Harmoníkan - 01.10.1996, Side 14

Harmoníkan - 01.10.1996, Side 14
Dansfíðringur á Borg Síðsumardansleikur F.H.S.N. að Borg í Grímsnesi í lok hundadaga var skemmt- un góð og hóflega fjölmenn, en þar komu saman nokkuð á annað hundrað manns. A dansleiknum var húrrandi dansstemn- ing. Hljómlistarmenn og söngvarar voru frá F.H.S.N. og nokkrir meðlimir F.H.U.R. tóku einnig þátt í flutningi tón- listar. Samkomuhúsið að Borg hentar vel fyrir dansleiki, þar er stór sena og dans- gólf með borðum allt í kring og upp- hækkuðu gólfi fyrir gesti í enda salarins gengt senu. Þá er mjög rúmgott í anddyri, snyrtingar og fatageymsla. Um þessa helgi var algjört blíðviðri enda mætti fjöldi manns úr Reykjavík bæði dansarar og spilarar á laugardeginum og tjaldaði á flötinni rétt framan við samkomuhúsið. Auk þess var þar fyrir formaður F.H.S.N. Olafur Th og kona hans Gyða. Úr þessu varð lítið en líflegt harmoníkumót hluta laugardagsins 24. ágúst og entist líka lungann úr sunnudeginum. Sumir gáfu sér þó tíma til að rölta út í móana að tína ber í veðurblíðunni. Agústnóttin er hættulega dimrn og rómantrsk. Það tók nokkurn tíma að átta sig í hvaða átt skyldi halda að tjöldunum er dansleik lauk. Menn komu mislangt að til að lyfta sér upp. Enga tel ég þó hafa ekið aðra eins vegalengd á dansleikinn eins og oddvitahjónin úr Arneshreppi á Ströndum, en þau Gunnsteinn Gíslason og Margrét Jónsdóttir óku liðlega 500 km hvora leið. En þau völdu þennan dansleik fyrir einu fríhelgi sína á sumrinu. Hilmar Hjartarson Afmælis- kveðja Fyrir rúmum áratug héldu tveir bók- stafstrúar harmonikuunnendur hátíðleg afmæli sín. Þetta eru þeir Hilmar Hjart- arson og Þorsteinn R. Þorsteinsson. Þeir eiga sama afntælisdaginn og má því segja að þeir séu harmonikutvíburar fæddir með fimm ára millibili. Þessi örlagadagur er 14. apríl. Ekki er vitað hve lengi afmælishófið hafði staðið, þegar ótrúleg hugmynd kviknaði, en það hlýtur að hafa verið nokkuð seint. Hug- myndin var einfaldlega sú, að gefa út blað fyrir aðra harmonikuunnnendur. Allir vita hvernig fór. Blaðinu Harmon- ikunni hafði verið slegið undir. Sex mánuðum síðar fæddist svo afkvæmið, dæmigert glasabarn. Það eru því rétt tíu ár síðan fyrsta harmonikublaðið leit dagsins ljós. Það þarf mikla bjartsýni, til að reikna með að svona draumur geti orðið að veruleika, og ennþá meiri kjark og þrek til að láta hann rætast. Skýring- in er að sjálfsögðu sú, að hvorugur hafði komið nálægt blaðaútgáfu áður, en báð- ir höfðu áhuga á því, sem þeir ætluðu að gera. Við áskrifendur höfum ekki orðið varir við fákunnáttu þeirra félaga í blaðaútgáfu. Við höfum fengið okkar blað með skilum og beðið spenntir næsta blaðs. Fjölmargar fræðandi og skemmtilegar greinar hafa birst í þess- um þrjátíu blöðum sem kontin eru og eiga vonandi eftir að birtast fleiri slfkar í næstu þrjátíu. Við fáum fréttir af öðrum áh'ka langt leiddum harmonikuunnend- um og blaðið hefur orðið til að auka tengsl milli félaganna. Það er fyrir löngu orðið ómissandi þáttur í lífi okkar og verður það meðan dragspil verður hengt á hal eða sprund. Við sem erum svo heppinn að vera harmonikuunnend- ur erum stolt af því, eða hvaða annað hljóðfæri getur státað af sérstöku blaði um sig og sína? Mínar bestu hamingju- óskir til blaðsins. Mégi það gleðja okk- ur harmonikuunnendur sem lengst. Þið Hilmar og Þorsteinn hafið unnið afrek. Friðjón Hallgrímsson. (bókstafstrúar harmonikuunnandi) 14

x

Harmoníkan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.