Harmoníkan - 28.02.1996, Page 22

Harmoníkan - 28.02.1996, Page 22
Frá vinstri, trommuleikarinn Flemming Qvist Möller og hinn spaugsami harmoníkuleikari Cari Erik Lundgaard. Danir skemmta í ráðhúsinu í byrjun desember, sunnudaginn 9unda, voru harmoníkutónleikar í Ráð- húsi Reykjavíkur, í boði Reykjavíkur- borgar. (Aðgangur var ókeypis.) A senu stigu tveir Danir, Carl Erik Lundgaard harmoníkuleikari er lék á tvöfalda Castagnari nikku og trommuleikarinn Flemming Quist Möller. Þeir komu fram kvöldið áður á Hótel Islandi. Þótt margir Islendingar geymi sínar tvöföldu nikkur rykfallnar uppi á háalofti er því öðruvísi varið með Dani, sem í auknum mæli hafa uppgötvað töfra þessa hljóðfæris. I kynningu Carl Erik strax í upphafi sveif um sali ekta danskur húmor og léttleiki. Dagskráin var í meginatriðum gömul dönsk gleðirík þjóðlagatónlist. Klapp hopsa, Kirke pols, Tivoliskottis, Skoda hopsa, Lífstykki drottningar, Brúðar hopsa og ll.Skoda hopsa eftir Carl Erik sem hann tileinkaði vini sínum Gert Lendal miklum Skodaunnanda í sér- flokki dró ekki úr húmorfyllingu tónleik- anna. Ráða mátti léttilega í hvað ástandi Skodans liði. Hverju lagi fylgdi ítarleg kynning og þessir listamenn gerðu góða hluti að mínu mati,trommuleikarinn mjög fær og ekki síður harmoníkuleikar- inn. Carl Erik sagði að í danskri tónlist leyndust oft erlend áhrif, enda skiljanlegt því að Danmörk hafi alltaf verið opið land og tekið nöja strauma í tónlist og tungu frá nágrannnalöndunum fegins hendi. Ráðhúsið var fullsetið og spilarar margklappaðir upp í lokin. Til sölu var hljómdiskur og snælda eftir tónleikana. Engan tel ég vera svikinn af því efni sem þar er, og fjölbreyttara hljóðfæraúrval en á sjálfum tónleikunum. Þar má að auki finna mörg lög eftir Carl Erik, helming laganna á disknum. í lokin læt ég fylgja nokkur orð Carl Erik sjálfs sem ég þöddi lauslega af plötuumslaginu. Eftir að hafa spilað á stóra harmoníku í 20 ár fékk ég fyrir tilviljun milli handa tvöfalda harm- oníku fyrir 15 árum. Það varð ást við fyrstu sýn, sem aukist hefur jafnt og þétt mfð árunum. Að það skyldu liggja geymdir svona margir möguleikar í þessu litla hljóðfæri var stórkostleg uppgötvun og ánægja. En þrátt fyrir nokkuð þrengri ramma þessa hljóðfæris er það fyrir mig hvatning frekar en hindrun. H.H. Kjartan Ólafsson Stúfholti Kjartan Ólafsson frá Stúfholti heldurhérá gripnum góða. Að Stúfholti í Rangárvallasýslu býr Kjartan Olafsson bóndi og harmoníku- leikari, mikill áhugamaður um allt sem að þessu hljóðfæri snýr. Hann er fæddur að Skriðnesenni í Bitrufirði 1. nóvember 1917, en flytur að Stúfholti úppúr 1970. Á meðfylgjandi mynd sjáum við Kjartan með A.S.A. Hagström hnappaharmoníku sem hann keypti af Braga Hlíðberg 1942, mjög gott hljóðfæri að hans sögn. Kjart- an spilaði víða á þessa harmoníku, fyrir dansleikjum í Dalasýslu og Bjarkalundi hér á árum áður, einnig norður í Stranda- sýslu. Kjartan seldi hljóðfærið Þorleifi Finnssyni Dalamanni og núverandi Hafnfirðingi 1951. Þorleifur lætur hana í skiptum fyrir píanóharmoníku vorið 1952 hjá Jóhannesi Jóhannessyni sem þá var með verkstæðið á Laugaveginum. Ekki náðist að afla frekari vitneskju um leiðir eða aðra eigendur þessarai' harm- oníku. Harmoníkan sem er af gerðinni Granesso a.s.a. Hagström er hvít að lit skeljuð með gulleitan blæ, skreytt perl- um, og með krómað hljómborð, fjögurra kóra með einni skiptingu í hljómborði. Kjartan hefur gaman af að fylgjast með félögum sínum í Harmoníkufélagi Rang- æinga og hann á ennþá harmoníku þó spilað sé heldur sjaldan á hana. Stuðst við greinfrá Sverri Gíslasyni H.H. 22

x

Harmoníkan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.