Harmoníkan - 28.02.1996, Síða 18
Listaklúbbur
Leikhúskj allarans
Listaklúbbur Leikhúskjallarans hefur
í vetur haldið skemmtanir þar sem marg-
víslegar listgreinar hafa verið í boði. Að-
alhvatamaður Listaklúbbsins er Sigríður
Margrét Guðmundsdóttir og skipulegg-
ur hún og velur það sem í boði er hverju
sinni. Hún leitaði til Reynis Jónassonar
og fékk hann til að kynna harmoníkuna,
sem var mánudaginn 8. janúar s.l. kl.
20:30. Aðsókn fólks var mikil og
skömmu áður en kynningin hófst, varð
ljóst að ekki voru til næg sæti fyrir gesti.
Var því stólum bætt við á dansgólfið fyr-
ir framan hljómsveitarpall. Reynir hóf
tónleikana á því að spila ljúft lag eftir
sænska vísnasöngvarann Evert Taube en
á eftir fylgdu nokkur þekkt lög eftir val-
inkunna harmoníkuleikara, t.d. Arnstein
Johansen, Pietro Frosini og Braga Hlíð-
berg svo einhverjir séu nefndir. Eftir hlé
á tónleikunum bættust við þeir Bjarni
Sveinbjörnsson á bassa, Edwin Kaaber á
gítar og Sveinn Óli Jónsson á trommur.
Var tekið fyrir víðara svið harmoníku-
tónlistar t.d. leiknar syrpur af vinsælum
frönskum og ítölskum lögum og s-amer-
ísk tónlist. Þá fékk „jazz“-inn sinn
skammt og þar fengu bæði bassa- og gít-
arleikarinn að sýna snilli sína með sóló í
einum kafla eða svo.
Reyni dugðu ekki minna en fjórar
harmoníkur til að nota á kynningunni;
í maí á síðasta ári var haldið alþjóð-
legt harmoníkumót „5. Internationales
Akkordeon-Festival 1995“ í Innsbruck,
með tónleikahaldi og keppni. Alls tóku
þátt um 270 harmoníkuhljómsveitir og
minni hópar frá 12 löndum og var keppt í
11 greinum. Hátíðin var dagana 4.-7. maí
að báðum dögum meðtöldum og var leik-
ið á sjö stöðum samtímis í samtals 74
klukkustundir, og voru 36 alþjóðlegir
dómarar sem dæmdu. Vert er að geta þess
að öll skipulagning og framkvæmd móts-
ins var í höndum aðeins fjögurra einstak-
linga, en til að geta sér til um umfang
svona móts, þá komu þátttakendur í rúm-
lega 300 hópferðabílum auk einkabif-
reiða. Verðlaun voru afhent í skautahöll
staðarins af forseta þýska harmoníku-
sambandsins, sem jafnframt tilkynnti um
úrslit í einstökum greinum en viðstaddir
voru um 10.000 manns.
Þ.Þ.
Borsini, Borsini Nostalgic, Ballone
Burini sem er „musette" stillt og
Excelsior. Undirtektir voru með ágætum
og hljóðfæraleikurinn stígandi eftir því
sem leið á tónleikana.
Það er gott að vita til þess að fólk inn-
an hins viðurkennda menningargeira
skuli sýna harmoníkunni áhuga, en þar
hefur hún löngum átt undir högg að
sækja. Sigríður, Listaklúbbur Leikhús-
kjallarans og þeir sem þátt tóku eiga hrós
skilið fyrir framtakið. Þetta sýnir svo
ekki verður um villst, að grundvöllur er
fyrir íslenska harmoníkuleikara að halda
tónleika, það sýndi fjöldi þeirra sem sóttu
þessa skemmtun. En það þarf mikinn og
góðan undirbúning, þá ekki hvað síst að
hafa öfluga kynningu á þeim, og ekki
einskorða sig við höfuðborgarsvæðið.
Flytjendur verða einnig að velja það efni
sem áheyrendur skilja og vilja heyra, lög
sem eru aðgengileg sem flestum en ekki
eitthvað sem er svo háfleygt að aðeins
örfáir fá notið. Annars er hætt við að fjár-
hagsleg afkoma verði rýr.
Þ.Þ.
MOLAR
Harmoníkuþættir Ríkisútvarpsins
reyndust stutt gaman því eins og eflaust
lesendur vita, þá voru þeir aflagðir s.l.
haust. Ástæðan - fjárskortur. Tæplega er
hægt að trúa því að útvarpið hafi sparað
fé með þessari ráðstöfun því ekki styttist
dagskráin neitt að sama skapi og tæplega
er dýrara að flytja harmoníkutónlist í út-
varpi en ýmsa aðra tónlist. Það kann að
vera að það sé eitthvað ódýrara að greiða
einstaka pistlahöfundi fyrir að flytja mál
sitt í útvarpi en tæplega trúi ég því að t.d.
flutningur útvarpsleikrita séu ódýrari,
sem þó er nánast daglegur viðburður.
En hvað um það - bráðum kemur
vonandi betri tíð með blóm í haga því að
Reynir Jónasson tjáði mér í stuttu spjalli,
að líkur væru á að harmoníkuþættir hæfu
göngu sína á ný, næsta sumar.
Þ.Þ.
Reynir Jónasson
í norska blaðinu „Trekkspillnytt“
hvetur stjómandi harmoníkuhljómsveitar
útsetjara til að nota alltaf hringi með
punktamerkjum í stað þess að nota hin
hefðbundnu nöfn eins og Bandon, Organ,
Violin o.s.frv. Er bent á að skrifuðu nöfn-
in geta verið mismunandi eftir tegundum
og nefnir sem dæmi Flute, Sax og Cel-
este. Telur stjórnandinn hringamerkin
skýrari fyrirmæli og er þessum ábending-
um því hér komið til skila til þeirra hér á
landi sem fást við að útsetja fyrir harm-
oníku.
Þ.Þ.
Vantar þig
harmoníku?
Á fyrirliggjandi harmoníkur
á lager, ýmsar gerðir.
Einar Guðmundsson
Akureyri sími 4626140.
18