Harmoníkan - 01.10.1996, Side 6

Harmoníkan - 01.10.1996, Side 6
Lekavandamál himnanna í Þrastaskógi 1996 Hilmar Hjartarson Þau tóku að œfafljótlega eftir að þau hittust Fríðjón og sœnska stúlkan Annika Bergström sem skemmti mótsgestum í Þrastaskógi mefl leik sín- um á tvöfalda harmoníku. Hún erfrá Dorotia í Suður-Lapplandi og lief- ur spilað frá 12 ára aldri. Henni finnst harmoníkuleikurinn skapa mikla gleði og gerir kleift að eignast vini alltfrá 6 ára aldri til 100 ára, um það sé skemmtilegt til að vita segir hún. Það hefur hingað til þótt hvimleitt að vera blautur, í ákveðnum skilningi þess orðs. Hjá því að verða blautur varð þó ekki komist, í öðrum skilningi orðsins, um verslunarmannahelgina í Þrastaskógi og víðar á útihátíðum um þá helgina. Fagmenn í vatnsleka standa gjörsamlega ráðþrota gagnvart leka sein streymir svo hátt að ofan hefur þó verið reynt að grípa til hugaraflsins og þvíumlíkra orkulinda, en án árangurs. Nóg þótti okkur um vatnsausturinn 1994 þegar aldrei stytti upp alla helgina og í byrjun móts 1995. En þann spámann sem hefði látið frá sér fara spá síðasta verslunarmannahelgi myndi slá tvær hin- ar fyrri algjörlega út í vatnsaustri hefðu allir talið ruglaðan. Vatnið flæddi um allt. Tjarnir uxu og döfnuðu og fólk tók stóra sveiga framhjá þeim á leið sinni f heim- sóknir til vina sinna. En húmorinn skorti ekki og ég minnist heldur ekki að nokkur hafi kvartað. Það var líklegra að heyra spilað „Nú blika við sólarlag" eða „Und- ir bláhimni“ og menn buðu upp á veiði- leyfi í stærstu tjörnunum. Einn sagðist hafa misst handlegginn undan sænginni eina nóttina og vaknaði snögglega við kælinguna þegar handleggurinn lenti í tjörn inni í tjaldinu. Hjón nokkur þurftu að flytja til nágranna í húsvagni vegna vatnsaga í tjaldinu þar sem umhorfs var eins og í sökkvandi skipi. Vatnsveðrið varð til þess að verulega dró úr aðsókn sem vænta mátti. Það bjargaði miklu að hafa tvö 25 fermetra samkomutjöld. Á milli þeirra breiddum við 45 fermetra plastyfirbreiðslu og þannig náðist nokkurt þurrt svæði á milli tjaldanna fyrir markaðinn. í öllu hrikti vegna hvassviðris en allt lafði þó saman meðan á markaðnum stóð og fólk lék á als oddi undir veðrinu með harmoníku- undirleik sem bakrödd og ekki bar á öðru en að viðskipti þrifust vel enda fjöl- breytni mikil í vöruúrvali. Ekki var spil- að mikið úti á svæðinu en því meir inni í fortjöldum og í fellihýsum eða þar sem á annað borð fannst vatns- og vindþétt þak. Dagskráratriði Dagskráin riðlaðist allmikið. Leikir með börnunum voru erfiðir í framkvæmd og ekki annað hægt en að sleppa þeim. Aðeins einn tók þátt í keppninni um frumlegasta hljóðfærið en það var Vigfús Sig- urðsson sem kom sá og sigraði með kastarholu hann- aða með strengj- um og boga, eins konar kastarholu- fiðlu. Á þetta frumlega hljóð- færi lék Vigfús lag í gegnum heimagerðan bassa sem notað- ur var árið áður við hinn frumlega kústabassa, hann vann einnig til verðlauna þá í samskonar keppni. Ein gönguferð þótti nægja í þetta sinn en til heiðurs veðurfarinu var gengið að býlinu Alviðru vestan við Sogsbrúna með stansi við og við til að segja gaman- sögur. Harmoníkubelgurinn í ár var veitt- ur manni fyrir mikinn og dyggan stuðn- ing við blaðið allt frá upphafi vega, ekki síst fyrir að reka áróður fyrir því og út- vegun áskrifenda. Vinningshafinn er Ás- geir S. Sigurðson frá ísafirði fyrrverandi formaður H.V. og S.Í.H.U. Svolítið versnaði í því er finna átti yngsta harm- oníkuleikarann (undir tvítugu). Hann fannst ekki en samkomutjaldið fylltist af fólki og varla hægt að segja bara takk fyrir komuna. Gripið var til vararáðstaf- ana og gamansögur sagðar í staðinn. Hins vegar barst okkur í hendur frá búi Grétars Geirssonar frá Áshól sænsk flikka um 27 vetra, vel spilandi á tvö- falda harmoníku og hún lék þarna fyrir okkur ýmis danslög frá heimalandi sínu. Stúlka þessi heitir Annika Bergström og gerði góða hluti á fínlegan og fallegan hátt. Samkoman í tjaldinu endaði með samsöng og harmoníkuleik. Þetta var virkilega skemmtilegt þó svo að þarna hafi átt sér stað allt annað en lagt var upp með. Harmoníkukeppni í léttum dúr eða moll féll niður vegna veðurs. Dansleik- irnir á laugardagskvöld áttu sér stað við luktarljós og á útidanspalli, þeir gengu þokkalega enda hljómsveitirnar í sér tjaldi. Urkoma var annars ekki svo mikil þessi kvöld. Við varðeldinn var svo þurrt að hægt reyndist að spila án sérstakra verja. Ekki brást heldur stemmningin þar fremur en fyrri daginn og var mikið spilað og sung- ið. Að lokum þetta.. Það sem við harmoníkuunnendur höf- um nóg af er gleðin og ánægjan yfir því að vera saman. Við söknuðum þó margra og við vissum líka að margir höfðu hug- ann hjá okkur. Við látum þetta ekki hrekja áform á braut heldur hlöðum raf- hlöðurnar fyrir næsta ár. Kæru mótsgestir nú sem fyrr, bestu þakkir fyrir ánægjulegar stundir. Á næsta ári verður útihátíð Harmoníkunnar haldin í 10. sinn. 6

x

Harmoníkan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.