Harmoníkan - 01.10.1996, Síða 13

Harmoníkan - 01.10.1996, Síða 13
KRUMMARINIR FLUGU UTAN... tiilmar Hjartarson Krummarnir, frá v. Þorvaldur Bjömsson, Guðmundur Samúelsson og Jón Ingi Júlíusson. Myndin er tekin sólbjartan sunnudag á verönd súmarhúss Jóns Inga nálœgt Laugarvatni er œfingar stóðu sem hœst skömmu fyrir utanferðina. Þeir nefndu sig „Krummana“ allir söfnuðu alskeggi og þeir ákváðu að æfa saman með það að markmiði að taka þátt í alþjóðlegu harmoníkumóti á danskri grund síðastliðið sumar, 17.-19. maí. Hver og einn er harðgiftur og auðvitað flugu konurnar með þeim utan líka til að styðja menn sína í þessu áhugaverða framtaki. Krummarnir æfðu stíft þótt yvrið nóg væri að snúast vegna væntanlegs lands- móts og margra annara verkefna á miðju sumri. Krummarnir eru í F.H.U.R. Alþjóða harmoníkuhátiðin var haldin að hluta til af því tilefni að Kaupmanna- höfn er menningarborg Evrópu 1996 og nærliggjandi bæir s.s. Alleröd. Hátíðin birjaði í Kaupmannahöfn, þar sem voru nokkrir konsertar m.a. með Matti Rantanen. Ennfremur kom fram í Tivoli 40 manna hljómsveit Harmoníkufélags Reykjavíkur. Krummarnir komu einu sinni fram á tónleikum og höfðu hálftíma til umráða. Konsertsalurinn var stórt íþróttahús í Alleröd. Dagskrá Krumm- anna var að mestu íslensk, og á þessa lund. Tangóar eftir Maríu Markan; Blóm- krónur titra og Þitt augnadjúp, Heimþrá og Halló eftir Freymóð Jóhannesson (12. september), Stungið af og á Góðri stund eftir Jóhannes Jóhannesson, Jónsmessu- nótt eftir Braga Hlíðberg, Skíðapolki eft- ir Arna Isleifs og dönsk lagasyrpa. Tón- listarflutningi þeirra þremenninganna var forkunnarvel tekið og urðu þeir að leika aukalag. Tónleikar innan íþróttahallar- innar í Alleröd stóðu í tvo daga samfellt frá kl. 14-24 báða dagana. Allsstaðar var Farsímar álíka stórir og armbandsúr... Japanska símafélagið NTT hefur framleitt síma sem er í laginu eins og armbandsúr og vegur 70 grömm. Til að hringja þarf einungis að þrýsta á hnapp og nefna símanúmerið. NTT telur að um sé að ræða minnsta far- síma heims uppbyggðan á japanska PHS farsímakerfinu. Vonir standa til að síminn verði kominn á markað um árið 2000 og reiknað er með að hann kosti nálægt 50000.00 jen eða 463 dollara. Tækið verður einnig hægt að nota sem úr. harmoníkustemmning þessa daga og margir fingraliprir eyrnakonfektsspilarar komu fyrir augu og eyru áhorfenda. Má þar nefna hinn nýkjörna 27 ára gamla heimsmeistara Lelo Nika og Heidi frá Danmörku, Musettensemble frá Péturs- borg í Rússlandi þau Natalia á rússneskt strengjahljóðfæri og Vladislav Semjanof harmoníkuleikara. Brödena Fárm frá Sví- þjóð auk fjölda hljómsveita frá Dan- mörku. Auk heldur athygliverð hljóm- sveit frá Lettlandi, allir léku á Weltmeist- er harmoníkur, mjög vel samæft. Þá fór fram þarna sérstök keppni í minningu Mogens Ellegard. Þátttakendur komu aðallega frá Evrópu. Verndari alþjóða harmoníkuhátíðarinnar var danska prinsessan Benedikta. Krummarnir segj- ast mjög ánægðir með ferðina að öðru leyti en því að rok og kuldi var í Dan- mörku þennan tíma. Danmerkurferðin var einkaframtak utan þess að F.H.U.R. veitti nokkurn styrk til fararinnar og komu þeir fram í einkennisbúning félags- ins. LEIÐRÉTTING Leiðrétting vegna ferðasögu H.F.Þ. í 2. tbl. 1995-96. eftir Hákon Jónsson Af fyrirsögn og upphafi ferðasög- unnar má ráða að ferðin hafi verið far- in sumarið 1995. Það er ekki rétt því ferðin varfarin sumarið 1994. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. AÐ UTAN, andlát + Látinn er á þessu ári Palmer Huges sem fjölmargir kannast við hér á landi fyrir það að hafa gert kennslugögn fyr- ir harmoníku. Kennarar bæði hér og er- lendis hafa notast mikið við þessi gögn fyrir nemendur sína í harmoníkunámi. + Fyrir nokkru lést Frakkinn Didi Er Roussin úr krabbameini aðeins 47 ára gamall en hann skrifaði bók um sögu harmoníkunnar fyrir franska harm- oníkusambandið, mikið verk og yfir- gripsmikið. Hann skrifaði til blaðsins Harmoníkunnar um að fá gögn og upp- lýsingar héðan. Við fengum Högna Jónsson til að svara þessu. Hann segir að í bókinni sé mun meira efni um sögu harmoníkunnar á Islandi en frá hinum Norðurlöndunum. 13

x

Harmoníkan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.