Harmoníkan - 01.10.1996, Side 15

Harmoníkan - 01.10.1996, Side 15
HARMONÍKUTÓNLIST Á MARKAÐNUM Friðjón Hallgrímsson dæmir plötur stigagjöf rósir tr 5 4 3 2 1 5 Framúrskarandi 4 Mjög gott 3 Gott 2 Ekki nógu gott 1 Ómögulegt Það er ekki á hverjum degi sem er- lendir hljómlistarmenn koma til íslands að hljóðrita tónlist. Það var því sérstakt ánægjuefni, þegar fréttist, að Finninn óviðjafnanlegi Tatu Kantmaa, væri búinn að leika inná disk, hér á landi, og það austur á fjörðum. Diskurinn ber það tví- ræða nafn „A tauginni" og er þar að finna úrval af lögum eftir austfirska lagasmiði. Um hljóðfæraleikinn á disknum þarf ekki að fara mörgum orðum. Tatu leysir verkefnið af hendi eins og búast mátti við og á köflum jafnvel ennþá betur. Tökin á hljóðfærinu er örugg og fumlaus og í raun ótrúlegt,hvað honum tekst að kroppa af sumum beinunum, sem eru nokkuð kjöth'til. Reyndar geldur diskur- inn þess á stundum, að ekki eru fleiri hljóðfæri með í spilinu. Einkanlega á þetta við í Suður ameríku dönsunum. Sjálft lagavalið er alltaf matsatriði. í bland eru þarna verulega góð lög, en síð- an eru þarna fáein, sem jafnvel Tatu Kantomaa, tekst ekki að gera áheyrileg. Veiðimannapolkinn eftir Arna Isleifs, er einn af burðarásum disksins og þar fer Finninn á kostum. Eyþór Stefánsson á þarna einn besta vals, sem undirrritaður hefur heyrt í langan tíma. Sunnan golan í meðförum Tatu er gullfallegt lag, sem hefur alla burði til að lifa okkur Eyþór og marga fleiri. Sterkar Frosini áherslur, sem allar eru heiðarlega fengnar, lyfta valsinum upp fyrir aðra valsa. Þarna er að finna þræls- kondinn polka, „Prakarann", eftir Hreinn Halldórsson, sem einnig á fyrsta marsinn, sem hljómar ágætlega sem byrjandaverk. Norðfirðingurinn Bjarni H. Bjarnason á heiðurinn af dæmigerðum norrænum valsi, sem sómir sér vel í efri deildinni. Þá má ekki gleyma tveimur skínandi lög- um eftir Guttorm Sigfússon. Parísar- draumur og Frissi fríski eru vel þess virði að eignast diskinn. I báðum tilfellum er flutningur Tatu frábær. Þá er ótalinn kostulega góður polki, Snerpa, eftir meistara Arna Isleifs. Þar fær Tatu að leysa hið flóknasta fingrarím og klárar sig af því með stæl. A tauginni er kærkominn diskur fyrir alla þá, sem njóta vilja fágaðs harmon- ikuleiks. Flutningurinn hiklaus og áhersl- ur með besta móti. Hins vegar hefði óneitanlega verið áhrifameira, ef Tatu hefði notið aðstoðar fleiri hljóðfæra og nokkur laganna eru þess eðlis, að þau þurfa beinlínis texa með sér,til að lifa. Að lokum þetta. Harmonikufélag Hér- aðsbúa á mikinn heiður skilinn fyrir það eitt, að verða fyrst í tíu ár til að koma Tatu Kantomaa að upptökutækjunum. Framtak þeirra er til mikillar fyrirmyndar og mættu fleiri félög taka þá sér til eftir- breytni. Við harmonikuunnendur bjóðum Tatu velkominn til landsins og bíðum spenntir eftir fleiri diskum. Friðjón Hallgrímsson. Það vekur alltaf áhuga, þegar íslenskir harmoníkuleikarar hljóðrita og gefa út tónlist. Eitt það nýjasta á þessu sviði, er Dizzy fingers. Þar leikur Hrólfur Vagns- son tónlist af ýmsu tagi. Þar má finna sí- gildar harmoníkuperlur eins og Karnival í Feneyjum og Dizzy fingers í bland með gömlum jassgæðingum á borð við Night and day eftir Cole Porter að ógleymdum Wild cat blues, sem gæti hæglega hleypt upp hvaða dansleik sem væri við Isa- fjarðardjúp. Dizzy fingers er óvenjuleg að því leyti, hve fjölbreytta tónlist þar er að finna og tæknilega séð á Hrólfur ekki í neinum vandræðum. Þar að auki hefur hann fengið í lið með sér fjóra frábæra hljóðfæraleikara, sem eiga sinn þátt í að gera diskinn að sérstaklega eigulegum grip. Þó margir bókstafstrúar harmoniku- unnendur sakni fleiri snarpari einleiks- verka, er ekki hægt annað en að dáðst að mörgum þeirra laga sem þeir félagar leika. Tökum sem dæmi, franska lagið Indiffirenc. Þar fer saman frábær léttleiki og fágætur samleikur. Þá er þarna önnur frábær perla, Sous le ciel de Pari (Undir Parísarhimni.) Það hefur trúlega heyrst franskari útgáfa en hjá þeint félögum, en engu að síður er þarna á ferðinni stór- kostlegur samleikur, og samtal gítars og harmonrku í laginu er nokkurra rauðvíns- flaskna virði. Bassinn lætur fara hæfilega mikið fyrir sér og fullkomna verkið. Glæsilegt. Night and day er margspilað af ýmsum listamönnum og þeir Hrólfur og félagar gera betur en flestir þeirra. í túlkun þeirra ræður fágun og hófsemi ríkjum og útkoman er frábær. Nokkur einleiksverk eru á disknum. Fyrst er að nefna Karnival í Feneyjum. Þar tekst okkar manni vel upp,svo um munar.Eg er ekki viss um, að ég hafi heyrt það betra. Það er eitthvað í túlkuninni,sem hitti mig beint í hjartastað. „Svona tónlist vil eg á diskinn minn“. Stór-kostlegt. Býflugan eftir Rimsky-Korsakoff suðar af sérstakri list hjá Hrólfi, sem sýnir okkur hvað hægt er að gera mikið, þó í mýflugu- mynd sé. Frábært. Dizzy fingers er mjög viðeigandi, sem titillag diskins og gefur ágætlega til kynna, hvers er að vænta í útsetningunum. Meðleikarar Hrólfs eru allir þrautreyndir tónlistarmenn og fá að njóta sín eins og við á, og Villikattablús- inn hjá þeim Franz Bumann og Hrólfi er eitt af skemmtilegustu lögum disksins, en væri ekki upplagt að snúa við hlutverk- unum næst. Útsetningar eru yfirleitt góð- ar og margar frábærar, en svo eru tvær eða þrjár, sem ég hefi ekki sæst við enn- þá. Dizzy fingers er búinn að snúast nokkrum sinnum á spilaranum mínum og ekki í síðasta skipti. Það er vonandi að sem flestir harmoníkuunnendur á íslandi eignist þennan skemmtilega disk, því þeir eiga það svo sannarlega skilið. Hvort sem meistaranum líkar það betur eða verr. Hann þarf svo sannarlega ekki að leika stöðugan einleik, til að hljóðfærið njóti sín, eða myndi einhver muna Sjó- mannavalsinn, ef Siggi Ola hefði ekki leikið aðra röddina í upphafi ? Eg bíð spenntur eftir næstu hljóðritun. Fríðjón Hallgrímsson 15

x

Harmoníkan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.