Harmonikublaðið - 01.10.2002, Blaðsíða 3
HARMONIKUBLAÐIÐ
RITSTJÓRAPISTILL
'MMvíMn
ISSN I670-200X
Ábyrgðarmaður :
Jóhannes Jónsson
Barrlundi 2 600 Akureyri
Sími 462 6432, 868 3774
Netfang: johild@simnet.is
Ritvinnsla:
Hildur Gunnarsdóttir
Prentvinnsla:
Alprent
Netfang: alprent@alprent.is
Meðal efnis
• Konan sem féll fyrir
harmonikunni
• Blásnir tónar, úr
trékössum, heilla
• Lag blaðsins
Baldur Geirmundsson
• Vestfjarðaferð
Nokkolínu
• Nokkur orð um
landsmót og
undirbúning þess
• Myndir af formönnum
Harmonikuunnenda
Vesturlandi
Auglýsingaverð:
Baksíða 1/lsíða kr. 12.000
u l/2síða kr. 6.000
Innsíður 1/1síð kr. 11.000
ii l/2síða kr. 6.000
ii l/4sfða kr. 3.500
ii l/8síða kr. 2.500
smáauglýsing kr. 1.500
Frá ritstjóra
Ágæti lesandi!
Þá er sumarið liðið með öllum sínum
harmonikumótum vítt og breitt um land-
ið, en hæst ber auðvitað landsmótið á
ísafirði í júlí. Þó hausta taki og vetur boði
komu sína leggur harmonikufólk ekki
árar í bát. Það þarf að halda dansmennt-
inni við og mörg félög bjóða upp á dans-
leiki, sum minnst einu sinni í mánuði,
önnur sjaldnar.
Fyrst ég minntist á dansleiki! Fyrir
hverja eru þeir? Fyrir fullorðna fólkið
auðvitað. En hvernig er með börnin og
unglingana? Það skyldi þó ekki vera að
við sem erum í forystu í harmonikufélög-
unu höfum gleymt mikilvægum þætti í
starfseminni? Það, að kunna að dansa
(gömludansana) hlýtur að vera forsenda
þess að þau börn og unglingar, sem í dag
eru að læra á harmoniku, skili sér á
harmonikudansleikina í framtíðinni. Við
fullorðna fólkið getum helst ekki skemmt
okkur nema á staðnum sé bar, þar meiga
börnin ekki vera, þær skemmtanir eru á
kvöldin, of framorðið fyrir börnin.
Hvernig væri að félögin héldu miðdegis-
dansleiki um helgar af og til þar sem
börnin og foreldrar þeirra kæmu. Þar
mætti kenna börnunum undirstöðuatriði
í dansi. Þau félög sem bolmagn hafa
gætu tekið þátt í að kosta námskeið fyrir
þau.
Á nýafstöðnum aðalfundi SÍHU í lok
september kom fram ábending um þessi
mál og fannst mér það löngu tímabært.
Ég vil að lokum segja þetta. Þegar ég var
að alast upp var venja að börn allt niður
í 10 ára aldur fengju að fara á böllin með
fullorðna fólkinu og get ég ekki séð að
þau hafi borið skaða af því. Þessi börn
nutu þess að skemmta sér með fullorðna
fólkinu. Æskilegt væri að þeir sem
stjórna í félögunum skoði þessi mál, ef
það gæti orðið til þess að laða að félög-
unum þau ungmenni sem áhuga hafa á
dansi og harmonikuleik.ekki veitir af því
meðalaldurinn er hár.
Ég vil svo þakka öllu harmonikufólki
fyrir skemmtilegt sumar og vona að þið
hafið það sem allra best. J.J.
Viðtal við Örn Inga
Ritstjóri blaðsins ákvað að
Iíta inn hjá Erni Inga fjöllista-
manni á Akureyri,en hann
hefur haft veg og vanda af
upptökum og gerð mynd-
bands af landsmótinu á ísa-
firði.
Þá kom í ljós að hann er búinn að
brjóta alla samninga um gerð mynd
bandsins. Vegna þess, að eigin sögn,
að efnið var svo skemmtilegt og líka
hitt að trúnaður og vinátta við harmon-
ikumenn sem t.d. báðu hann um að
mynda landsmótið með tveggja ára fyr-
irvara, varð til þess að hann fór að
vinna efnið allt öðruvísi. Það breyttist
því úr tónlistarmyndbandi í kvikmynd
og hann setti inn átthagamyndirtengd-
ar öllum félögunum. Einnig stutt viðtöl
við alla formenn áður en dagskrá hvers
félags hófst, li'ka sérstakt innlit í harm-
onikusafn Ásgeirs S. Sigurðssonar.
Og af öllu þessu samanlögðu sagði
hann að sér liði þannig í dag að það
verði ekki við hann að sakast ef spólu-
salan þrefaldast ekki frá því sem áður
hefur verið. Það sem ritstjóri blaðsins
sá og heyrði af efni myndbandsins
staðfestir orð Arnar lnga.
Stefnt er að því að spólan komi út
upp úr miðjum nóvember og verður
hún til sölu hjá formönnum allra aðild-
arfélaga S.Í.H.U. og einnig hjá lands-
sambandsformanninum.
J.J
Forsíðan Efri myndir: Hægri myndin er af Matthfasi Kormákssyní og Brynja Valdimarsdóttir, Úrsúla Guðmundsdóttir, Friðmey lónsdóttir vinstri myndin f.v. af þeim Tatu Kantomaa, Einari Guðmundssyni og Rut Berg Guðmundsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Helga Sjöfn og Aðalsteini ísfjörð. lóhannesdóttir, Karítas lónsdóttir, Oddný Björgvinsdóttir, Maren Neðri mynd: Nokkurra ára gömul mynd af nemendum Fanneyjar Lind Másdóttir, Birna Björnsdóttir og Sólberg Bjarki M. Karlsdóttur. Fremri röð frá vinstri: Ingunn Dögg lónasdóttir, Valdimarsson.
af