Harmonikublaðið - 01.10.2002, Qupperneq 13
HARMONIKUBLAÐIÐ
FRÓÐLEIKUR
Á heimleið. Áð við Steinabyrgið í Skötufirði.
mundur sem skiptu með sér verkum þan-
nigað Ásgeir fylgdi okkurút íViguren Sæ-
mundur sýndi okkur elsta hluta ísafjarðar-
kaupstaðar þegar heim var komið. Far-
kostur okkar var nánast nýr 22 farþega
hraðþátur frá Sjóferðum Hafsteins og
Kiddýjar og tók siglingin út í Vigur rúmar
30 mínútur í logni og sólskini. Alveg frá-
bært útsýni og fagur sjóndeildarhringur.
Þegar komið var í land í Vigur var fyrst
stoppað við kornmylluna, sem er frá 1840,
þar fengu allir prik með veifu til að verjast
ágangi kríunnar, sem hefur lítið dálæti á
svona heimsóknum. Farið var í klukku-
stundar gönguferð um eyjuna og mönnum
uppálagt að fylgja göngustígum því að eyj-
an er víða mjög grafin eftir lunda, en talið
er að um 80 þús. lundar séu í eyjunni yfir
sumarið. Margt var skemmtilegt og for-
vitnilegt að sjá þar og að lokinni skoðun-
arferð var þoðið upp á veitingar í bænum
á Vigri áður en siglt var í land.
í landi biðu okkar Sæmundur og Mjöll
kona hans og leiddu okkur í gönguferð um
elsta hluta bæjarins. í svokölluðum tjöru-
húsum er byggðasafn og einnig rekin veit-
ingasala þar sem ferðalangar snæddu
súpu eða rúsínugraut í þoði Vestfirðinga.
Komið var aftur til Bolungarvíkur um
kaffileytið og þurfti þá að stilla upp hljóð-
færum í Víkurbæ og kanna aðstæður þar.
Þegar farið var að stilla upp græjunum
hans Sigvalda, virtust vestfirskir galdra-
menn ekki kunna að meta þær því að þær
virkuðu þara alls ekki. Eftir nærri tveggja
tíma baráttu Sigvalda og formanns, með
allskyns óprenthæfum athugasemdum á
báða bóga, tókst loksins að fá allt til að
virka, en það er ennþá öllum hulið hvað
bilaði!
Mætt var svo til kvöldverðar um sjöleyt-
ið í Sigurðarbúð á ísafirði í boði harmon-
ikufélags Vestfjarða. Þar var matarveisla
og var kátt yfir borðum. Rússneski harm-
onikusnillingurinn Vadim Fjodorov sýndi
snilli sína á hljóðfærið og tók einnig nokk-
ur lög ásamt Helgu Kristbjörgu Guð-
mundsdóttur nemanda sínum. Tveir eldri
snillingar Benedikt og lónatan sýndu
mönnum svo hvernig á að spila á tvöfald-
ar harmonikur. Formaður Nikkolínu þakk-
aði fyrir hönd ferðalanganna fyrir frábærar
móttökur og góðan viðurgjörning. Að
borðhaldi loknu hófst svo dansleikur íVík-
urbæ í Bolungarvík, þar sem félögin skipt-
ust á að leika fyrir dans og svo spilaði bara
hver sem betur gat þegar líða tók á nótt-
ina. Það er alltaf skemmtilegt.
Menn röltu svo heim í Finnabæ í morg-
unsólinni til að leggja sig aðeins og taka
sama föggur sínar því að Brandur bílstjóri
mætti til að hirða sauði sína um 11 leytið.
Það var þó ekki haldið beint í Dali, heldur
var fyrst komið við hjá Ásgeiri formanni og
harmonikusafn hans skoðað. Mjög
skemmtilegt safn.
Á heimleiðinni var ekið um Súðavík og
svo hvern fjörðinn eftir annan, áð við
steinbyrgið við veginn í Hestfirði og svo í
Djúpmannabúð alveg passlega í kaffihlað-
borð. Síðan inn Djúpið og brátt voru heið-
arnar að baki og Dalir tóku við. Það verður
nú að viðurkennast að eftir sólina og blíð-
una hjá ísfirðingum voru nokkur viðbrigði
að koma í peysuveður heima. En þetta var
fráþær ferð og við Nikkolínu félagar áttum
eftirminnilega helgi við gestristni heima-
manna og afbragðs veðurblíðu Vestfjarða.
Kærar þakkir fyrir okkur.
Árni Sigurðsson.
Nokkur orð um landsmót og undirbúning þess
Frá formanni Harmonikufélags
Vestfjarða.
Undirbúningur hófst eftir landsmótið
á Siglufirði, en þá hafði verið samið um
afnot af íþróttahúsinu á Torfnesi fyrir tón-
leika og lokadansleik. Þar sem þetta var
fyrsta landsmót á nýrri öld, var ákveðið
að minnast harmonikutónlistar í landinu
á síðustu öld, með því að fá til mótsins
sem heiðursgesti Lars Karlsson og
Anniku Anderson frá Svíþjóð. Lars er
einn besti og þekktasti díatóniski harm-
onikuleikari á Norðurlöndum en Annika
er þekkt hér frá tónleikaferðalagi árið
1991. Með þeim kom Tómas bróðir
Anniku, en hann er gítarleikari í hljóm-
sveit Lars Karlssonar. Það var Eyþór Stef-
ánsson læknir í Gautaborg sem hafði
milligöngu um að fá þessa listamenn á
mótið.
Undirbúningur mótsins var í höndum
stjórnar félagsins, þar til að landsmóts-
nefnd tók til starfa fáeinum dögum fyrir
mótið, en hana skipuðu Pétur Bjarnason
framkvæmdastjóri mótsins, Karítas Páls-
dóttir og Sæmundur Guðmundsson.
Kynnir mótsins var
Magnús Reynir Guð-
mundsson.
Samið var við Ferða-
skrifstofuna Vesturferð-
ir að sjá um að bóka
gistingu og var alit
gistirými á svæðinu tek-
ið frá ári fyrir mótið.
Einnig var fengið leyfi
hjá ísafjarðarbæ að
hafa tjaldstæði í mið-
bænum. Björgunarfélag
ísafjarðar tók að sér að
skipuleggja tjaldstæð-
in, taka á móti gestum
og vísa til tjaldstæða og gististaða,
ásamt öryggisvörslu og sorphirðu á tjald-
stæðunum.
Samið var við Örn Inga Gíslason fjöl-
listamann á Akureyri um gerð mynd-
Frá setningu Landsmóts á Silfurtorginu á ísafirði. Hér stjórnar
Messíana Marselíusdóttir hljómsveit nemenda við Tónlistarskóla
ísafjarðar.