Harmoníkan - 28.02.1996, Side 15

Harmoníkan - 28.02.1996, Side 15
Frá Félagi harmoníku- unnenda Norðflrði Heilir og sælir útgefendur góðir. Af okkar félagi er það helst að frétta að nýliðið ár var samfellt og gott starf í fé- laginu. Virkir félagar sem hittast reglu- lega og spila eru sjö og höfum við haldið hópinn í fjögur ár. Frá miðjum janúar 1995 og fram til vors hittumst við á hverju mánudagskvöldi og tókum lagið saman. Síðasta ár höfum við haft athvarf í Tónskólanum og notið leiðsagnar Egils Jónssonar tónlistarkennara. Um miðjan maí vorum við með skemmtifund í Slysavamarfélagshúsinu og var þar spil- að og dansað af hjartans list. Við spiluð- um einnig við sjómannadagshátíðahöld- in í Neskaupsstað. Um Jónsmessuna spil- uðum við í brúðkaupi í Fellum á Héraði. Það var afar skemmtileg veisla sem hald- in var úti í hlöðu og þar sátum við á hey- böggum og spiluðum fyrir dansi á ekta hlöðuballi. Það var stillt og milt veður um kvöldið og mikil rómantík. Ekki varð okkur meint af þessu en ein harmoníkan fékk nokkuð svæsna heymæði og er ekki alveg búin að ná sér.Sömu helgina spil- uðum við á bryggjuhátíð á Reyðarfirði. Um verslunarmannahelgina var haldinn harmoníkudansleikur í skólahúsi sem stendur á Kirkjumel hér í sveit. Ballið fékk góðar undirtektir og ég held að fólki finnist góð tilbreyting í svona ekta harm- oníkuballi en við höfum ekki notað nein auka hljóðfæri við þessi tækifæri, aðeins harmoníkur. Á Neistaflugshátíðinni spil- uðum við einnig á útimarkaði og við fleiri uppákomur og vorum því bundnir hér heima á meðan Þrastaskógarsam- koman stóð. Eftir á að hyggja finnst okk- ur vanta svolítið á sumarið af þeim sök- um þó vissulega hafi verið gaman að fá tækifæri til að spila svona mikið hér heima. Við félagamir höfum einnig kom- ið fram og spilað dinnermúsik við matar- veislur og ýmis tækifæri og stefnan er að sleppa engu færi á að koma harm- oníkunni á framfæri og reyna að auka veg hennar og vinsældir sem mest. í haust fór af stað danshópur sem hittist á hverju sunnudagskvöldi og fengum við leiðbeinendur í annað hvert skipti. Við dönsum aðallega gömludansana og not- um ýmist segulband eða lifandi harm- oníkutónlist. Þetta er ágæt skemmtun og Harmoníkuleikarar frá Norðfirði. styrkir vissulega okkur félagana sem stundum þessa fótamennt sem spilara, því að við höfum svo sannarlega rekið okkur á að það er nauðsyn hverjum spil- ara að kunna nokkuð fyrir sér í dansi. Á nýársnótt héldum við smágleði í sam- vinnu við danshópinn og höfðum opið hús í Slysavarnarhúsinu. Okkur finnst áhuginn alltaf aukast og hópurinn stækka sem vill njóta svona skemmtunar með okkur. Það er mikils virði að fá tækifæri til að koma fram og spila því að það er grundvöllur að framförum félaganna. f vetur hófust æfingar í septemberlok. Síð- an kom smájólafrí en æfingar voru komnar í gang aftur um miðjan janúar. Ákveðið er að spila í nokkur skipti í vet- ur á sjúkrahúsinu og elliheimilinu en að- almarkmiðið núna er landsmótið í sumar. Einhverjar breytingar verða á félaginu þar sem einn er að flytja af staðnum en okkur er jafnframt að bætast liðsauki. Ungur piltur sem stundað hefur nám um tíma í tónskólanum er að ganga í okkar raðir og vonum við að hann komi með okkur á landsmót. Að lokum viljum við þakka öllum þeim mörgu vinum sem við eigum vítt og breitt um landið fyrir allar þær gleðistundir sem við höfum átt við spil og spjall á liðnum árum og óskum alls hins besta á nýju ári. Fyrir hönd Félags harmoníku- unnenda Norðfirði Omar Skarphéðinsson formaður. MOLAR Til er bók sem heitir „Encyclopedia of Jazz“, einskonar biblía jazzunnenda. Þar má finna ýmiskonar upplýsingar um marga fræga jazzleikara, þar á meðal Art Van Damme sem er kunnur fyrir að leika jazz á harmoníku. í bókinni er greint frá því að Van Damme sé fæddur 4/9 1920. Því var það að honum bárust heillaskeyti í september s.l. frá Evrópu í tilefni 75 ára afmælis hans. Hið rétta er að hann átti af- mæli 9. apríl s.l. en ekki 9. september og byggist misskilningurinn á því að Banda- ríkjamenn byrja á að telja mánuðinn, síð- an dag mánaðarins og loks ártalið. Á evr- ópska vísu eins og við eigum að venjast er það ritað 9/4 1920. í erlendu blaði þar sem afmælisins er minnst, er greint frá því að hann sé hættur öllu tónleikahaldi. Þ.Þ. 15

x

Harmoníkan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.