Harmonikublaðið - 01.06.2002, Side 12
FRÓÐLEIKUR
HARMONIKUBLAÐIÐ
Jóit Jónsson frá Hvanná
Jón Jónsson fæddist að Hvanná
í Jökuldal 9. júlí 1910. Hann
var fjórði af sex börnum þeirra
hjóna Jóns Jónssonar bónda á
Hvanná og konu hans Gunn-
þórunnar Kristjónsdóttur
Kröyer. Þó ekki sé vitað um að
sérstakur tónlistaráhugi hafi
verið á Hvanná eignaðist Jón
yngri orgel á unglingsárum og
virðist sem hann hafi haft
meiri tónlistaáhuga en aðrir á
heimilinu. En hann hafði annað
og meira sem var ósvikinn tón-
listargáfa.
í Tungu og Fellahreppi austur við Lag-
arfljót var á þessum árum nokkuð um
Harmonikuþáttur
á Rás 1
Þann 5. júní nýliðinn hóf göngu sína í
Ríkisútvarpinu.rás eitt, harmoniku-
þáttur eftir langt hlé. Þetta verða átta
þættir í syrpu. Þættirnir eru á mið-
vikudagsmorgnum kl. 10.15 og endur-
teknir kl. 20.20 sama dag. Óvíst er um
framhald þessara þátta, en áfram
verður þrýst á um gerð fleiri slíkra.
Hinn ungi og snjalli harmoniku-
leikari Matthías Kormáksson sér um
þættina, en hann naut leiðsagnar Sig-
urðar Alfonssonar sem á árum áður sá
um harmonikuþætti í Ríkisútvarpinu.
það, að fólk kæmi saman til að syngja og
spila, þegar lausar stundir gáfust frá erli
hversdagsins. Á bænum Bót í Tungu-
hreppi var þá að alast upp Stefán Péturs-
son, sem síðar átti eftir að setja svip á
tónlistarlíf Héraðsbúa. Hann hafði lært
að lesa nótur og hjá honum lærði Jökul-
dælingurinn ungi undirstöðuatriði í
nótnalestri. Stefán vartveimur árum eldri
en Jón, svo líklegt er að um einhverskon-
ar sameiginlegt sjálfsnám hafi verið að
ræða.
Á fyrstu áratugum aldarinnar var
skólakerfi íslendinga töluvert öðrum brag
en við þekkjum í dag. Þá var gagnfræða-
próf stór áfangi að öðru meira, og oft
þurfti ungt fólk að bíða lengi til að kom-
ast í gagnfræðaskóla. )ón var um tvítugt
þegar hann hóf gagnfræðanám og til
þess lá leiðin til ísafjarðar. Þar fékk hann
inni hjá frændfólki.
En með dvölinni á ísafirði voru örlög
unga mannsins ráðin. Hann bjó á ísafirði
alla tíð eftir þetta, ef frá er talinn einn
vetur, sem hann stundaði farkennslu í
sinni gömlu heimabyggð á Jökuldal og
tveir vetur, við nám í Samvinnuskólanum
í Reykjavík. Samhliða því námi sótti hann
tíma í píanóleik. Þar með var lokið hefð-
bundnu tónlistarnámi. Einhverjum hefði
dugað þetta skammt, en með jafn ríka
tónlistargáfu og )ón hafði, er hægt að
koma miklu í verk.
í miðri kreppunni var svo Jón ráðinn
aðalbókari Kaupfélags ísfirðinga. Menn-
ingarlíf hafði blómstrað vel og lengi á ísa-
firði og tóku ísfirðingar þessum unga
tónlistarmanni tveim höndum. Potturinn
og pannan í tónlistarlífi kaupstaðarins,
)ón jónsson frá Hvanná við píanóið.
var eldhuginn Jónas Tómasson. Með
þeim Jóni tókust ágætis kynni og oft kom
það fyrir að Jón hljóp í skarðið, þegar
Jónas var bundinn við annað. Þá lék Jón
oft í danshljómsveitum á ísafirði. Meðal
þeirra sem léku með Jóni á þessum árum
var Jenni Jóns, en hann dvaldi oft á ísa-
firði á þessum árum.
Jón frá Hvanná hóf lagasmíðar ungur
að árum, þó ekki færi mikið fyrir því til að
byrja með. En smám saman óx honum
ásmegin og lögin streymdu úr penna
hans eitt af öðru. Allan sinn starfsaldur á
ísafirði starfaði hann sem aðalbókari hjá
Kaupfélaginu, en með tónlistinni hvíldi
hann hugann eftir afstemmingar dagsins.
Á ferð og flugi
með F.H.U.R. kom út fyrir fjórum árum
og hefur að geyma leik hljómsveitar félagsins
undir stjórn Þorvaldar Björnssonar.
Meðal laga á diskinum
F.H.U.R. marsinn,
Hreðavatnsvalsinn
og Tangóasyrpa.
Ómissandi diskur í safnið.
Verð kr. 1.500,-
^fa-ðqqfluqi
M I II IIAKMONIUUINNIS !'l' M
Pöntunarsímar:
568 6422 / 894 2322
Garðar Olgeirsson
er þjóðkunnur harmoniku-
leikari og hefur samið
mörg fyrirtaks lög.
Á þessum diski leikur hann
allskyns gömludansalög.
Góður diskur
sem allir ættu
að eignast.
Verð kr. 1.500,- • Pöntunarsími: 468-6646
Gömlu dansarnir
iéiaatUainU Líka
Garðar Olgeirsson
Dflr