Harmonikublaðið - 01.04.2003, Page 10
FROÐLEIKUR
HARMONIKUBLAÐIÐ
Harmonikan einasta yndið mitt er
Eins og sagði í fyrri grein þá var það
upp úr 1830 sem fyrstu afbrigði af því
sem við köllum harmonikur fóru að koma
fram. Flest teljast þau til hálfgerðra forn-
gripa í dag, eru illa smíðuð og barnalega
einföld eins og við er að búast. Það var
vegna stríðsátaka sem smíði harmoniku
hófst á Ítalíu. Austurríkismenn höfðu her-
setið landið um langt skeið, en uppreisn-
arsveitir ítala hröktu þá frá landinu 1863.
Lokabardaginn stóð við borgina Castelfi-
dardo í Anconahéraði. Þar stóð vínrækt í
blóma en stríðið skildi eftir sig sviðna
jörð. Fólkið var því á vonarvöl.
Þá gerðist það að austurrískur munkur
sem var á leið frá Loreto baðst gistingar
hjá Soprani fjölskyldunni. í farteskinu
hafði þessi heilagi maður lítið skrín og
um kvöldið tók hann það upp og handlék.
Bárust þá unaðslegir tónar að eyrum
heimamanna. Ekki er vitað hvort Paolo
yngri Soprani fékk að teikna hljóðfærið
eða eiga, en það er vitað að jafnskjótt fór
hann að gera tilraunir til að smíða svona
grip og fljótlega bættist við Mariano
Dallapé auk Soprani bræðra. Eitt er samt
víst að varla hefði þetta hljóðfæriskríli
getað lent hjá handlagnara og iðnara
fólki en því í Castelfidardo.
Ekki leið á löngu þar til smfðin var haf-
in af fullum krafti, bændur hættu að
troða berin og einbeittu sér að því að búa
til harmonikur og þar með gleðja ótaldar
miljónir manna ef allt ætti að telja til
dagsins í dag. Bráðlega fóru að rísa
harmonikusmiðjur allt suður á Sikiley og
upp í hlíðar Alpafjalla að upprunalandinu
Austurríki meðtöldu. Castelfidardomenn
gleymdu ekki Paolo Soprani. Þeir reistu
honum styttu á aðaltorginu og gerðu
hann að borgarstjóra. Paolo byggði
stærstu harmonikuverksmiðju Ítalíu og
nafn hans barst um allan heim. Þetta
stóra hús stendur nú að mestu autt en
vitnar um blómaskeiðið um og eftir 1950
þegar um eða yfir 100 smáir og stórir voru
að smíða hljóðfærin, mest píanóharmon-
ikur sem að stórum hluta fóru til Banda-
ríkjanna.
Norðurlandabúar voru sjálfbjarga með
nikkurnar því þar voru einar þrjár verk-
smiðjur á fullu og Hagström þeirra
stærst. Mekka nikkunnar kalla samt
margir Castelfidardo, sem stendur að
hluta á hæð nokkru stærri en Öskju-
hlíðin, með
þéttbyggðar
hlíðar húsa
frá 18. og 19.
öld, mörggraf-
in í hallann,
og virðast oft
vera ein hæð
þegar að ofan
er komið, en
geta verið allt
að fjórum þeg-
ar niður stigana er gengið. Þar hafa marg-
ir smiðir komið sér fyrir, nokkrir búa
ásamt fjölskyldum sínum á efstu hæðinni
en eru svo við iðju sfna á hæðunum fyrir
neðan og neðst er viðargeymslan. Al-
gengt er að fjölskyldur starfi að einhverju
leiti saman að framleiðslunni. Flestir
hafa þjálfað sig í ákveðnum handtökum
og hafa náð undraverðri leikni hver í sín-
um þætti. Með sumt er farið út í bæ, þar
taka þeir við sem eru sérhæfðir í sínu fagi
eða eru með smærri verkstæði.
Algengt er þegar gengið er um götur
Castelfidardo að heyra langdregna tóna
stillaranna, sem taka að sér fyrir smiðina
það vandasama verk að stilla hlóðfærin,
sum með franskri, ítalskri, skoskri og eða
sléttri stillingu. Sumir nota tæki en aðrir
treysta bara á eyrað. Belgsmíðin er talin
vandaverk, telja menn og að belgirnir
ráði miklu um hljómgæðin. Hún er oftast
aðkeypt, og krefst mikillar kunnáttu sem
líkist bókbandi. Þegar hornin hafa verið
sett á sinn stað er barið af miklu afli með
tréhamri svo hornin klemmist að belgn-
um. Að því búnu er tréramminn límdur á
og allt sett undir farg. Ýmislegt annað
sem þarfnast ekki mikils pláss svo sem að
vinna tóna af hæsta gæðaflokki, mun oft
gert í heimahúsum.
í einni harmoniku geta verið tónar frá
fleiri smiðum, sumir þykja gera betri
bassaraddir en aðrir bestu hátónana.
Tegundirnar geta kallast Super sem er
hvað minnst unnin, og allt upp í Mano
sem merkir að tónarnir séu handgerðir.
Sagt er að áður fyrr hafi smiðir staðið
daglangt við borð sem járnstykki stóð
framúr þar var fjöðrin höfð föst og þjalir
og smergelpappír einu verkfærin. Jóhann-
es G. Jóhannesson, sem bar betra skin-
bragð á tóna en aðrir sem ég hef þekkt,
þurfti ekki nema að bera tónplötu upp að
D3&
ljósi til að sjá hvort um hálf eða full
handsmíðaðan tón væri að ræða. Annars
sýnir blámi stálsins, nái hann rétt upp
fyrir hnoðið, að tónninn er Mano! Hand-
smíðaður! Tipo Mano er aftur á móti
handfrágenginn ímiteraður eins og Jó-
hannes G. kallaði það. Þessar tvær gerðir
eiga að tryggja, að minna loft þurfi og
stillingin haldist lengur. Klæðning harm-
onikunnar er svo eitt vandaverkið og auð-
vitað eru konur bestar við það. Sellulósið
svart, rautt eða hvítt kemur í plötum, það
er lagt í bleyti í aceton og vatn til helm-
inga og látið liggja í sólarhring. Þá er það
mjúkt og hægt að leggja eins og vegg-
fóður.
Það verður að segja ítölsku handverks-
fólki til hróss að hvar sem litið er á ítalsk-
ar harmonikur eru vinnubrögðin frábær.
Verksmiðjurnar eru margar reknar í sam-
vinnu við útlenda fjármagnseigendur
sem heimta hámarks ágóða. Margar þeir-
ra hafa því farið á hausinn og sumar oft.
Sama átti við um Titano Victoria sem
stendur á gömlum merg. Þar var á einum
stað allt sem þurfti til smíðanna, þung-
búnar stansapressur stóðu yfirgefnar í
kjallaranum en á efri hæðunum tóku við
deildir sem kláruðu verkið þar til harm-
onikunum var pakkað í kassa til útflutn-
ings.
Eigandinn var aldraður maður sem
Picchetti hét og hafði rekið verksmiðjuna
síðan 1924 ásamt bróður sínum, sem var
dáinn 1973. Picchetti hafði yfirumsjón
með öllu, en tengdasonur hins var fram-
kvæmdastjór. Victoria (Titano í Bandaríkj-
unum) voru á þessum árum með vönduð-
ustu harmonikum, en varð þó gjaldþrota
fyrir þó nokkrum árum. Eftir að nýir eig-
endur komu að minnkuðu gæðin veru-
lega, ódýrir tónar voru notaðir og ýmis-
legt var farið að smíða úr plasti.Þó mun
enn hægt að fá vönduð en mjög dýr
hljóðfæri frá Victoria, sem nú hefur snúið
sér að smíði bajana að hætti Rússa.
Sama basl hefur verið hjá mörgum
öðrum í þessum iðnaði, sem að tölu-
verðu leiti er fjármagnaður af útlendum
fyrirtækjum. Frakkar eru svo með í mörg-
um verksmiðjum sem sérhæfa sig í raf-
magns og musette harmonikum sem hafa
ekki verið á markaði hér. Svo má nefna
Excelsior sem um langt árabil framleiddi
dýrari gerðirnar fyrir Hohner, en láta
Högni Jónsson.