Harmoníkan - 28.02.1996, Síða 12
SVAVAR BENEDIKTSSON
í kynningu íslenskra dægurlagahöfunda
Karl Svavar Lilliendahl
Benediktsson var fæddur á
Norðfirði, sem í dag heitir Nes-
kaupsstaður 20.maí 1912. Hann
var ekki gamall þegar hann fór
að gjóa í hljóðfæri, enda með
tónlistagáfu í blóðinu. Þar að
auki blésu tónlistarvindar um
Austfirði á þessum árum. Þar
voru ekki aðeins austfirskir tón-
listarmenn að verki, heldur auk
þess norrænir sjómenn, norskir
og sænskir, sem auðguðu tón-
listarmenningu fjarðanna, með
seiðandi harmoníku- og fiðlu-
leik.
Það átti þó ekki fyrir Svavari
að liggja að leika mikið fyrir
Austfirðinga, því tvítugur að
aldri, í miðri kreppunni, flutti
hann til Reykjavíkur og þar
hófst ferill hans sem hljóðfæra-
leikara. Eftir stuttan stans í höf-
uðborginni llutti hann vestur í
Stykkishólm til að læra klæð-
skeraiðn. í Hólminum hressti
hann upp á tónlistarlífið með
harmoníkuleik á dansleikjum,
en auk þess starfaði hann við leikfélagið
á staðnum.
Það var svo í stríðsbyrjun að Svavar
flutti til Reykjavíkur aftur á vit frekari
ævintýra. Hann hóf störf hjá Andrési
Andréssyni klæðskera og þar átti starfs-
vettvangur hans eftir að vera næstu þrjá-
tíu árin.
En harmoníkuna skyldi hann ekki við
sig og hóf nú að leika á dansleikjum vítt
og breitt í Reykjavík og nágrenni. Á
þessum tíma var Svavar einn af þessum
harmoníkuleikurum, sem léku fyrir
dansi. Allt voru það lög, sem einhverjir
aðrir höfðu samið, en það átti eftir að
breytast.
Árið 1950 hófst danslagakeppni SKT,
sem var skemmtiklúbbur templara, en
templarar voru ekki síður skemmtilegir
þá en í dag. Næstu árin var þetta svo ár-
viss atburður í tónlistarlífi landsmanna
og vinsældir jukust með hverri keppni.
Það var svo veturinn 1952, að Svavar
Benediktsson samdi sitt fyrsta lag og
sendi það í keppnina. Hann fékk mág
sinn, ljóðskáldið Kristján frá Djúpalæk til
að gera texta. Og þessir tveir andans fag-
urkerar hittu beint í mark. Nótt í Atlavík
vann fyrstu verðlaun í keppni gömlu
dansanna. Og nú var skammt stórra
högga á milli.
Hafi Svavar slegið í gegn með Atla-
víkinni, átti hann eftir að bæta um betur,
og það svo um rnunaði. Næsta ár vann
hann aftur og nú með en meiri yfirburð-
um. Þá hlaut fyrstu verðlaun valsinn, sem
varð á svipstundu þjóðsöngur íslenskra
sjómanna og hefur verið æ síðan. Að
sjálfsögðu átti Kristján á Djúpalæk frá-
bæran texta við þetta glæsilega lag, sem
sló svo eftirminnilega í gegn. Þetta var
Sjómannavalsinn. 1954 hlaut svo valsinn
um Eimskipafélagsfossana fyrstu verð-
laun. Og þar með hafði Svavar sigrað
þrjú ár í röð og 1955 náði Eyjan hvíta
öðru sæti. ðll þessi ár átti Svavar lög í
verðlaunasætum í keppni nýju dansanna.
Þá má ekki gleyma að keppinautar
Svavars voru engir aukvisar. Má þar
nefna Ágúst Pétursson, Jónatan Ólafsson,
Jenna Jóns og Magnús Pétursson, svo
einhverjir séu nefndir.
Til marks um vinsældir hans,
var oft tekið sérstaklega fram
í dansleikjaauglýsingum að
kynntur yrði nýr vals eftir
Svavar Benediktsson. Og þó
svo að lögin hans væru í hin-
um ýmsu danstöktum, urðu
valsarnir flestir og ber hann
því heitið valsakóngurinn
með réttu.
Fjölmargir urðu til að flytja
lög Svavars, svo sem Sigurð-
ur Ólafsson, Alfreð Clausen,
Smárakvartettinn að
ólgleymdum Öddu Örnólfs
og Ólafi Briem sem gerðu
Nótt í Atlavík og fleiri lög að
hálfgerðum þjóðlögum.
Og þó plötuútgáfa væri ekki
stór í sniðum á þessum árum,
fóru mörg lög Svavars Ben.
inn á plötur sem runnu út
eins og heitar lummur. Þar
má nefna Baujuvaktina, Hún
bíður þín, Við Sundin, Tog-
ararnir talast við og mörg
fleiri.
Alla vinsælustu textana átti
Kristján frá Djúpalæk og þeir komu svo
sannarlega frá hjartanu eins og lögin.
Svavar Benediktsson lék fyrir dansi
fram á sjöunda áratuginn en þá var mörg-
um harmoníkum lagt og Bítlatónlistin tók
við. En hann hélt áfram að semja tónlist,
þó mesti galsinn væri af honum.
Þá má ekki gleyma að alla tíð tók
Svavar þátt í starfsemi leikfélaganna í
Reykjavík og var meðal annars í Bláu
stjörnunni, sem stóð fyrir gríni og glensi
á þessum árum.
Svavar Benediktsson lést 3.ágúst
1977, austfirski hörpusveinninn var kom-
inn heim.
Friðjón Hallgrímsson tók saman.
ÁSKRIFANDI!
Spyrjið vini ykkar hvort þeir séu
áskrifendur að Harmoníkunni.
Sérstakt tilboð fyrir nýja
áskrifendur.
Útgefendur
12