefsur úr þeim umræðum sem á eftir fóru: Við eigum að spila fyrir unga fólkið þau lög sem það vill heyra. - Hvernig væri að félögin keyplu eintök af Harm- oníkunni og gæfu þau í skólana, á sjúkra- húsin og heilsugæslustöðvarnar? - Við þyrftum í auknum mæli að tala við stjórnendur skólanna og spyrja þá hvort þeir bjóði uppá kennslu á harmoníku og ef þeir gera það ekki, þá af hverju ekki? - Til eru skólar sem beinlínis eru á móti því að kenna á harmoníku. - Þegar ég spila fyrir gamla fólkið þá fer það mikið út á gólfið þegar ég spila gamla slagara úr stríðinu, en ekki svo mikið þegar ég spila ræla og polka. Eg er líka orðinn þreyttur á þessu eilífa samasem merki milli harmoníkunnar og eldri borgara. - Danskennslu vantar í grunnskólunum; að ungt fólk læri að dansa eftir þessum takti sem sleginn er þegar spilað er á harm- oníku, vals, ræl og polka. Það verður að læra þennan dans, því ef menn kunna ekki dansinn þá fara menn ekki út á gólf- ið. - Það er vandamál að fá fyrir dans- skóla plötur með réttum hraða, en plöt- urnar með örvari hafa okkur þótt bestar. - Af hverju kaupir ungt fólk ekki diska með harmoníkuleik? Það eru ekki til neinar "patent" lausnir á þessu vanda- máli, en aðal málið er að efla áhugann hvaða leiðir sem við förum og gera harmoníkuna vinsæla t.d. væri hægt að hugsa sér hugmyndasamkeppni um hvernig við förum að þessu. Svo mörg voru þau orð og í rauninni voru miklu lleiri sem tjáðu sig um þessi mál og ítarlegar verður getið í fundar- gerðarbók. Blaðið Harmoníkan Ásgeir formaður: Samþykkt er fyrir því, að á hverjum haustfundi sé ákveðinn styrkur til blaðs- ins. Samþykkt var að hækka styrkinn úr 70.000,- í 100.000,- krónur og engin mótatkvæði. Lagt var til að félögin skipt- ust á að afla auglýsinga í blaðið og að stjórnir félaganna ræddu sín á milli hvernig best yrði að fjölga áskrifendum. H.F.R. kaupir blöð og dreifir í heilsu- gæslustöðvarnar. Hilmari og Þorsteini var sérstaklega þakkað fyrir að fórna svo miklum frítíma í að gefa út þetta blað og að það yrði seint fullþakkað. Önnur mál 1. Bréf barst frá Nikkólínu: Núverandi fundartími á haustfundi er fremur óhent- ugur vegna haustanna. Er möguleiki að breyta fundartíma og hafa hann í byrjun september?Stjórnin kemur til að íhuga þessi tilmæli. 2. Hilmar Hjartarson þakk- aði styrkinn fyrir hönd þeirra Þorsteins. Það er þessi styrkur frá S.Í.H.U. sem heldur í okkur lífinu. Það eru liðlega 300 áskrifendur og auglýsingar halda því ekki á floti. Við blásum alltaf lífi hvor í annan á haustin og hefjum skriftirnar eft- ir þessa hvatningu. öllum á fundinum voru afhentar lyklakippur blaðsins að gjöf. (Blaðið Harmoníkan verður 10 ára 14. apríl 1996 og vill svo einkennilega og skemmtilega til að sama dag eiga þeir af- mæli Hilmar og Þorsteinn - innskot rit- ara) Kynning á kennslugögnum Hafsteinn Sigurðsson Þau Messíana hafa verið að samræma stigspróf í harmoníkuleik. Þau tóku sam- an tónstiga og æfingar sem fólk þarf að kunna utanbókar þegar það tekur stigs- próf á hljóðfærið. Nú hafa þau lokið námsefni fyrir 3 fyrstu stigin. Þetta námsefni verður nú sent til um 20 harm- oníkukennara víðsvegar af landinu til umsagnar. Því næst fá þau þetta aftur með þeim ábendingum sem hver og einn vill gera. Þá er komið að því að samræma óskir sem flestra kennaranna og búa þetta í endanlegan búning. Þar með er komið samræmt verkefni og próf í þremur fyrstu stigum í harmoníkuleik. Til grund- vallar þessum stigum var alltaf tekið mið af samskonar stigum fyrir önnur hljóð- færi. Sérstakar þakkir eiga skilið Haf- steinn í Stykkishólmi og Messíana á ísa- firði fyrir að hafa unnið þetta verk. Símastyrkur Guðrún gjaldkeri lagði til að síma- styrkurinn til formanns yrði hækkaður úr 10.000,- í 20.000,- krónur . Þetta var samþykkt gegn einu mótatkvæði, Ásgeirs sem ekki vildi hækkun, en enginn einn má við margnum. Skipuð nefnd Einar Guðmundsson frá Akureyri lagði til eftir þær umræður sem spunnust áður um stöðu harmoníkunnar í nútíma þjóðfélagi, að skipuð yrði þriggja manna nefnd sem kæmi með tillögur um hvemig 10

x

Harmoníkan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.