Harmoníkan - 01.10.1996, Síða 11

Harmoníkan - 01.10.1996, Síða 11
Á heimsins stærsta harmoníkumóti: Ransáter í Svíþjóð Hilmar Hjartarson / lok giftingarathafnarinnar tóku brúðhjónin lagið með félögum sínum. Þau höfðu kynnst á harmoníkumóti og giftu sig í Ransater með viðhöfn. Frá vinstri: Rikhard Berglund sem verið hefur mótsstjóri umliðin 12 ár og Bengt Hedman einn stjómarmanna í 6 manna mótsstjórn. Tónlistin getur gert kraftaverk, það er ljóst. Það er að stórum hluta þess vegna sem menn láta ekki vegalengdir neinu skipta þegar tónlistaráhugamenn eiga kost á því að vera þátttakendur í músikupplifun sem fellur að áhugasviði viðkomandi. Harmoníkuáhugafólk er þar síst undanskilið. I sumar lögðum við hjónin land undir fót til að taka þátt í vinabæjarmóti í Jak- obstad í Finnlandi. A bakaleið áðum við í Stokkhólmi og heimsóttum vini okkar Lars Ek og frú og síðan sem leið lá í frændsemisheimsókn til Vasterás í Sví- þjóð. Þá var ekki svo ýkja langt eftir á heimsins stærsta harmoníkumót. Með því að aka nánast í hávestur til Karlsstad var leiðin ekki löng til Ransáter og þangað fórum við með tilhlökkunina og trú á mikilfenglega upplifun uppá vasann. Mótið fór fram 3.-7. júlí en áður en ég reyni að lýsa á sem einfaldastan hátt hvað gerðist þessa daga er best að fara á upphafsreit þessa harmoníkumóts. Ég hafði haft samband við fram- kvæmdastjóra mótsins Rikhard Berglund áður en við fórum frá Islandi og þar átt- um við hauk í horni er á hólntinn var komið. Ríkhard tjáði mér að stofnendur mótsins hafi heitið Signi Gustavson og Sven Hollkvist og að fyrsta mótið hafi verið haldið 1972. Þá voru mótsgestir um 300 talsins. Að mótinu standa 15 harm- oníkufélög í Vármlandsfylki. Árið 1978 fór aðsókn verulega að aukast og er enn á uppleið, enda er unga fólkið að streyma inn 1 auknum mæli. Á rnótinu nú í ár 1996 voru í hjólhýsum, húsbílum og tjöldum milli 50-60.000 manns, en á föstudags- og laugardagskvöld sem eru tveir hápunktar hátíðarinnar áleit móts- stjóri að liðlega 70.000 manns væru á staðnum. Svæðið er geysistórt og fleiri hektarar undir tjaldsvæði. Húsakostur fyrir mótshaldið er gamalt stórbýli nteð hlöðum og öðrunt útihúsum sem ýmist er nýttur fyrir mótið eða sem safn og fyrir ýmsa hefðbundna iðju Varmlandsfylkis- fólks. Alls 500 manns vinna við móts- haldið og þar af 200 manns frá héraðs- stjórn fylkisins. Engin þiggur laun fyrir. Utan þessa er 28 manna eftirlitshópur sem sér um að mótsreglur séu virtar á svæðinu en auk þess er lögregluvakt, sjúkravakt og brunavarnir. Rikhard Berg- lund hefur verið formaður mótsins í 12 ár en auk hans eru 6 manns í mótsstjórn. Markmið mótshaldsins er að halda uppi menningararfi þeim sem fólginn er í gönilum dönsum, söng, harmoníku- og hljóðfæraleik sem ríkjandi var fyrr á árum þar sem gleðitilfinningin var sett á oddinn meðal fólksins. Það er ekkert undarlegt við það að enn í dag finni fólk sig fullkomlega á þess konar skemmtunum og lætur einskis ófreistað til að taka að fullu þátt í mótinu. Við tókum eftir því að það virtist vera stolt margra að geta sagt frá þvf að hafa alla tíð mætt á mótið. Á Ransátermótinu koma ekki upp mörg vandamál en ef vandamála er leitað má nefna að ráðist var í að byggja stærðar hótel á staðnum. Þetta mál var talsvert til umræðu á mót- inu vegna þess að það átti ekki langt í að draga harmoníkumótið í gröfina. í bili hefur verið dregið úr byggingarhraða en nú þegar hafa nokkrir aðilar trúir harm- oníkunni lofað allnokkrum peningafram- lögum til framhalds verksins. Annað sem ekki er síðra vandamál og harmoníkuunnendurm alveg óskiljanlegt en það er að sjónvarp og útvarp hafa eng- an áhuga á að sýna þjóðinni lrá þessari gleðiríku samkomuformi. Kannast nokk- ur við svoleiðis hér heima? I hverju er svo þessi gleði fólgin? Þarna fær maður að sjá og heyra ntarga bestu hljóðfæraleikara landsins og vfðar að, grínara, söngvara og dansara. Eitt af eftirminnilegustu atriðunum á mótinu þetta árið var brúðkaup á stórri útisenu inni á svæðinu. Brúðurin var sænsk og lék á tvöfalda harmoníku en brúðguminn var norskur bassaleikari. Þau höfðu kynnst á harmoníkumóti og léku í lok brúðkaupsins saman í fullum skrúða. At- höfnin var afar virðuleg en þar lék ung- lingaharmoníkuhljómsveit og söngkona söng við eigin undirleik á harmoníku. Balletdansmeyjar dönsuðu svo f lokin kringum hið nýgifta par. Presturinn sem var kona sagðist aldrei hafa upplifað aðra eins gleði eins og er á slíku móti og hafði 11

x

Harmoníkan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.